Laugardagur, 30. desember 2006
Ný skoðanakönnun um fylgi flokkanna
Ríkisútvarpið greinir frá í kvöld frá nýrri skoðanakönnun um fylgi flokkanna, (viðbót; komið á mbl.is líka) annars vegar í Reykjavík og hins vegar á landsvísu. Samkvæmt niðurstöðum hennar fær Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meiri hluta í borginni, 8 borgarfulltrúa. Samfylkingin bætir við sig 2% og fengi einn fulltrúa til viðbótar, VG héldi sínu en bæði Framsóknarmenn og Frjálslyndir detta úr borgarstjórn.
Hugsanlega fara framsóknarmenn niður í logum vegna ráðningarmálanna frægu, en mér finnst það nú engu að síður ódýrt. En ég átta mig ekki á, hvað Samfó hefur afrekað til að bæta við sig 2 prósentustigum, og Frjálslyndir til að fá þó 4% fylgi, hugsanlega úr hópi þeirra innfæddra, sem búa í Fellahverfi.
Ríkisstjórnin stendur afar tæpt á landsvísu, ekki síst þar eð Framsókn er á niðurleið. Finnst mér líklegast, að þar komi til ósannfærandi formaður. Svo segir í frétt RUV:
Rétt rúmlega helmingur þátttakenda í könnuninni styður ríkisstjórnina. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi á landsvísu, tæp 38% - 4 prósentustigum meira en í síðustu kosningum. Samfylkingin er með 24% - 7 prósentustigum minna en fyrir tæpum fjórum árum. Vinstri grænir eru með tæp 19% sem er tæplega tvöfalt meira fylgi en í kosningunum. Þá hefur Frjálslyndi flokkurinn bætt sig um rúm þrjú prósentustig frá kosningum, í 11%. Framsóknarflokkurinn nýtur minnst fylgis eða tæplega 9% en var með tvöfalt meira fylgi í alþingiskosningunum 2003.
Þetta kemur í raun ekki á óvart. Samfylkingin fer eðlilega niður í logum, en heldur þó merkilega miklu fylgi. Það kæmi mér þó ekki á óvart, þótt VG færi yfir Samfó í kosningunum, eða stæði um það bil jafnt að vígi. Framsókn er að hverfa af vettvangi og Frjálslyndir eru komnir 2 prósentustigum yfir þá grænu. Þar virðast Frjálslyndir græða á innflytjendamálinu, en Framsóknarflokkurinn tapar sennilega á lélegum formanni og einhverju andleysi, ásamt því að XB virðist eiga í erfiðleikum með að fóta sig á breyttu svelli stjórnmálanna.
En a.m.k., þá virðist næsta ríkisstjórn annað hvort verða núverandi stjórnarandstaða eða þá, að annar sósíalistaflokkurinn gengur inn með Sjálfstæðisflokknum í trausta meiri hluta stjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 30. desember 2006
Þetta er sjúkt!
Hvurslags eiginlega vitleysisgangur er hér á ferðinni. Kona komin á ellilífeyrisaldur ákveður að lífga upp hjá sér ellina með því að eignast barn...og eignast tvíbura.
Þetta er sjúkt.
![]() |
67 ára spænsk kona eignast tvíbura |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 30. desember 2006
Össur lætur gamminn geisa
Sá Össur Skarp í dag, þar sem hann kíkti í heimsókn á Friðriksmótið í skák. Ég var eitthvað annars hugar og tók ekki eftir honum, svo hann kallaði á mig og spurði, hvort ég heilsi ekki vinstri mönnum? Ja, það fer nú eftir því hvaða vinstri menn eiga í hlut; en Össur er ágætur, þó auðvitað eigi hann að fylgja Hrafni Jökulssyni yfir í Sjálfstæðisflokkinn.
En af þessu tilefni langar mig að reyna að endursegja brandara, sem Össur á að hafa sagt sjálfur, og um sjálfan sig.
Málavextir voru þeir, að Össur var víst staddur í París á umhverfisráðstefnu, í þá gömlu góðu daga. Með honum var aðstoðarmaður hans, (held það hafi verið Árni Páll síhleraði), og fóru þeir út á veitingastað á milli funda og pöntuðu sér skjaldbökusúpu. Tíminn líður og ekkert gerist, og þjóninn gefur þeim vín hússins í sárabætur fyrir töfina. En tíminn líður, og líður, og ekkert gerist. Össur sendir þá Árna fram í eldhús, að athuga hvað sé eiginlega að gerast.
Árni gengur að hurðinni og sér inn um "kýraugað" hvað kokkurinn er að reyna að hrista skjaldbökuna út úr skelinni, en ekkert gengur. Aha, þar er komin skýringin á töfinni. En Árni hefur ráð undir hverju rifi og gengur inn, réttir kokkinum saxið, leggur skjaldbökuna á borðið og biður kokksa að vera tilbúinn að höggva hausinn af skjaldbökunni. Jája, kokkurinn hlýðir þessum skrítna útlendingi.
Árni treður þvínæst puttanum á kaf í þarminn á skjaldbökunni og rekur hún þá hausinn undan skelinni og kokksi heggur hann af. Hann spyr síðan Árna, hvar hann hafi lært þetta trix. Árni tekur kokkinn með sér að dyrunum, bendir á Össur og segir:
"Sérðu þennan feita þarna með Amish skeggið?"´
"já" svarar kokksi.
"Hvernig heldurðu", bætir Árni nú við, "að ég hnýti á hann þverslaufuna?"
Ég varð bara að segja þennan. Það er auðvitað algjör snilld, að stjórnmálamaður skuli þora að segja svona um sjálfan sig! Klappbroskall fyrir húmoristann með Amish skeggið.
Laugardagur, 30. desember 2006
Bush + Byrgið

![]() |
Bush fluttur í byrgi vegna óveðurs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 30. desember 2006
Þegar Saddam gerðist njósnari CIA!
Saddam Hussein Abd al-Majid al-Tikriti fæddist 28. apríl 1937 í bænum Al-Awja, nærri borginni Tikrik, inn í fjölskyldu súnníta. Faðir hans, Hussein Abd´ al-Majid stakk af þegar Saddam var enn í móðurkviði og skömmu síðar lést eldri bróðir hans, 13 ára, úr krabbameini. Móðir hans gat ekki séð ein um strákinn og sendi hann til bróður síns, Khairallah Talfah, sem ól Saddam upp fyrstu þrjú árin. Móðir hans giftist þá aftur, manni að nafni Ibrahim al-Hassan, og eignaðist með honum þrjá sonu; en a.m.k. tveir þeirra sitja nú í fangelsi í Írak, fyrir þátt sinn í ógnarstjórn Saddams. En Hassan var vondur við Saddam litla, sem flúði tíu ára gamall til Talfah, sem ól hann upp og veitti honum síðar dóttur sína að konu.
Talfah þessi var maðurinn sem bjó til Saddam. Hann var ákafur og róttækur þjóðernissinni, af þeim hópi sem stutt hafði Möndulveldin í seinni heimsstyrjöld og staðið m.a. að byltingu í Írak, en Bretar höfðu barið hana niður og komið Hashemítum aftur til valda, þ.e. af þeirri ætt, sem nú ríkir í Jórdaníu. Saddam var um tvítugt þegar hann gekk í Baath flokkinn, flokk þjóðernissósíalista, sem höfðu þá stefnu að sameina Araba í einskonar þjóðernislegt kalífadæmi; nýtt stórveldi, sem staðið gæti uppi í hárinu á Vesturlöndum og öðrum óvinum.
En síðan komst Nasser til valda og byltingaraldan barst víða um Miðausturlönd. 1958, ári eftir inngöngu Saddams í Baath-flokkinn, gerðu herforingjar, undir stjórn Abdul Karims Kassims byltingu og steyptu Faisal II Hashemíta. Þeir frændur voru af ýmsum ástæðum andvígir hinni nýju stjórn og var Saddam þátttakandi í tilraun til að ráða Kassim af dögum, með stuðningi Bandaríkjanna, enda hafði Kassim farið að halla sér að Sovétríkjunum. Saddam særðist á fæti, en komst undan til Tikrit, með aðstoð CIA (!!) og egypskra leyniþjónustumanna. Hann komst til Sýrlands og þaðan áfram til Beirút, þar sem hann fór í þjálfun hjá CIA, og áfram til Egyptalands. Þá, 1959, var Saddam Hussein útsendari CIA og þarmeð Bandaríkjastjórnar. En fljótt skipast veður í lofti. Þetta merkilega mál er rakið hér, lesendum til glöggvunar, en um ævi og störf Saddams má einnig fræðast á Wikipediu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 30. desember 2006
Saddam allur
Jæja, ætli ég verði ekki pólítískt ranghugsandi og segi: Gott á hann. Hann átti ekkert betra skilið. Ég skil hreinlega ekki, hvernig menn geta verið andsnúnir því, að Saddam, þessi erkimorðingi, taki út refsingu sína. Hann á enga miskunn skilda, enda sýndi hann sjálfur miskunnarleysi og grimmd, og leyfði sonum sínum að lyfta sér yfir lögin og fremja skelfilega glæpi án ábyrgðar.
![]() |
Saddam Hussein tekinn af lífi í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)