Laugardagur, 23. desember 2006
Sálarinnar Herkúles
Rakst á þennan link; "MUST SEE" fyrir alla f. c.a. 1976 og fyrr:
http://www.youtube.com/watch?v=CspceZOp9tA;
vekur upp gamlar minningar? En nóg af þessu þarna á Þútúba
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. desember 2006
Stríð
Íslamistar í Sómalíu vilja nú stríð, skv. RUV. Þeir skora nú á múslima hvarvetna að koma til landsins og taka þátt í heilögu stríði gegn Eþíópíu, sem gerði sér það eitt til saka, að hafa sent einhverja hermenn til Sómalíu til að verja lögleg yfirvöld landsins gegn uppreistarher öfgasinnaðra múslima. En veltum þessu aðeins fyrir okkur:
1. Saga Sómalíu er hvorki ýkja fögur né friðsamleg. Áður var þetta land tvær nýlengur: Breska Sómaliland og Ítalska Sómaliland. Þær sameinuðust í eitt ríki, Sómalíu, sem var jafnan fátækt og lítt iðnvætt. Tíminn leið og ekkert breyttist til batnaðar. Herinn gerði þá uppreist og kom spilltum rugludöllum úr valdastóli og mál skánuðu nokkuð, en ekki nóg. Herforingjarnir tóku nú að berjast innbyrðis og norðurhluti landsins klauf sig frá suðurhlutanum. Síðan kom stríð við Eþíópíu, þar sem Sovétmenn studdu sósíalistana í Addis Abeba, en Bandaríkin einræðisherrann í Mogadishu. Það hefur varla komið mörgum á óvart!
2. Þegar púðurreyknum slotaði, var landið stjórnlaust. Valdamiklir menn skutu hverjir aðra og að lokum stóðu eftir stríðsherrar, sem hver um sig taldi sig ráða á ákveðnu svæði og skeyttu í engu um hina valdalitlu ríkisstjórn landsins, sem í raun var aðeins til skrauts. Sómalía var hrunin, svona svipað eins og Afghanistan eftir brotthvarf sovéska hersins.
3. Þá komu íslamistar til sögunnar; hópar múslimar sem sáu, að svona mætti ekki ganga lengur. Markmið þeirra var að sumu leyti göfugt, þ.e. að stilla til friðar í landinu, en vafasamt að öðru leyti (að mínu mati), þ.e. með því að stofna íslamskt ríki í ætt við Talabana-Afghanistan. Þeir náðu smám saman tökum á landinu og ráða því nú nánast öllu. Bráðabirgðastjórn, sem samansett er allskonar mönnum úr sitt hverri áttinni og eftirlifandi stríðsherrum, er starfandi, en ræður aðeins yfir litlu svæði og á þar í vök að verjast. Hún væri vísast fallin nú, hefði eþíópski herinn ekki farið í sunnudagsgöngu yfir landamærin, að sumu leyti með vilja og vitund nágrannaríkjanna.
En mig langar að spyrja:
Hvort er betra að hafa stríðsástand ríkjandi, þar sem anarkí ræður, með meðfylgjandi ofbeldi og réttindaskorti þegnanna, eða íslamskt heittrúarríki, sem gæti jafnvel orðið miðstöð terrorista, eins og reyndin var í Afghanistan?
Persónulega efast ég um, að "íslamistar" í Sómalíu hefðu opnað land sitt fyrir allskonar lýð frá nágrannalöndunum, komið upp þjálfunarbúðum etc., hefðu þeir unnið stríðið án vandkvæða. Ég held, að markmið þeirra hafi í raun verið göfug, þ.e. að koma á friði, þó slíkt hafi jafnan haft ákveðnar aukaverkanir. Hafa ber í huga, á hinn bóginn, að Talibanar höfðu göfuð markmið í fyrstu; koma kommúnistum úr landi og koma síðan á friði í landinu. En þá tóku aukaverkanirnar að koma í ljós; svipaðar aukaverkanir hefðu vísast komið fram í Sómalíu. Ef af tveimur slæmum kostum hefði ég frekar viljað búa í Talibanaríki en stríðsherraríkinu, sem var til staðar í Sómalíu fram á síðustu misseri. EN...það færi reyndar allt eftir því, hversu róttækir íslamistar í Sómalíu yrði í túlkun sinni á Kóraninum og "hadith". Hvaða "sunna" myndu þeir fylgja?
Innrás Eþíópíu hefur, að mér sýnist, gert íslamista róttækari en áður; nú eru þeir ekki aðeins að berjast gegn rugluðum stríðsherrum, heldur einnig innrásarher. Komist þeir til valda í landinu öllu gætu þeir tekið upp sharía að hætti Talibana, en ekki t.d. Súdana eða Saudi-Araba. Þá væri hugsanlega betur heima setið en af stað farið.
Laugardagur, 23. desember 2006
Flóttamenn frá Kúrdistan á Íslandi?
Ég tjáði mig hér áðan um þá frétt, að Saddam Hussein hafi viljað útrýma Kúrdum. En þá datt mér í hug lítinn undirkafla, sem forðum átti að vera hluti af doktorsritgerðinni minni, meðan ég hafði tíma til að veita mér slíkar rannsóknir. Ritgerðinni minni var síðan stolið, og afritunum með, í innbroti á skrifstofu mína, en í skúffum fann ég einstaka undirkafla, m.a. þennan, sem hér birtist.
Flakkararnir
Hinn 24. maí 1904 skrifaði íbúi á Eyrarbakka með merkilegar fréttir: Í morgun komu hingað 3 útlendir flakkarar, og er haft eftir þeim, að þeir hafi gengið hingað með ströndum fram sunnan úr Reikjavík. Þeir litu mjög aumkunarlega út og kváðust vera Armeningar." Menn þessir höfðu víst komið hingað sex saman en skipt sér í tvo hópa og farið sitt í hvora áttina um landið. Meðferðis hefðu þeir gylltkrossaða betlibók á brjóstinu" og færu síðan um betlandi með slíkum harmkvælum, að landsmenn sjái sér ekki fært annað en það, að veita þeim nokkra aura, gistingu, mat og jafnvel klæðnað. Bréfritari undraðist framgang þeirra, en að hans sögn höfðu þeir náð verulegum árangri í betli sínu. Hann taldi, að þessa menn skyldi varast þar sem enginn vissi hverjir þeir væru og auk þess gætu þeir flutt hingað sjúkdóma. Það væri furðulegt, að nú þegar Íslendingar væru hættir að betla -enda vilji landsmenn ekki taka þátt í svoleiðis- skuli útlenskir betlarar fá að leika hér lausum hala og sanka að sér krónum í bók sína. Að vísu væri þess óskandi, að greiin" fengju eitthvað fyrir sinn snúð, úr því þeim var hleypt hingað inn, en sú hætta væri fólgin í þessu ferðalagi þeirra, að konur og börn væru oft ein heima og væru varnarlaus gegn þessum mönnum. Síðan þyrfti að huga að því, hvort von væri á fleirum.
Getur ekki þessi betliför dregið dilk á eftir sér? Er óhugsandi, að ferð þessara kumpána verði til að íta undir aðra og fleiri samverkamenn þeirra að heimsækja okkur í sömu erindagerðum, ef þessum gengur vel? Á þá að gera upp á milli greianna? Nei, víst ekki, nei. Bara filla gamla Ísland með útlendri flökkuþjóð og ... líði".
Því þurfi að koma í veg fyrir, að svona hyski kæmist hingað til landsins.[1]
Árið eftir varð síðan vart við grunsamlegar mannaferðir í ýmsum sveitum landsins. Ókunnugir menn sáust fara um landið, tveir og tveir saman í hópum. Landsblöðin kvörtuðu yfir vergangi þeirra og sumir sveitamenn óttuðust, að þeir væru vopnaðir. Þeir hefðu með sér einskonar leiðarbók á íslensku, þar sem beðið væri um aðstoð við menn þessa, sem hefðu mátt þola miklar raunir. Þeir hefðu náð góðum árangri, fengið hér frían kost og peninga, en hvað myndi gerast, ef landsmenn skyldu nú neita þeim um hjálp? Myndu þeir ekki taka það með valdi, sem þeir þarfnist? Af því stæði hætta, sagði einn bréfritari í grein í Þjóðólfi, því konur og börn væru oft ein heima. Slíkt hefði jafnvel gerst, þar sem hann hafi verið gestkomandi. Þeir voru í upphafi gleiðir mjög, en þegar þeir fengu ekkert í aðra hönd, breyttist svipur þeirra. Drógu þeir jafnvel fingur þvert yfir barka, eins og þegar sauðkind er slátrað og höfðu í frammi ógnanir. Góðu heilli voru 10 karlmenn staddir á bænum, svo engir eftirmálar urðu. En hvað hefði ein veikbyggð kona getað gert? Verst væri síðan, að í þessum tveimur mönnum felst vísir til stóreflis förumannaflokks af sama þjóðerni hér um landið að fáum árum liðnum, og það eitt út af fyrir sig ætti að vera nægilegt til þess, að flækingum þessum væri veitt eptirtekt í tíma."[2]
Stjórnvöld sáu sér nú ekki annað fært en að grípa í taumana. Í bréfi stjórnarráðs Íslands til sýslumanna landsins og bæjarfógetans í Reykjavík var málum þeirra gerð skil. Flakkararnir þættust vera Armeningar" og færu hjer um land á vergangi."
Með því að slíkt flakk eða betl útlendra manna hjer á landi á engan hátt má eiga sjer hjer stað, eruð þjer, herra sýslumaður (herra bæjarfógeti), umbeðinn að láta taka umrædda utanríkisbetlara fasta, ef þeir koma fram í lögsagnarumdæmi yðar, eptir atvikum láta þá sæta ábyrgð fyrir athæfi þeirra og að minnsta kosti vísa þeim burtu úr landinu. Kostnaður við flutning þeirra burtu hjeðan af landi greiðist úr landsjóði, svo framarlega sem þeir eru eigi sjálfir þess megnugir að greiða þennan kostnað.[3]
Í janúarbyrjun 1906 fékk sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu pata af að tveir útlendingar væru á flakki í uppsveitum Borgarfjarðarsýslu og mundu vera væntanlegir vestur yfir Hvítá." Skrifaði hann hreppstjóra Hvítársíðuhrepps og fól honum að leita þessa menn uppi, taka þá fasta og flytja til Reykjavíkur. Hélt hreppstjóri af stað 13. janúar og daginn eftir fann hann flakkarana í Hálsasveit. Hreppstjóri beið þeirra í Hvítársíðuhreppi við fimmta mann. Grunaði flakkarana hvað bjó að baki og gerðust þeir honum erfiðir, þóttust hvorki geta gert sig skiljanlega né skilið það hann sagði og meðan hann var að hafa saman menn til að flytja þá, stukku þeir frá honum upp í Þverárhlíð, en þar tók hreppstjóri þá 17. s.m. og flutti þá til Borgarness."[4] Frá Borgarnesi voru þeir færðir til Reykjavíkur með gufubátnum. Við komuna þangað voru þeir yfirheyrðir af Halldóri bæjarfógeta Daníelssyni, fyrrum þingmanni og bónda í Borgarfirði. Sögðust þeir heita Abraham Simon og Zebrael Abraham frá héraðinu Armeníu í persneska Kúrdistan.
Meðan á yfirheyrslu þeirra stóð, renndi Laura inn til Reykjavíkur með kyndugan karl innanborðs. Að sögn bæjarfógeta héti hann Johan Gabriel og væri armenskur prestur frá Kúrdistan, hingað kominn til að hitta samstarfsmann sinn í Hafnarfirði. En sökum þess, að enginn armenskur prestur var þekktur í þeim bæ og enginn til að annast manninn og sjá honum farborða, ákvað bæjarfógeti að vísa honum úr landi.[5] Halldóri bæjarfógeta virðist þó ekki hafa komið til hugar, að samband kynni að vera milli Gabriels og hinna tveggja Armenanna, sem þá sátu í varðhaldi í Reykjavík. Sama dag og Gabriel yfirgaf landið, tilkynnti bæjarfógeti stjórnarráðinu um brottvísun hinna tveggja í öðru bréfi. Líklegt verður að telja, að þessi týndi starfsbróðir Gabriels hafi verið annar hinna handteknu frá Borgarfirði.
Undir venjulegum kringumstæðum hefði það verið gustuk, að hjálpa þessum mönnum, þar eð Armenar voru þá, eins og svo oft áður, í miklum hremmingum. Hluti Armeníu var þá í Rússlandi, annar hluti í Tyrkjaveldi og sá þriðji í Persíu. Alls staðar áttu þeir undir högg að sækja og ekki síst hjá Tyrkjum, sem um þetta leyti tóku að ofsækja hina vantrúuðu Armena. En Íslendingar gátu alls ekki leyft þessum mönnum að þvælast í sníkjuferðum um landið, ekki síst þar eð framkoma þeirra hafði ekki verið mjög til eftirbreytni. Það var því kannski við hæfi í þessu samhengi, að herforingi frá Tyrklandi, Ismail Hakki Bey, skyldi skrifa íslenskum stjórnvöldum í apríl 1906 og spyrjast fyrir um íbúafjölda landsins, fjölda múslima og hlutfall sunni og shíta múslima í hópi þeirra. Hannes Hafstein ráðherra virðist hafa verið hvumsa við þessu undarlega erindi herforingjans -sem virðist hafa verið háttsettur, því aðeins mikilvægir menn, yfirleitt háttsettir herforingjar og embættismenn, höfðu leyfi til að bera titilinn Bey eða Beg- og svaraði því kurteisislega, að Ísland væri fámennt og múslimalaust land.[6] En þrátt fyrir múslimaleysi, virtist enginn skortur vera á Armenum í byggðum landsins.
Síðari hluta árs 1907 urðu Snæfellingar varir við tvo einkennilega menn sem flæktust um héraðið. Sýslumaður lét handtaka mennina, með skírskotun til bréfs stjórnarráðsins frá nóvember 1905 og flytja þá til Reykjavíkur. Kváðust þeir heita Mahon og Petrus og vera Armenar. Þeir höfðu meðferðis rúmlega 370 krónur, sem þeim hafði áskotnast á ferðum sínum um landið.[7] Líklegt er, að menn þessir hafi verið þeir sömu og spurðist til á Austfjörðum í þann mund, sem armensku flakkararnir í Borgarfirði voru handteknir. Í bréfi sýslumanns Suður-Múlasýslu til stjórnarráðsins kom þá fram, að tveir Armenar væru á flækingi um sýsluna. Þeir gengju milli bæja og nytu gestrisni Íslendinga og borguðu þá aðeins fyrir kostinn, þegar þess væri beinlínis krafist. Betl þeirra væri þó ekki eins mikið og menn teldu: Hið einasta betl sem mjer var sagt af þeim, var beiðni um gjafir handa kirkju þeirra, og er líklegt að það hafi verið yfirskyn." Sýslumaður vissi til að þeir hafi átt peninga, en varla háar upphæðir.[8] En upp frá þessu varð ekki vart við fleiri Armena á Íslandi, ef fólk af slíku þjóðerni hafði þá komið hingað á annað borð.
Málavextir voru þeir, að danska myndablaðið Hver 8. Dag" birti grein 12. júlí 1903 um, að til Danmerkur væri kominn hópur fólks, sem þættist hafa orðið fyrir illri meðferð af Kúrdum eða Tyrkjum, og gengu fyrir hvers manns kné og beiddust beininga." Það komst síðan upp, að fólk þetta var ekki af ætt Armeninga, heldur beitikindur úr Litlu-Asíu, sem höfðu það fyrir atvinnu, að fara sníkjandi land úr landi og látast vera Armeningar, sem hefðu orðið að flýja land sitt." Það væri orðin sérstök atvinnugrein fólks þar suðurfrá, að fara í betliferðir til Norðurálfu og snúa síðan heim með fulla vasa fjár. Sérstakir menn útbúi handa þeim leiðarbækur og riti kynningu á þeim og þjáningu þeirra á máli innfæddra. Að þessu sinni hefði fólkið komið frá Sýrlandi og höfðu aldrei orðið fyrir neinum trúarofsóknum." Þjóðólfur greindi frá þessari frétt í maí 1904 og benti þá á, að samskonar lið væri nú hingað komið, með betlibók á brjósti og sníkjur í frammi.[9] En hafa ber í huga, að stærsta samfélag Armena utan Armeníu var í Jerúsalem, sem þá var undir stjórn Tyrkja, en taldist stjórnunarlega séð til Sýrlands. Fólk þetta gat því hafa verið að segja satt um það, að vera Armenar og eiga í vök að verjast gegn Tyrkjum, en hafa síðan skreytt frásagnir sínar til að líta aumkunarlegar út, en efni stóðu til.
Sýrlenskar" betlikindur voru þó ekki einu austrænu flakkararnir á Íslandi. Í febrúar 1909 tilkynnti sýslumaður Skaftafellssýslu stjórnarráðinu, að flækingur hefði verið á ferðalagi í grennd við Vík í Mýrdal. Hann segðist heita Veseli Vaslefi frá Rússlandi og hefði komið til Íslands í atvinnuleit. Taldi sýslumaður, að flakkarinn væri líklega strokumaður og mjög dularfullur að flestu leyti. Hefði hann verið tekinn til yfirheyrslu, en fyrir rjettinum ljet hann enga ástæðu uppi fyrir ferðum sínum. Enda þótt að jeg hafi ekki sjeð mjer fært að taka nefndan flæking fastan, þá hef jeg þó grun um að ekki sje allt með felldu um ferðalag hans og hefi því sent 2 menn með hann suður."[10] Samkvæmt dómsmálabók Skaftafellssýslu hafði Vaslefi komið til Reykjavíkur á enska togaranum Mosel og yfirgefið skipið sökum sjóveiki. Hann hefði enga vinnu fengið í bænum og því haldið út á landsbyggðina í atvinnuleit. Vaslefi fékk þó vinnu á togara og vann síðar almenn störf. Að öðru leyti sagðist hann ekkert vita um ferðir sínar, fátt muna eftir atvikum og kunna litlar tíðir á flakki sínu. Dómur lögregluréttar Skaftafellssýslu hljóðaði upp á brottvikningu Vaslefis frá landinu. Sýslumaður vildi þó bæta því við, að sá útlendingur sem hjer ræðir um, virðist eptir framkomu sinni annaðhvort simulera fábjána, eða vera fábjáni."[11] Sök Rússans var sú, að þekkja ekki til staðhátta á Íslandi og geta því ekki sagt til um ferðir sínar. Hann hafði fengið vinnu á breskum og síðan íslenskum togara og virðist honum því ekki hafa verið alls varnað. Virðist Sigurður sýslumaður Eggerz, sem síðar varð bæði ráðherra og forsætisráðherra Íslands, hafa verið fljótur til fordómanna, þegar á skaftfellsku skipbrotsfjörurnar rak útlending, sem frábrugðinn var Íslendingum. En hann var ekki sá eini, sem slík viðhorf bar í brjósti. Íslendingar virðast, á þessum tíma, hafa tekið vel hingaðkomu nákominna þjóða, einkum norrænna manna og Breta, þar eð þær væru þekktar og menn vissu, að þeir væru að öllu jöfnu friðsamt og duglegt fólk. En þegar kom að framandi þjóðum úr Austurvegi, hvort þeir væru Rússar eða af öðrum toga, tók að teygjast dálítið á þjóðernisstrengjunum, sem ákveðnir menn léku þá á við hvurn sinn fingur.
[1] 7.9.: Flakkarar", Ingólfur 12. júní 1904. Sjá einnig; Gunnar M. Magnúss: Það voraði vel 1904, 145-146.
[2] S.B.: Ógeðslegur flakkaralýður", Þjóðólfur 27. okt. 1905.
[3] ÞÍ. Stj. Ísl. I, db. 1/600: Stjórnarráð Íslands til sýslumanna (bæjarfógeta) landsins, 28. nóv. 1905.
[4] Sama heimild: Sýslumaðurinn í Mýra og Borgarfjarðarsýslu til stjórnarráðs Íslands, 9. júlí 1906.
[5] Sama heimild: Bæjarfógetinn í Reykjavík til stjórnarráðs Íslands, 24. febrúar 1906.
[6] ÞÍ. Stj. Ísl. I, db. 1/679: Ismail Hakki Bey.
[7] ÞÍ. Stj. Ísl. I, db. 1/600: Sýslumaður Snæfellsnes og Hnappadalssýslu til stjórnarráðs Íslands, 14. desember 1907 og 24. janúar 1908.
[8] Sama heimild: Sýslumaður Suður-Múlasýslu til stjórnarráðs Íslands, 25. janúar 1906.
[9] Armeningar??", Þjóðólfur 27. maí 1904.
[10] ÞÍ. Stj. Ísl. I, db. 1/600: Sýslumaður Skaftafellssýslu til stjórnarráðs Íslands, 16. febrúar 1909.
[11] Sama heimild: Eftirrit af dómsmálabók Skaftafellssýslu, 16. febrúar 1909.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. desember 2006
Útrýming Kúrda?
Jæja, svo Saddam var ekkert að fara í felur með, að hann vildi leysa "kúrdavandamálið í eitt skipti fyrir öll: "Lokalausn kúrdavandamálsins". Hann leitaði þar á Tyrki með von um aðstoð, enda eru Tyrkir vanir menn í slíkum "lausnum", enda hafa Tyrkir, í gegnum aldirnar, útrýmt tugum þjóða og þjóðabrota, a.m.k. smám saman, þó mér vitandi hafi þeir aldrei smalað þeim saman á einn stað og hrundið af stað "lokalausn", eins og nasistarnir reyndu. Tyrkir reyndu þó forðum að losa sig við Armena og tókst að höggva stór skörð í armensku þjóðina. Slíkur var blóðþorsti Tyrkja það skiptið, að talað er um "genocide" hvað þetta snertir. En þetta skiptið vildu Tyrkir ekki taka þátt í svona óþokkaskap; eðlilega ekki, jafnvel þó þeir væru þá með horn í síðu Kúrda, sem þá, eins og nú, stefndu að stofnun Kúrdistans, sjálfstæðs ríkis Kúrda á samnefndu landsvæði, sem í dag fellur undir a.m.k. Írak, Tyrkland og Íran, og einhver smáhéruð í Sýrlandi (ef ég man rétt).
Í mínum huga eru Kúrdar með merkilegri þjóðum í Miðausturlöndum. Nokkuð efni hefur komið út á íslensku um málefni þeirra; ég man eftir bókum og lokaritgerðum, en einnig a.m.k. tveimur greinum í tímariti "kommúnista", Rétti. Einar Olgeirsson skrifaði aðra þeirra, held ég, og ég held að hin hafi verið þýdd. Á netinu má m.a. finna ágætis umfjöllun um Kúrda í Wikipediu og t.d. Washington Post.
![]() |
Hussein bað Tyrki um aðstoð við útrýmingu Kúrda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)