Færsluflokkur: Bloggar

Aumingja Kíki. Kíki hefur kvef. Sækið lækni. Þurrkaðu af fótunum!

Jahérna. Kíki býr þá í New Jersey. Hinn stórskemmtilegi páfagaukur Jonna í Ævintýrabókunum er því ekki svo mikill uppspuni eftir allt saman. Kannski engin opinberun, en páfagaukar virðast sumir hverjir hafa þessa eiginleika. En það er saga um norskan...

"Kona fundin í Landmannalaugum"

Merkilegt. Já, konur finnast víða. Ég fann t.d. tvær konur í morgun á Olís-stöðinni við Álfheima. Spurning hvort það komi ekki á forsíðu Moggans fljótlega. En hér er verið að tala um að ákveðin kona, sem leitað var að, hafi fundist. Ég veit ekki um hvaða...

Ísland - Noregur

Ef Norðmenn væru ekki svona lélegir sjálfir, myndi ég spá íslenska liðinu stórtapi. Læt mér nægja að spá 3-1 eða 2-0 fyrir olíufurstana.

Dólgar

Svona menn á bara að setja á bannlista. Drusla þeim heim og síðan setja í bannlista, þannig að þeir geti ekki flogið næstu x-árin. Það ætti að kenna mönnum að haga sér.

Til hamingju Hannes

Þetta hlýtur að vera met! Hann hefur ótrúlegt tak á íslenskum skákmönnum, tapar eiginlega aldrei, nema fyrir einum ónefndum ræfli, en gerir það sem betur fer reglulega!

Heimskulegt hjá Bretum.

Nær hefði verið að tvöfalda, eða þrefalda, fjölda sekkjapípuleikara sem spila myndu í Moskvu. Það yrði næg hefnd fyrir Georgíu. Síðan mætti jafnvel fá Davíð Sundmann til að spila eitt eða tvö lög:

Hamborgari níska Skotans!

Er það ekki Skotinn þarna, hvað heitir hann nú aftur.... Scrooge McDonald?

Óttast Eið Smára?

Ja, Eiður er bestur okkar manna. Það fer ekki á milli mála. En hann getur varla talist í góðri leikæfingu, því miður. En vonandi smellur þetta hjá okkar manni á morgun og hann sýni Norðmönnum hvar Íslendingar kaupa

Krónan og bensínverðið

Bensínverðið hlýtur því að lækka samstundis við minnstu styrkingu krónunnar? Eða er það ekki?

Kínamúrinn hrynur

Þetta mál er nú hreint með ólíkindum. Þetta var slæm sending frá risanum í austri. En geta erlendir borgarar bara labbað hérna inn, stofnað fyrirtæki, hneppt fólk í þrældóm, rekið fyrirtækið í þrot og síðan stungið bara

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband