Íslenska leyniþjónustan

Íslenska leyniþjónustan, hin meinta, kemur fyrir í sjónvarpsþáttunum "Chuck", en þar eiga í hlut vondir menn sem verða sér úti um upplýsingar og selja hæstbjóðanda.

En nú er íslenska fótboltaleyniþjónustan komin til skjalanna. Jú, njósna skal um leiki og leikskipulag mótherja Íslands.

Fjórir valinkunnir menn eru sendir út af örkinni til að safna heimildum.

En bíddu; þetta liggur allt fyrir. Það eru til reiðu allir leikir þessara liða hin síðari ár,eða eiga að vera. Ætti að vera auðvelt að afla sér þeirra. Ólafur hefði bara getað horft á leikina sjálfur.

En KSÍ menn þurfa auðvitað að vera fínir á þessu núna þegar HSÍ var að meika það í Kína. En feis it! Við getum ekki djakk í fótbolta.

 


mbl.is Menn Ólafs njósna um mótherjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefði nú verið miklu betra fyrir ríkið

að senda Árna Johnsen bara til vinnu á Breiðdalsvík en að borga með honum á Kvíabryggu.

Einnig hefði meðalvirði íslenskra listaverka verið töluvert hærra.

En hitt er svo annað mál að Árni kallinn er allur að koma til, enda búinn kostum sem fáir eða engir aðrir þingmenn hafa; þó það séu aðallega gallarnir sem menn muna eftir.

 


mbl.is Líkir vinnu í veitingahúsi við fangelsisvist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðmerkingasvindl

Ég hef nokkrum sinnum þurft að versla pinkupons í Okurbúllunni 10-11. Ekki nóg með að verðlagið sé hátt, heldur hefur ekki verið samræmi milli verðs á hillu og strimli.

Nú verður maður bara að fara yfir strimlana í hvert skipti, af prinsipp ástæðum.

Og þar fyrir utan vantar ótrúlega oft verð á ýmsar vörur í hillum.


mbl.is Verðmerkingum ábótavant í matvörubúðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slaka á

Þetta kemur allt með kalda vatninu. Óþarfi að láta Ól stíga sér til höfuðs.


mbl.is Logi Geirsson: Veit ekki hvað er að þessum manni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Pólland í Sovétríkjunum?

"Svo gæti farið að Lettland, Eistland og Litháen og önnur fyrrverandi sovétríki, þar á meðal Pólland, dragi sig úr Eurovision sem fram fer í Moskvu á næsta ári. Ástæðan er framganga Rússlandshers í Georgíu."

Ég er kannski farinn að kalka, en ég man ekki eftir að Pólland hafi nokkru sinni tilheyrt Sovétríkjunum, þó landið hafi verið undir hæl Kremlarfursta frá seinni heimsstyrjöld og tilheyrt Rússlandi að hluta fyrir byltinguna. 

En auðvitað eiga ríki bara að sniðganga Evróvision í Moskvu. Helst sem flest A-Evrópuríki!


mbl.is Eurovision í Moskvu í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýradóp og brasilískir handrukkarar

Vísast hafa krókódílarnir verið varðhundar - passað geymslustað dópsins, svo því yrði ekki stolið.

Síðan kæmi manni ekki á óvart þó einhverjir hafi hreinlega falið góssið í krókódílsmaga.

En þarna eru semsagt á ferðinni brasilískir handrukkarar.

 


mbl.is Fíknefnalögregla haldlagði krókódíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verða Rússar enn brjálaðri

Og fara að flytja "hjálpargögn" til afganskra og iranskra skæruliða í staðinn...LoL
mbl.is Einn milljarður dala í neyðaraðstoð til Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grái fiðringurinn

Já, alveg pottþétt.

En ég heyrði vísu forðum um gráa fiðringinn:


Í tafli lífsins telst ég peð
tapa stundum eða vinn
En getur skeð, ég gangi með
gráa fiðringinn?


mbl.is Með grasið í skónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pylsa og kók?

Ég fór í göngutúr áðan ofan úr Ármúla og endaði niðrí Dugguvogi. Á leiðinni gekk ég fram hjá pulsuvagni þar sem auglýst var, að pylsa og kók væri þjóðarréttur Íslendinga.

Það er greinilega munur á "pylsu og kók(aíni)" og "pylsu og hassi".

 

 


mbl.is Fíkniefni falin í pylsudósum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir Steingrímur Joð núna?

c_netlogga_vgÞegar hægt verður að klámstilla tölvuna.

Nú hlýtur hann að fara all in á það, að koma á netlöggu.


mbl.is Explorer með „klámstillingu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband