Þriðjudagur, 16. október 2007
Prentfrelsi á Íslandi?
Jæja, ok. En hvaða lönd eru neðst?
"Kúba, Íran, Túrkmenistan, Norður-Kórea og Erítrea."
Þetta hlýtur að vera mikil gleði fyrir sósíalistana. Þarna eru fjögur vinaríki þeirra og síðan Eritrea. Ætli þetta verði tekið upp á næsta flokksfundi VG?
![]() |
Blaðamenn án landamæra setja Ísland í fyrsta sætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Hahaha
Hræsni?
![]() |
Brot Skífunnar á samkeppnislögum staðfest í héraðsdómi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Vitnað í Churchill
Í hans sporum myndi ég frekar vitna í önnur orð Churchills:
Kona (man ekki hvað hún heitir): "Winston, ef ég væri konan þín, myndi ég setja eitur í te-ið þitt".
Churchill: "Ef þú værir konan mín, myndi ég drekka það".
Þetta kvót er miklu betra
![]() |
McCartney leitar huggunar í orðum Churchill |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Stöð 2 týndi rétti sínum
En miðað við okrið á Stöð2 og Sýn (svo ekki sé talað um Enska boltann á Sýn), hef ég enga samúð með þessu fyrirtæki.
![]() |
Stöð 2 leitar réttar síns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Bannaður í Kína?

Annar þeirra hefur löngum haft mikla ánægju af því að tala illa um mig, en sér til mikillar "ánægju" komst hann ekki inn á http://hvala.blog.is í Kína og hefur því haft lítið úr að moða til árása á mig síðustu dagana. Þ.e. Kínverjar hafi áttað sig á spillandi áhrifum mínum og bannað síðuna! Og RUV líka bannað í Kina, eða er hann bara að bulla eins og venjulega?
Mig grunar þó, að tæknin sé að stríða, því ég átta mig ekki á, af hverju Kínverjar ættu að setja mig á bannlista. Og Spongebob hafi bara tekið sér "skáldaleyfi" í þessu.
En gaman að þessu samt!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Fyrsta stórmót vetrarins
Haustmót Taflélags Reykjavíkur 2007 - MP mótið 2007
Sunnudaginn 21. október kl. 14:00 hefst Haustmót Taflfélags Reykjavíkur - MP mótið 2007. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót TR. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti TR og er það flokkaskipt. Það er öllum opið og eru skákmenn hvattir til þátttöku í þessu fyrsta stórmóti vetrarins. Mótið er styrkt af MP fjárfestingabanka.
Teflt verður í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, í skákhöllinni Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum og eru góð verðlaun í boði í öllum flokkum. Alls verða tefldar 9 skákir í hverjum flokki. Í efstu flokkunum verður teflt í lokuðum 10 manna flokkum, en í neðsta flokki verður teflt eftir svissnesku kerfi.
Hægt er að tilkynna þátttöku í netfangið taflfelag@taflfelag.is eða í síma 895-5860 (Ólafur Ásgrímsson).
Skákstjóri er hinn gamalreyndi og síungi Ólafur S. Ásgrímsson. Hin eina og sanna Birna sér um veitingar.
Lokaskráning í A og B flokk lýkur laugardaginn 20. október kl. 20.00.
Valið verður í A-flokk eftir alþjóðlegum FIDE stigum, en í aðra flokka eftir íslenskum stigum.
Dagskrá Haustmótsins er þessi:
1. umferð: Sunnudag 21. október kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 24. október kl.19.30
3. umferð: Föstudag 26. október kl.19.30
4. umferð: Sunnudag 28. október kl.14.00
5. umferð: Miðvikudag 31. október kl.19.30
6. umferð: Föstudag 2. nóvember kl.19.30
7. umferð: Sunnudag 4. nóvember kl.14.00
8. umferð: Miðvikudag 7. nóvember kl.19.30
9. umferð: Föstudag 9. nóvember. kl.19.30
Verðlaun í A-flokki:
1. verðlaun kr. 100.000
2. verðlaun kr. 60.000
3. verðlaun kr. 40.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2008
Verðlaun í B-flokki: 1. verðlaun kr. 20.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2008
Verðlaun í C-flokki: 1. verðlaun kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2008
Fyrirkomulag: A- og B- flokkur eru lokaðir 10 manna flokkar þar sem allir tefla við alla. C-flokkur er opinn flokkur þar sem tefldar eru 9 umferðir eftir Svissnesku kerfi. Ef þátttaka fer yfir 50 verður C-flokkur gerður að lokuðum flokki og opnum D-flokki bætt við. Í því tilfelli verða verðlaun í C-flokki þau sömu og í B-flokki.
Tímamörk: 1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.
Þátttökugjöld:
3.000 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (4.000 kr. fyrir aðra)
1.500 kr. fyrir félagsmenn TR 15 ára og yngri (2.000 kr. fyrir aðra).
Stjórn T.R.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)