Þriðjudagur, 23. október 2007
Mannlíf í okt 1959: nokkur fróðleiksbrot úr Lesb. Mbl.
Úr Lesb. Mbl.
FRAMKVÆMDIR
- Tekið í notkun ultrastuttbylgjuskeytakerfi fyrir flug um Ísland.
- Ný lýsing sett á Keflavíkurflugvöll fyrir aðflug. Slíkt kerfi var þá hvergi annars staðar í Evrópu.
- Guðni Þórðarson blaðamaður stofnar ferðaskrifstofuna Sunnu
- Nýtt skip vígt, til að annast ferðir milli lands og Eyja. Nefndist Herjólfur.
- Ný sjúkraflugvél keypt til Akureyrar
- Nýtt varðskip tekið í notkun. Nýsmíðað frá Álaborg. Kallast Óðinn.
- Lendingarljóst sett á flugvöllinn í Vestmannaeyjum.
- Farið að selja mjólk í pappaumbúðum í Reykjavík
- Jarðskorpan á Íslandi mæld. Þykkari en menn áttu von á.
- NIðurskurður fjár á mæðiveikisvæðinu í Reykhólasveit
- Reynivallakirkjan stækkuð og endurvígð.
- Nýtt togskip, Skagfirðingur, kemur til Sauðárkróks.
- Miklabraut í Reykjavík upplýst með kvikasilfursljósum
- Ákveðið að leggja nýja vatnsæð þvert yfir borðina, frá Þorfinnsgötu að Suðurgötu. 1.680 km að lengd.
LISTIR
- Hafmeyjan, eftir Nínu Sæmundsdóttir, afdjúpuð í Reykjavíkurtjörn
- Þjóðleikhúsið tekur til starfa
- Tékkneskir tónlistarmenn halda hér tónleika
- Guðmundur Jónsson óperusöngvari fer til Vínarborgar
- o.fl.
ÍÞRÓTTIR
- Ríkarður Jónsson knattspyrnumaður fer til æfinga hjá Arsenal í 2 mánuði
- Benedikt Waage endurkjörinn forseti ÍSÍ
- Ákveðið að senda skíðamenn á Ól í Squaw Valley
- KR verður Íslandsmeistari
- Ólafur Á. Ólafsson er golfmeistari Reykjavíkur í 2. sinn
osfrv, osfrv. Margir skemmtilegir fréttaflokkar.
Gaman að skoða gömul blöð og sjá hvernig þetta var í den.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 23. október 2007
Eiður Smári ....eða Gudjohnsen?
Jæja, Eiður byrjar inná í kvöld.
"Eiður Smári er góður leikmaður sem stóð sig vel með okkur í fyrra en hefur verið meiddur. Hann hefur ekki leikið mikið með okkur í vetur vegna meiðslanna en hefur lagt hart að sér og fær tækifæri í kvöld," sagði Rijkaard.
Ég er næstum því 100% viss um, að Rijkaard sagði ekki "Eiður Smári...", heldur "Eidur" eða "Gudjohnsen".
Spurning að senda blm. Moggans á gæsalappanámskeið til Helgu Kress?
![]() |
Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 23. október 2007
Ríkarður hjá Arsenal við æfingar
Jæja, hvað hafa margir Íslendingar keppt með Arsenal?
Albert Guðmundsson
Sigurður Jónsson
Valur Fannar Gíslason
Stefán Gíslason
Ólafur Ingi Skúlason
Og síðan hafa einhverjir, t.d. Kolbeinn Sigþórsson, æft með Arsenal.
Ég var að fletta gamalli Lesbók Mbl, 11. október 1959, þar sem segir frá:
"Ríkarður Jónsson, hinn kunni knattspyrnumaður, fer til Englands og verður hjá knattspyrnufél. Arsenal um 2 mánaða skeið".
Ég skal viðurkenna, að ég hafði ekki hugmynd um þetta.
Ætli lengi sé von á einum...enn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 23. október 2007
Nú verður Siggi glaður
Enda er hann ekki kallaður Siggi stormur fyrir ekki neitt.
En voðalega er þessi íslenski vetur (eða síðhaust) þreytt.is
Rigning, rigning og aftur rigning. Og síðan bætist rokið við.
Fussum svei.
![]() |
Stormviðvörun við vesturströndina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 23. október 2007
Hvílíkur unaður
Svo menn snúi aftur til umræðunnar í gær; margir harðir Arsenal menn þurftu ekki að taka inn viagra í nótt, en hugsanlega hafa einhverjir þurft að létta vatni.
Jú, Spurs auðmýkt einu sinni enn. Ef þetta boðar ekki skjálfta á Upptyppingum, þá veit ég ekki hvað.
En mikið rosalega held ég að Spurs aðdáendur hér á landi séu byrjaðir að útbúa felulitina. Feis it! Spurs getur ekkert, alveg sama þó félagið eyði og eyði í leikmenn.
![]() |
Newcastle lagði Tottenham, 3:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 23. október 2007
Brann Bergen
Ég sagðist nú ekki þekkja hann neitt sérstaklega, en miðað við genasamsetningu ætti hann eftir að sanna sig og það ágætlega. Hann myndi semsagt koma til þegar á liði og reynast vel þegar á hólminn væri komið.
Náungi þessi trúði mér svona rétt mátulega en ákvað að gefa honum séns og biðja aðra að gera það líka.
Nú skilst mér að Kristján sé dáður og dýrkaður í Brann...
Já, mikið vatn getur runnið til sjávar á skömmum tíma, ef straumar eru harðir.
![]() |
Allt á hvolfi í Bergen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)