Þriðjudagur, 12. júní 2007
Eiður til West Ham?
Gæti orðið ágætis endastöð fyrir Smárann. Sé hann ekki fyrir mér fara til Tyrklands eða annarra svoleiðis landa.
Og hver vill borga gott fyrir Eið Smára? Hann hefur amk ekki hækkað í verði hjá Barcelona.
![]() |
Eiður Smári til sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
París orðin trúuð...eða?
Jæja, allt er nú hægt. Nú er Paris Hilton byrjuð að tala um Guð.
En hvað gera menn ekki, til að reyna að lagfæra ástandið, þegar þeir sitja i fangelsi? En óvíst er reyndar, hversu Guð verður lengi á vörum Parisar, þegar hún kemur út úr djeilinu.
Það er erfitt að átta sig á, hvort Paris sé að nota Guð sem varadekk þarna, eða einskonar fjarvistarsönnun, eða hvort hún virkilega meinar það, að láta loksins gott af sér leiða, þegar hún kemur úr prísundinni.
Ef þetta er einlægur ásetningur Parisar, verður maður að taka ofan. Gott ef stelpan hefur lært sína lexíu á þessu máli.
![]() |
París segist ætla að hætta heimskupörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. júní 2007
Væl
Michael Moore hefur lítið gert annað hin síðustu ár en að áreita Bandaríkjastjórn. Síðan svarar stjórnin fyrir sig, að hans mati, og fer fram á skýringar við, að hann hafi heimsótt land, sem er í banni hjá stjórnvöldum. Og þá verður Moore fúll. Svona haga smákrakkar sér.
Vissulega er þetta tómt bull hjá Könunum að halda Kúbu áfram á svarta listanum. En meðan það er Könum ólöglegt að ferðast til Kúbu, verða menn að hlýta lögunum. Sama hver á í hlut.
Michael Moore ætti bara að halda kjafti þetta skiptið og veita umbeðnar upplýsingar. Lög eru lög, þótt þau séu vitlaus.
![]() |
Moore sakar Bandaríkjastjórn um áreitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. júní 2007
Gáfaða ljóskan í viðtali?
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 11. júní 2007
Arfur kommúnismans
Þetta eru svosem engar fréttir, í sjálfu sér. (Nema auðvitað það, að A-Þýskaland sé enn til; betra hefði verið að segja "austurhluta Þýskalands") Allir, sem vilja vita, geta auðveldlega lesið sér til um, hvernig stjórn kommúnista í A-Þýskalandi gjöreyðilagði þetta frjósama og iðnvædda landsvæði.
Og þetta ríki, A-Þýskaland, var nú sælustaður íslenskra kommúnista, m.a. Hjörleifs Guttormssonar og Svavars Gestssonar, já, og margra annarra, sem í dag kalla sig sósíalista.
En lausnin á vandamálinu er ekki endilega sú, að skipta um nafn; hætta að kalla sig kommúnista og segjast nú vera sósíalistar. Vandamálið er, að þrátt fyrir nafnbreytingu hafa skoðanirnar svosem ekki breyst það mikið. Jú, vissulega hafa þessir menn skorið verstu meinbugina af kommúnismanum, sem var ein róttækasta útfærsla sósíalismans á sínum tíma.
Þessir íslensku aðdáendur A-Þýskalands voru áður róttækir sósíalistar, félagar í Sósíalistaflokki Íslands og síðar Alþýðubandalaginu. En þeir voru þrátt fyrir það sósíalistar; kommúnisminn var ákveðið þroskaferli (eða vanþroskaferli), sem róttæklingar hér og landi og víða annars staðar gengu í gegnum, með skelfilegum afleiðingum.
En þeir voru sósíalistar og eru það enn. En úr því þeir höfðu vanist á róttækni, hvers vegna gátu þeir ekki bara gengið skrefinu lengra og aflagt sósíalismann með öllu, úr því komið hafði í ljós, að hann væri ónothæfur og færði aðeins hörmungar yfir þær þjóðir, sem illu heillu hefðu fengið hann yfir sig.
Reynslan hefur sýnt, að sósíalisminn gengur ekki upp. Menn hafa reynt að framfylgja honum með allskonar leiðum, út frá alls konar forsendum. En niðurstaðan er alls staðar sú sama: fátækt, einræðisstjórnir, hörmungar, efnahagsglundroði, óstjórn, osfrv.
Hefði ekki verið nær fyrir íslenska kommúnista, að þvo þennan ósóma algjörlega af sér og gerast bara framsóknarmenn?
![]() |
Verri kjör í A-Þýskalandi en í vesturhlutanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. júní 2007
Alltaf sama sagan
Ég skil ekki, að ef innflytjendur slíkir vilji ekki að börn þeirra tileinki sér siði heimamanna, eiga þeir bara að snauta sér heim. Hvers vegna eru þeir þá að búa í Noregi, ef þeir vilja ekki vera hluti af norsku samfélagi??
![]() |
Myrti 12 ára gamlan son sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 11. júní 2007
Bush og fangafrelsun
Ætti Bússi ekki frekar að hefja leikinn á því, að frelsa þá, sem sitja í leynifangelsum Bandaríkjamanna hist og her um heiminn, oft fyrir litlar eða engar sakir? Já, eða breyta þessum fáránlegu "ólögum", að hægt sé að handtaka hvern sem er, brjóta á honum öll mannréttindi og beita harðræði, aðeins ef einhverri löggu einhvers staðar grunar að hann sé terroristi?
Æ, maður er algjörlega hættur að taka mark á því sem Bússi segir. Þetta er nú meiri steypan.
![]() |
Bush telur að frelsa eigi búlgarska hjúkrunarfræðinga úr haldi í Líbýu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 11. júní 2007
Hvort fellur FRAM eða KR?

![]() |
KR enn án sigurs eftir 3:1 tap gegn ÍA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 10. júní 2007
Guðni, Framsókn og mistökin
Innri samstaða flokksmanna brast, segir Guðni. En af hverju?
Getur verið, að flokksmenn (12.000) hafi sumir hverjir ekki treyst forystunni, tveimur síðmiðaldra köllum, eða stefnu flokksins? Eða kannski logaði allt í deilum innanflokks og hinir óánægðu kusu aðra flokka.
En rétt er, þetta er framsóknarmönnum að kenna. Og því ætti Guðni að segja af sér, en ekki fá stöðuhækkun.
![]() |
Innri samstaða framsóknarmanna brast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 10. júní 2007
McLaren
Glæsilegt strákar.
Þegar ég byrjaði að fylgjast með Formúlunni varð McLaren mitt lið og Hakkinen minn maður. Fyrst var þetta svona bara "smá" áhugi, en þegar ég var staddur í fræðilegum erindagjörðum í Slóvakíu rétt fyrir aldamótin tókst David Coulthard, öðrum ökumanni McLaren, að parkera bílnum sínum beint fyrir utan gluggann hjá mér á hótelinu (ok, nokkrum hæðum neðar!).
En semsagt, ég skoðaði bílinn nokkrum sinnum og sá svo niður í glugganum þegar DC kom sjálfur á staðinn. Eða mér sýndist það amk.
Þá var ég formlega orðinn McLaren maður. Hélt þó áfram með Hakkinen, síðan Raikkonen og nú get ég ekki gert upp á milli ALonsos og Hamiltons. Sá síðarnefndi er nýliði en alveg firnagóður. Kannski maður láti hann hafa forgang yfir Alonso.
En McLaren tekur þetta loksins og það léttilega.
Og megi Ferrari, KR og Tottenham fara í ysta hafsauga.
![]() |
McLaren að stinga af? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)