Fer Britney í leikbann?

Jæja, ef löggumönnum og lyfjatindátum þeirra tekst að sanna lyfjaneyslu á Britney litlu verður hún vísast dæmt í leikbann -- fær kannski ekki leika við börnin sín í ákveðinn tíma.


EN hún getur auðvitað prófað - eins og flestir aðrir sem falla á lyfjaprófi - að segjast hafa tekið inn fæðubótarefni.


mbl.is Britney gert að gangast undir lyfjapróf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er að duga eða drepast

Stórleikur í kvöld. Arsenal og Sevilla á Emirates Stadium. Arsenal hefur verið að spila vel upp á síðkastið og er í efsta sæti Úrvalsdeildarinnar, en Sevilla er með firnasterkt lið -- eiginlega má segja, að Sevilla sé sterkari á pappírnum, ekki síst þar sem vörnin hjá Arsenal er ekki að meika það núna, þegar Gallas er meiddur og Gilberto verður vísast að fylla þar inn í aftur, eða Senderos, sem ekki hefur virkað verulega sannfærandi.


En a.m.k. verður þetta vonandi skemmtilegur leikur.


Kannski maður setjist niður fyrir framan sjónvarpið í kvöld...gallinn er, að ég er sjónvarpslaus! En Hótel Mamma er með Sýn og forláta sjónvarp, þannig að málið reddast (ef Sýn sýnir á annað borð þennan stórleik umferðarinnar, maður verður að tékká því líka).


En a.m.k.: þá er það Breiðholtið í um kvöldmatarleytið.

 


mbl.is Gallas, Eboue og Lehmann ekki með Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski Eimskip fari þá að borga verkalýðnum betur?

A.m.k. veit maður, að almennir verkamenn, bæði hjá Eimskip og hjá dótturfyrirtækjunum, eru ekkert alltof sælir af launum sínum og skrimta e.t.v. helst með því að taka að sér gríðarlega aukavinnu.


Að vísu hefur þetta víst lagast upp á síðkastið, en betur má ef duga skal og Eimskip virðist nú vonandi hafa efni á því að bæta aðeins ofan á taxtann hjá þeim lægst launuðu.


Fyrirtæki er aldrei betra en ánægja starfsmanna segir til um.


mbl.is Hagnaður Eimskips 1,4 milljarðar á þriðja ársfjórðungi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100 kíló farin

Þetta er athyglivert.


Maður vissi, að þessar magahjáveituaðgerðir hefðu einhverjar afleiðingar, en þetta virðist alvarlegra en maður gerði sér grein fyrir. Það er auðvitað slæmt, ef slík vanlíðan fylgir. En hafa ber í huga, að með slíkri aðgerð, sem aðeins skal gera í ítrustu nauðsyn, er verið að "svindla" á líkamanum.


Sjálfur hef ég misst um fimmtán kíló síðan í apríl - fyrir utan massabreytingu - og hefur mér aldrei liðið svona vel. Á afmælisdaginn minn, 3. apríl, notaði ég buxur nr. c.a. 46, eða jafnvel 48. Þegar þetta er skrifað er ég í gallabuxum nr. 34. Og mér líður stórkostlega. Ekkert Herbalife, ekkert sull. Maður bara borðar betur, hreyfir sig meira -- og notar Slendertone beltið (reyndar aðeins frá því í júlí)!


Lykillinn er kolvetnisjöfnun. Forðast kartöflur, pasta, hrísgrjón og svoleiðis (ég hef reyndar svindlað óþarflega mikið á brauðinu!!) "ruslfæði". Og þrátt fyrir þetta, hef ég ekki verið í neinu svelti.


Það er semsagt hægt að léttast, án þess að "svindla". Er það ekki best þannig?


mbl.is Hefur losnað við 100 kíló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilega að verki staðið

Ég er stoltur af Leicestermönnum að hafa gert þetta. Ég bjó í Leicester á yngri árum, var þar í námi og hef sterkar taugar til liðsins.


Þarna býr ágætis fólk...og ekki skemmir þetta.


mbl.is Leicester gaf eitt mark í forgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Abbas fagnar 11. september

Jæja, Palestínumenn, bæði Fatah og Hamas, hafa fagnað 11. september hin síðari ár, en sá dagur markar "upphafið að sigrinum á Bandaríkjunum", eins og það er víst orðað.


Og víða um hinn íslamska heim er þessi dagur haldinn hátíðlegur, jafnvel í þeim löndum, sem eiga að vera "vinveitt" Bandaríkjunum og í bandalagi við þau. En meðan Bandaríkin kosta heimastjórn Palestínumanna í Ramallah, halda háskólar Palestínumanna áfram að kynda undir áróður gegn og hatur á Bandaríkjunum.


Og í málgagni Abbasar birtist skopmynd, sem var sérstaklega gerð af þessu tilefni og fyrir málgagnið. Greinilegt að Bandaríkjamenn þurfa að fara að athuga sinn gang, úr því blað, sem stjórnað er frá skrifstofu Abbasar, forseta heimastjórnarinnar, fagnar 11. september og "sigri" Osama bin Laden, bæði grafískt og í orðum.

BinLadenVictoryOverWTC-AlHayat-12-9-2007

Magahjáveituaðgerðir á börnum

Það er hræðilegt að svona þurfi að gerast, að börn fari í "magahjáveituaðgerðir". Nafnið sjálft er eins og það sé tekið að mestu frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða; það hafi orðið að búa til hjáveitu einhvers staðar á Suðurlandinu.


En þetta er alvarlegra mál. Ég þekki unga konu, sem er lágvaxin en var orðin 116 kg. rúm og fór í svona aðgerð og hefur misst 60 kg á frekar skömmum tíma. Líf hennar hefur breyst til batnaðar eftir aðgerðina. En hræðilegt að þurfa að fara í svona aðgerð samt sem áður.


Hvað þá fyrir börn. Hvernig stendur á því, að börn glíma við slík skelfileg offituvandamál? Ruslfæði, vídeó og tölvuleikir í stað hafragrauts, leikja og íþrótta?


Manni verður nánast flökurt að horfa upp á svona lagað vera að gerast, bæði hér og víðar, ekki síst í USA, þar sem offita er orðin stærsta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar. En hitt er svo annað mál, að það er erfitt að vera feitur unglingur. Því fylgir einelti, slæm sjálfsmynd og margskonar erfiðleikar.


En spurning hvort skólarnir þurfa ekki að koma að svona löguðu löngu áður og þá í samstarfi við foreldra?


mbl.is Í offituaðgerð 13 ára og tæp 200 kg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðanmenn lagðir

skak-logo1

T.R. ingar stóðu í ströngu víðar en í Boðsmótinu, en í kvöld fóru einnig fram undanúrslit í Hraðskákkeppni taflfélaga. Vösk sveit Akureyinga kom í heimsókn og eftir nokkrar mínútur féll undirritaður fyrir Rúnari Sigurpálssyni. En lengra komust norðanmenn ekki.  Taflfélagsmenn sigruðu með 52 vinningum gegn 20 vinningum Akureyringa. Í hálfleik var staðan 25 1/2 -  10 1/2.


Umf.T.R.S.A.
142
242
34 1/21 1/2
44 1/21 1/2
551
63 1/22 1/2
751
83 1/22 1/2
933
1051
114 1/21 1/2
125 1/21/2
 5220

 

Árangur einstakra leikmanna var sem hér segir:

T.R.S.A.
Arnar E. Gunnarsson 9 1/2 / 12Rúnar Sigurpálsson 5 1/2 / 12
Snorri G. Bergsson  9 1/2 / 12Arnar Þorsteinsson 5 / 12
Stefán Kristjánsson 8 1/2 / 12Halldór B. Halldórsson 3 1/2 / 12
Dagur Arngrímsson 8 1/2 /12Björn Í. Karlsson 3 / 12
Guðni S. Pétursson 6 / 12Þórleifur Karlsson 2 / 12
Þröstur Þórhallsson 5 1/2 / 6Stefán Bergsson 1 / 12
Jón V. Gunnarsson 4 1/2 /5 
Júlíus L. Friðjónsson 0 /1 

 

Á síðasta ári sigruðu T.R.ingar lið Hellismanna í úrslitum með fáheyrðum yfirburðum og hafa því titil að verja. Sjá nánar frétt á heimasíðu Taflfélagsins.


Ofboðslega lélegir

Derby hlýtur að vera lélegasta liðið, sem spilað hefur í úrvalsdeildinni í mörg ár...jafnvel frá upphafi. Þetta lið fer beint niður...og fer niður í logum gegn Newcastle.

Fyrrverandi "vinkona" vor var frá Derby...hehe, og því óska ég því liði beint niður aftur!
mbl.is Kemst Derby úr botnsætinu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ber ábyrgð á þessu?

Eigum við ekki bara að kenna veðurfræðingunum um þetta eins og venjulega. Enda eru þeir svo uppteknir af því að rífast innbyrðis, að þeir mega ekki vera að því að skaffa okkur gott veður.


mbl.is Kólnar er líður á vikuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband