Nýr vegamálastjóri

mun amk halda vegunum hreinum.


En án alls gríns virðist þetta hinn frambærilegasti maður.


mbl.is Hreinn nýr vegamálastjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli atvinnubílstjóra

Ég verð nú að segja að mér finnst hrikalegt að horfa upp á lögguna með hjálma og skildi eins og í verstu óeirðum utanlands.


Ég skil atvinnubílstjóra vel, en er þó ekki mjög hrifinn af því að valda þessum spjöllum. Ég skil lögguna vel að vilja framfylgja landslögum.

En nú spyr ég; hvar er samgönguráðherra? Hefur hann yfirleitt áhuga á einhverju öðru en göngum á Norðurlandi?


mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hommfengi

Er þetta ekki nýyrði, "hommfengur"? Minnir á heitfengur!


Þessu má snúa á ýmsan annan hátt:

"KR-fengur" um íbúa Vesturbæjar
"Kratafengur" um hrokafulla menntamenn og menningargúrúa
"Illur fengur" segir sig sjálft

osfrv.


mbl.is „Hommalegra en hommalegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurobandio

Jæja, einhverjir fávitar úti í heimi fá kikk yfir nafni íslensku flytjendanna, Eurobandio! Alltaf gaman að sjá, í Fréttó í dag held ég, ummæli ólæsra manna sem ganga um með stólpípu í Jónasnum og þykja vera einhver númer.


Hitt er svo annað mál að ég efast stórlega um að Eurobandið komist upp úr undanrásunum.

Ég hef nú ekki heyrt eitt einasta lag úr keppninni, nema það íslenska, en ég spái samt San Marínó öruggum sigri.


mbl.is Flestir veðja á Rússa í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geta ekki grisað í hverjum leik

Stundum snýst jafnvel lukkan gegn Liverpool... já, það kemur einstaka sinnum fyrir Wink
mbl.is Benítez: Gríðarleg vonbrigði en við eru færir um að sigra á Stamford Bridge
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meikar sens

Gjörsamlega.
mbl.is Leiðinleg störf setja heilann á sjálfstýringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílstjórar abbast upp á Abbas

Æ, ég varð bara að segja þetta.


En hverju ætli þeir hafi verð að mótmæla núna?


mbl.is Bílstjórar stefna að Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Særandi?

Rak augun í þetta:

"Hins vegar samþykkja notendur bloggsins skilmála þess efnis að þeir miðli ekki á bloggsvæðum sínum efni sem er ólöglegt, feli í sér áreiti eða hótanir eða sé særandi. "


Ef eitthvað sem einhver segir á blogginu særir mig, á ég þá að kvarta og væla í Moggamönnum? Þá væri heil herdeild manna í að svara slíkum kvörtunum.

En síðan er spurning: sagði Skúli eitthvað sem var ósatt?


mbl.is Óánægja með lokun umdeilds bloggs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Batnandi manni er best að lifa?

Jæja, Ólafur vildi ekki hitta Peres, en hittir nú Abbas. Batnandi manni, þ.e. Ólafi, er best að lifa. En sniðugt að senda Dorrit burtu á meðan, svo þau myndu ekki hittast, Ísraelinn og Palestínumaðurinn! :)


En kannski hefði "summit" DM og MA getað orðið upphafið að íhlutun Íslendinga í málefni Miðausturlanda.


Og síðan furðar mig að Elías Davíðsson skuli ekki þetta skiptið vilja leggja fram pening fyrir einhverja sem hefðu áhuga á að "hafa hendur í hári" Abbasar.


mbl.is Abbas kominn til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnavopna-Alí

Merkilegt að sjá að þessi blóðþyrsti glæpamaður skuli væla yfir því að fá ekki að velja sér sjálfur fangabústað sinn.

Þetta er maður sem hefur fyrirgert öllum rétti sínum til mannlegrar reisnar. Hann má mín vegna deyja eins og hundur.


mbl.is Efnavopna-Alí í hungurverkfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband