Mun Mugabe sitja áfram?

Já. Alveg sama hvernig fer mun Mugabe sitja áfram með einhverjum ráðum. Brjálaðir einræðisherrar hætta ekki í embætti þó þeir tapi kosningum, það segir sig sjálft.
mbl.is Óráðið hvort Tsvangirai gefi kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólarsamban

Gaman að fara í sunnudagsbíltúr á þessu yndislega sumri.
mbl.is Árekstur í krapa og snjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barcelona "hrokið í stöð"?

Jæja, Barcelona loksins "hrokið í stöð", eins og Gunzó orðar það svo skemmtilega. En svolítið seint í grassinn gripið núna. Real Madrid meistari og Barcelona vísast að fara í undankeppni Meistaradeildarinnar.

En ætli Mourinho komi ekki í vor, "the special one". Hver veit? Eða kannski járnkarlinn Guardiola taki bara við.


mbl.is Loksins hrökk Barcelona í gang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innbrot hjá Stasi

Kannski náðu þjófarnir að stela týndu skýrslunum um Svavar Gestsson og hinna kommastrákana?  Þær hljóta að hafa verið í skrifborðinu hjá Mielke!
mbl.is Brotist inn hjá Stasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmt

Ekki er ég nú par ánægður með þessi úrslit. Mér er svo sem sama um Stoke þannig séð, vonaði þó eiginlega að félagið kæmist upp vegna fyrri tengsla Íslendinga, en það spilar á hinn bógin leiðinlegasta fótbolta í heimi undir stjórn Tony Pulis. Óþolandi að fá svoleiðis lið upp í úrvalsdeildina.

Í annan stað hryggir það mig að sjá Leicester falla. Ég var í námi í Leicester fyrir um 15 árum síðan og tengdist þá félaginu dálítið.  En Refirnir koma bara upp að ári, en samt.... áfall.


mbl.is WBA og Stoke City í úrvalsdeildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðug regla

Kannski ætti að prófa að taka svona upp hér? En hvað ætli Sóley myndi segja við svoleiðis? Wink

En er þetta ekki bara import frá Saudi-Arabíu?


mbl.is Konum í Malasíu verði meinað að fara einar til útlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Snýst allt um peninga á þessum bæ, en ekki fótbolta. En jæja, kannski hefði maður gert það sama í hans sporum.

 


mbl.is Flamini sagður vera búinn að semja við AC Milan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifi kommúnisminn!

Þetta nær auðvitað ekki nokkurri átt! Hvað ætli komi þá næst? Málfrelsi?

Þá verður nú ekki mikið eftir af sósíalismanum á Kúbu.


mbl.is Einkatölvur löglegar á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsingaleikur

Fyrir brunaútsöluleikmennina og fyllt upp með nokkrum sem eiga að vera áfram.

Þarna er semsagt brunaútsöluliðið eiginlega allt mætt til leiks til að sýna sig væntanlegum kaupendum. Vantar bara þennan feita þarna, Ron eitthvað.

Jahérnahér.


mbl.is Eiður Smári í leikmannahópi Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stupid American

Ótrúlega heimskur gaur. Hélt hann virkilega að hann kæmist upp með þetta?


mbl.is Reyndi að innleysa 360 milljarða dollara ávísun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband