Gáfulegt

Næstum því eins gáfulegt og að tapa fyrir Liechtenstein 3-0.


mbl.is Tannbursti fjarlægður úr nefi konu á Indlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyjólf út

Ok, fyrir utan þennan morkna Rússa er EYjólfur að ná lélegasta "árangri" sem nokkur hefur náð með landslið Íslands.


Við eigum ágæta leikmenn, en þeir ná ekki saman.


Venjulega axlar þjálfarinn ábyrgð...ekki síst þar sem það er virkilega spurning, hvort hann hafi valið besta liðið....eða valið besta leikkerfið.

En a.m.k: Burtu með Eyjólf. Ég meina, Bjarni Fel gæti gert betur.


mbl.is Ljótur skellur Íslands í Liechtenstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Englendingar lélegir

Haha, ótrúlega lélegir.


Vandamálið er í Englandi, að liðin í 1. deild og neðar verðleggja leikmenn sína ALLTOF dýrt. Liðin í Úrvalsdeildinni eiga því erfitt með að kaupa enska leikmenn nema þá sem þeir ala upp sjálfir. Því kaupa liðin erlenda leikmenn, sem eru bæði ódýrir og góðir.

 

Og síðan eru vandamál, því ungir enskir leikmenn, sem eitthvað er varið í, vaxa ekki á trjánum. Englendingar eru orðnir feitir og latir. Og þeir fáu, sem meika það, rotna núna í neðri deildunum,nema einstakir leikmenn, sem meika það.


Og jafnvel, þó þeir komist á bekkinn eða jafnvel í liðin, fá þeir ekki að spila nóg til að verða betri og betri. Því verða bestu ensku leikmennirnir bara miðlungsleikmenn í samanburði við bestu leikmenn margra annarra þjóða.

En ok, Englendingar eiga samt 20--30 ágætis leikmenn. En sumir þeirra eru ekki valdir í landsliðið, því þar ræður Ubermuppet ríkjum, McClaren, sem er að mínum dómi ekki nógu goður til að stjórna KR.

Þetta fer að minna á íslenska landsliðið. Það dugir ekki að velja góða leikmenn í liðið, ef þjálfarinn er lélegur. En verra er, þegar góðir leikmenn eru ekki valdir í liðið, því þjálfarinn er idíót.

 


mbl.is Rússar lögðu Englendinga, 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nýtt "kalt stríð" í uppsiglingu?

Kommúnistaríkin, Rússar  og herskárri múslimaríkin virðast vera á góðri leið með að mynda formlegt bandalag gegn USA og Vesturlöndum, rétt eins og átti sér stað í Kalda stríðinu forðum.


Þetta kemur svosem ekki á óvart.  Lönd afturhalds, einræðis og "andvestrænna" samfélagsgilda hljóta að spyrna við fótum til að verja sig gegn ágangi bandarískra samfélagshátta...eða falla.


Og nú eru bæði Rússland og Kína það efnahagslega sterk, sérstaklega Kína, að þau geta leyft sér að leika stórveldi.


mbl.is Putin segist standa með Íran í kjarnorkudeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök hjá Eggert

Hehe, það var vitað frá upphafi, að Freddie yrði meira eða minna meiddur og stöðug vandræði. Jájá, og fyrir 70.000 pund á viku, c.a.. Ég væri sáttur við að fá 70.000 pund á viku í laun fyrir að liggja á bekk hjá sjúkraþjálfara.


Þarna keypti Eggert köttinn í sekknum.


mbl.is Eggert hefur áhyggjur af Ljungberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband