Laugardagur, 6. september 2008
"Kona fundin í Landmannalaugum"
Merkilegt. Já, konur finnast víða. Ég fann t.d. tvær konur í morgun á Olís-stöðinni við Álfheima. Spurning hvort það komi ekki á forsíðu Moggans fljótlega.
En hér er verið að tala um að ákveðin kona, sem leitað var að, hafi fundist. Ég veit ekki um hvaða reglur gilda á Mogganum, ef nokkrar, en í venjulegri íslensku er notaður greinir í slíkum tilvikum.
Konan...
Íslenskukunnátta blm. Moggans er heilt yfir litið frekar slök, miðað við að þessir aðilar fá greitt, og það vísast þokkalega, fyrir skrif sín. Þessi ákveðna grein er þó, merkilega nokk, nokkuð vel yfir meðallagi, svona við fyrstu sýn. En titillinn er andlit greinarinnar.
En í dag les maður hverja hálf-íslensku fréttina á fætur annarri. Íslenskufræðingra hljóta að fá áfall að lesa þessi ósköp. Þetta er óvenju slæmt núna, t.d. er fréttin um Zlatan og 108 millurnar fyrir neðan allar hellur, ekki aðeins stafsetningar- og málfræðivillur, heldur einnig efnisvillur.
En úr því Mogginn hefur ekki hærri standard en þetta...er það ekki mitt vandamál.
![]() |
Kona fundin í Landmannalaugum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 6. september 2008
Ísland - Noregur
Ef Norðmenn væru ekki svona lélegir sjálfir, myndi ég spá íslenska liðinu stórtapi.
Læt mér nægja að spá 3-1 eða 2-0 fyrir olíufurstana.
![]() |
Upphitun hafin í miðborg Ósló |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 6. september 2008
Ást í meinum
![]() |
Nunnuástir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 6. september 2008
Dólgar
Svona menn á bara að setja á bannlista. Drusla þeim heim og síðan setja í bannlista, þannig að þeir geti ekki flogið næstu x-árin.
Það ætti að kenna mönnum að haga sér.
![]() |
Skildir eftir í Málaga vegna dólgsláta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Til hamingju Hannes
Þetta hlýtur að vera met!
Hann hefur ótrúlegt tak á íslenskum skákmönnum, tapar eiginlega aldrei, nema fyrir einum ónefndum ræfli, en gerir það sem betur fer reglulega!
![]() |
Hannes Hlífar Íslandsmeistari í 10. sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 5. september 2008
Heimskulegt hjá Bretum.
Nær hefði verið að tvöfalda, eða þrefalda, fjölda sekkjapípuleikara sem spila myndu í Moskvu. Það yrði næg hefnd fyrir Georgíu.
Síðan mætti jafnvel fá Davíð Sundmann til að spila eitt eða tvö lög:
![]() |
Söngur sekkjapípunnar þagnaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Hamborgari níska Skotans!
Er það ekki Skotinn þarna, hvað heitir hann nú aftur....
Scrooge McDonald?
![]() |
Hamborgari níska Skotans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Til Íslands með vörusendingu frá útlöndum
Já, sagan segir líka að fyrstu Svíarnir hafi komið hingað til lands með vörusendingu frá útlöndum. En síðan hafi þeir sest hér að og fjölgað sér.
![]() |
Risakönguló í Reykjanesbæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 5. september 2008
Óttast Eið Smára?
Ja, Eiður er bestur okkar manna. Það fer ekki á milli mála.
En hann getur varla talist í góðri leikæfingu, því miður. En vonandi smellur þetta hjá okkar manni á morgun og hann sýni Norðmönnum hvar Íslendingar kaupa jólaölið.
![]() |
Norðmenn óttast Eið Smára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 5. september 2008
Krónan og bensínverðið
![]() |
Krónan heldur aftur af bensínlækkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)