Henry á Egilsstöðum?

Og með honum fjórir eða fimm núverandi Arsenal leikmenn. Þetta er eina skiptið sem ég hefði óskað þess að búa á Egilsstöðum.
mbl.is Franska landsliðið veðurteppt á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölþreifni

Var Binga kunnugt um fjölþreifni sjálfstæðismanna? Heyrði hann það frá Gróu á Leiti? Eða las hann það í Tímanum 1971?


En amk; hér er semsagt orð Binga á móti orðum sjálfstæðismanna, sem harðneita framhjáhaldi.


Hvor ætli sé að plata?


Eða kannski var einhver að plata Binga?


mbl.is Björn Ingi: Þreifingar fóru fram af hálfu sjálfstæðismanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Britney Cole?

Alltaf sama ruglið með þennan vandræðaungling Ashley Cole, eða Cashley, eins og hann er kallaður.


En að þessi söngkona sé rugluð líka, það vissi ég ekki fyrr en núna.
mbl.is Erfitt að finna rétta daginn fyrir getnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Don Alfredo hefnir sín

Jæja, eftir að hafa verið snubbaður af heilbrigðisráðherra, sem er nánasti bandamaður gamla góða Villa borgarstjóra, rís Don Alfredo upp á afturfæturnar og safnar vopnum sínum.


Æjá, hann kallar bara saman "gamla gengið" og "ræður nýliða". Og gamla mafían er komin saman aftur undir hugmyndafræðilegri ásjónu guðföðurins, Don Alfredo.


Og þetta er maðurinn sem skrifaði um skák í Tímann á sínum tíma.
mbl.is Alfreð Þorsteinsson hafði samband við Dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að horfast í augu við fortíðina

Það var fyrir 100 árum síðan, að tyrkneskur herforingi sendi bréf til Íslands og spurðist fyrir um hversu margir múslimar búi á Íslandi og hvert hlutfallið væri á milli síta og súnni múslima.


Um það leyti voru hér flakkarar á ferð, menn sem kölluðu sig Armena og sögðust vera að safna fyrir ofsótta kirkju sína.


Um svipað leyti hófust fyrir alvöru ofsóknir Tyrkja gegn Armenum og í þeirri hrinu féll óheyrilegur fjöldi fólks, flestir saklausir borgarar, sem Tyrkir tóku af lífi án dóms og laga. Hér átti sér stað þjóðarmorð og finnst mér eðlilegast hjá Tyrkjum, að játa á sig glæpinn, eins og Þjóðverjar gerðu í stríðslok 1945 og áfram, heldur en að berjast áfram fyrir því, að halda augunum lokuðum.

Ég var að koma frá Tyrklandi í gær og átti ég þar góða tíma. Ég þekki sögu Tyrkja nokkuð og ber virðingu fyrir þessari þjóð, sem að mörgu leyti er mjög merkileg.

En þetta atriði get ég ekki skilið. Þetta gerðist fyrir 100 árum. Kominn tími til að viðurkenna söguna eins og hún gerðist samkvæmt traustustu heimildum.


mbl.is Tyrkir kalla heim sendiherra sinn í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband