Miðvikudagur, 15. ágúst 2007
Arsenal nánast öruggt áfram
Arsenal sigraði Sparta frá Prag 2-0, eða 0-2, því leikið var í Prag.
Fabregas skoraði fyrra markið á 71. mínútu, Hleb annað markið þegar komið var framyfir venjulegan leiktíma.
Arsenal er nú nánast öruggt áfram í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
![]() |
Fabregas og Hleb tryggðu Arsenal sigur gegn Prag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. ágúst 2007
In the ghetto
Nú eru 30 ár síðan Elvis dó...eða ekki dó, eins og sumir trúa enn í dag. En í mínum huga er Elvis látinn og nú eru þrír áratugir síðan.
Og af því tilefni mun dóttir hans, hin 39 ára gamla Lisa Marie Presley (áður Jackson!) stíga á "svið" með pabba gamla og dúetta hann, eins og stundum gerist við gamlar upptökur.
En ég óttast helst að maður hætti að fíla lagið hér eftir.
![]() |
Lisa Marie Presley syngur með föður sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. ágúst 2007
Ný verksmiðja í Eyjafirði
![]() |
90 ný störf með nýrri aflþynnuverksmiðju í Eyjafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. ágúst 2007
Össur hlær að Framsókn
Jæja, þá fer Össur hamförum og spjallar á skemmtilegan hátt um leiðara Þorsteins Pálssonar um Björn Inga Hrafnsson og framsóknarmenn. Ekki fara of harkalega að viðkvæma blóminu, segir hann við Þorstein, sem á víst að hafa, skv. Össuri, tætt Binga í sig með háði og teygt hann út á alla kanta.
Hann segir síðan:
Gamalreyndur stjórnmálarefur einsog Þorsteinn á að vita að ungir stjórnmálamenn hafa villukvóta. Þeim má verða á án þess að vera settir í opinberan gapastokk hundrað þúsund Íslendinga. Hann verður líka að hafa í huga að innan Framsóknarflokksins er það lenska að skipta um skoðun á fárra vikna fresti, og aka seglum eftir vindi.Það er einfaldlega genetískur ágalli Framsóknarmanna - sem Þorsteinn kynntist allra núlifandi Íslendinga best þegar hann var með þeim í ríkisstjórninni sællar minningar.
Björn Ingi er ekki sá eini sem ber þessar pólitísku erfðir galopinna og síbreytilegra skoðana. Bjarni Harðarson hélt eldmessu á Alþingi í vor til að hvetja landið og miðin til að fylkja sér um niðurskurðartillögur Hafró - og uppskar lof fyrir hugrekkið. Varla hafði hann kastað mæðinni þegar hann andstuttur kom aftur í fjölmiðla og ásakaði hugrakkan sjávarútvegsráðherra um að hafa með ákvörðuninni brugðist þjóðinni! Guðni Ágústsson var varla búinn að jafna sig eftir að hafa verið varpað á dyr ríkisstjórnarinnar þegar hann fór hamförum gegn nýju ríkisstjórninni út af stöðu efnahagsmála - sem hann bar sjálfur alla ábyrgð á.
Framsóknarmenn eru bara svona. Við því er ekkert að segja - og þjóðin sér um að verðlauna þá með sínum hætti.
Æ, hvað þetta er allt saman skemmtilegt. Nú er Össur kominn í stjórn og þá snýst hann í sama hringinn og framsóknarmenn eru hér sakaðir um. En það er líka "í lagi", því menn skipta gjarnan um skoðanir á málum eftir því hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu. En hrikalega er gaman að lesa Össur karlinn, burtséð hvort menn séu sammála honum eða ekki. Hann er skemmtilegur, bæði live og sem penni; sér í lagi á miðað við að vera krati!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. ágúst 2007
Góð kaup Mourinhos
Þarna er einfaldlega á ferðinni besti hægri bakvörður í heimi. Svo einfalt er það.
Og hægri bakvarðarstaðan var höfuðverkur Tjelsí, en þar vantaði sárlega sterkan leikmann. Tjelsí verður bara sterkara fyrir vikið.
![]() |
Daniel Alves til Chelsea fyrir 3,2 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. ágúst 2007
Góð úrslit í enska boltanum
Æjá, ekki gaman að "glóta", en hvað er annað hægt? Eftir miklar væntingar er Spurs down in flames.
1. leikur: tap gegn Sunderland 1-0 á útivelli!
2. leikur: tap gegn Everton 1-3 á heimavelli!
Yndislegt!
Þriðjudagur, 14. ágúst 2007
Á ekki að bjóða Apríl til Íslands í apríl?
Amk myndu íslenskir karlmenn mæta í hrönnum á Laugaveginn strax eftir hljómleikana!
![]() |
Hleypur um berrössuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 14. ágúst 2007
Gott að búa í Kópavogi
![]() |
Rafmagnslaust í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. ágúst 2007
13 spora kerfið
Jæja, þá er það opinbert. Nýtt atriði hefur bæst við 12 spora kerfið. Þrettánda sporið er semsagt þetta:
Þrífa klósett annarra.
Spurning hvort SÁÁ taki þetta ekki upp fljótlega?
![]() |
Lindsay Lohan þrífur klósettið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 13. ágúst 2007
Misskilningur hjá Stefáni Pálssyni
Það var auðvitað rétt hjá Stefáni að mótmæla, enda stöndum við Framarar saman í því að mótmæla því, að íslenska ríkið flytji hingað erlenda aðila, sem þjálfa eigi "kiler instict" Víkinga og innleiða hjá þeim baráttuþrekið. Þessir Norður-Víkingar eru auðvitað málalið, sem á að reka úr landi.
En misskilningur Stefáns fólst í, að dátar þessir væru á leiðinni til Íraks. Þeir eru auðvitað á leiðinni í Fossvoginn
![]() |
Hernaðarandstæðingar mótmæla varnaræfingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aulahúmor | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)