Hrokagikkir

Leiðindapúkar hafa á síðustu árum verið einkennandi fyrir Chelsea. Menn sem hafa yfir 100.000 pund á viku í laun ættu a.m.k. að nota hluta þess fjár til að læra mannasiði.

 

En Chelsea hefur jafnan haft frekar hliðholla dómara, og Chelseamenn engu að síður rifið kjaft ef þeir eru ekki sáttir við einstaka ákvarðanir, já, í þau hlutfallslega fáu skipti þegar þeir græða ekki sjálfir á mistökum dómara.


Óþolandi lið og einstaka óþolandi leikmenn þarna gera liðið enn meira óþolandi en annars. Vonandi tekur FA hart á kampavínsstrákunum og lætur sérstaklega þetta muppet Terry finna til tevatnsins.


Over and out.


mbl.is Terry ákærður fyrir að grípa í rauða spjaldið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjúklingarnir

Jæja, þá hefst kjúklingatímabilið í enska boltanum, amk hjá Arsenal, sem hefur haft þá stefnu á undanförnum árum, að láta kjúklingana spila í deildarbikarnum.

Svo verður einnig nú.

walrusÍ fyrra felldu börnin Liverpool, Tottenham og fleiri ágætis lið úr úrvalsdeildinni. En nú er það Newcastle, sterkt lið undir stjórn Sam Allardyce, fyrrv. stjóra Bolton, en hann mun vísast stilla upp sínu sterkasta liði gegn kjúklingunum.


En nú verða ný andlit á vellinum í búningi Arsenal. Í markinu verður Lukasz Fabianski, bakverðir Justin Hoyte og Armand Traore, og kannski Nordtveit hinn ungi fái séns í hafsentinum og þá kannski með einum reyndar, Toure eða Senderos, eða bara Gilberto. Á miðjunni verða Lassana Diarra og Denilson, eða e.t.v. Song, sem gæti líka spilað í hafsentnum í stað Norsarans. Walcott mun vísast spila sem hægri kantur, en vinstra megin gæti Diaby eða Eduardo komið inn, eða Randall kannski.

FabianskiFrammi verða Bendtner, hinn efnilegi Dani, og etv. Eduardo eða einhvert barnið.


En spurningin er: munu kjúklingarnir standa uppi í hárinu á stjörnum prýddu liði Newcastle?

Á myndinni til hægri er Lukasz Fabianski, hinn efnilegi markvörður Arsenal.

Ahmadinejad í Columbia -- dónó eða ekki dónó?

OK, Kanarnir voru dónalegir. Um það er varla hægt að deila.


En átti þessi rugludallur eitthvað betra skilið? Átti þetta að koma honum á óvart? Ef hann hefur komið þarna í Columbia og haldið að hann fengi höfðinglegar móttökur er hann gjörsamlega veruleikafirrtur.



En hins vegar á þjóðhöfðingi -- jafnvel rugludallur eins og þessi -- ákveðna virðingu skylda, þegar hann kemur fram í krafti embættis síns. En það er einmitt málið. Hann átti aldrei að fá heimboð í Columbia. En á hinn bóginn er kannski ágætt fyrir skólastjórnendur og nemendur að fá séns til að fá útrás fyrir andúð sína á þessum manni og því helsta sem hann stendur fyrir, svo ekki sé minnst á sumt af því sem hann á að hafa sagt þarna.


Ég hef megnustu óbeit á því, sem þessi maður stendur fyrir. Ég myndi eiga í miklum erfiðleikum með, að sýna lágmarks kurteisi, myndi ég fá hann heim til mín í kaffi. En ég myndi aldrei bjóða honum --- over my dead body.


Frekar myndi ég bjóða a-liði Spurs og Teddy Sheringham í heimsókn en honum.
mbl.is Fjandsamlegar móttökur virtust slá Ahmadinejad út af laginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burtu með stjórnina í Myanmar

Jæja, þá er Bush vaknaður.  Nú þarf hann að bretta upp ermarnar og hnykkla hervöðvana. Spurning að láta herinn æfa sig fyrir árásina á Íran með því að dúndra aðeins á valin skotmörk í Myanmar?


En eins og í Íran hafa úlfar komist til valda yfir hjörðinni. Þó stjórnin í Myanmar sé ekki jafn slæm og sú í Íran, hvorki í mínum huga né flestra annarra þenkjandi manna út frá sjónarhóli vestræns gildismats, þá er hún nógu slæm.


Myanmar er afburða fallegt land. Þar gæti orðið til "nýtt Thailand", æðislegur staður fyrir ferðamenn til að heimsækja. En með þessa kumpána í brúnni er líklegt, að fólk hugsi sig um tvisvar.


En vonandi verða aðgerðir Vesturlanda til að hjálpa til við að koma þessum rumpöldum frá völdum. Farið hefur fé betra.


mbl.is Bush herðir refsiaðgerðir gegn yfirvöldum í Myanmar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er að fara í lýtaaðgerð í fyrramálið

Að vísu bara smávægilega. Ég ætla að láta Dr. Gillette Mach fjarlægja nokkur andlitshár, sem eru farin að valda smá kláða á hinni norræn-hvítu ásýnd minni.


Og þetta hef ég gert reglulega síðan ég var 12 ára.


mbl.is Jennifer Lopez útilokar ekki lýtaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feitletrað

Ofboðslega margar fréttir, sem nú standa á forsíðu mbl.is, eru afar óvandaðar, t.d. of margar stafsetningarvillur, jafnvel í titli, eða hreinlega tóm steypa á ferðinni. En hér, í þessari frétt, er á ferðinni feitletrunarnýjung, þ.e. greinarþýðandi hefur ákveðið að feitletra orð, nöfn og síðan einstaka orð á stangli.


Er þetta það sem koma skal, tilraunastarfsemi eða bara enn eitt klúðrið?


mbl.is Stofnandi Goldsmiths rekinn frá félaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búnað að ræða þetta...en þarf að laga villur

Rekstrarhagnaður þessara félaga nemur ekki þessum umræddu milljónum punda, heldur er þetta sú innkoma, sem félögin hafa, mínus gjöld, af daglegum/hefðbundnum rekstri félagsins.

 

Og

með nýjum sjónvarpssamningi (miklu betri) og endurfjármögnun, sem var afar hagstæð og með betri vöxtum, mun Arsenal, sem nú hefur 2. mestu innkomuna á eftir R. Madrid, komast á toppinn, ef ekki á næsta ári, þá á því þarnæsta -- er ég viss um.


Áfram


mbl.is Arsenal er orðið ríkasta félag Englands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Methagnaður og björt framtíð

3Jæja, uppgjör Arsenal fyrir síðasta ár hefur verið kynnt. Það er methagnaður af rekstri félagsins og það sem meira er, nú þegar, eftir eitt ár, hefur Emirates Stadium skilað það miklum plús, að félagið er 35 milljónir punda í hagnaði af byggingu hans og meðfylgjandi aðgerðum, og það eftir aðeins eitt ár. Innkoma á "leikdegi" hefur tvöfaldast og svo framvegis.

 

Sjá eftirfarandi:

Uppgjör Arsenal 2006-2007
Viðtal við Edelman, séffann í rekstri Arsenal.

 


Og hverjir sögðu að Emirates Stadium væri erfiður biti að kyngja.


Þrátt fyrir um 500 milljóna punda útgjöld vegna Emirates, á Arsenal nú 70 milljónir punda í banka, og getur Arsene Wenger eytt eins miklu af þessu og hann vill, og gæti jafnvel eytt meiru, kæri hann sig um.


En miðað við hvað liðið er að gera núna, þarf ekki nýja leikmenn. Ég myndi þó vilja fá einn hafsent (þó norski unglingurinn sé langt á undan áætlun, aðeins 17 ára og "mörgum árum á undan í þroska" skv. Wenger; en vantar bara reynslu. Hann er orðinn fyrirliði unglinganna, aðeins nokkrum vikum eftir komuna til Lundúna), því Gallas virðist ætla að vera bara meiddur að jafnaði, og einhvern sem getur spilað sem kantmaður beggja megin, í staðinn fyrir Ljungberg.


Og síðan vil ég losna við Lehman og gefa Fabianski séns, þó Almunia hafi vissulega verið að standa sig vel.

 

En framtíðin er vissulega björt. Ekkert lið í Englandi hafði meiri tekjur á síðustu leiktíð; og vísast ekkert lið í heiminum (þó maður viti ekki með Real og Barca!); en a.m.k. skilaði ekkert lið eins miklum hagnaði af "daglegum rekstri").


Og Arsenal hefur efnilegasta lið í heimi!


Framtiðin er björt.


Skegg og útlitsvandi

Kannski ætti Benni Naut að ræða aðeins við Baltasar Kormák ( sem er einmitt inntak næstu fréttar fyrir ofan) um þetta skeggvandamál sitt.


Nú, eða Stefán Bergsson, Akureyringinn knáa.



En ég skil annars Benna vel. Það þykir ekki vera flott í dag að ganga um skeggjaður. En ekki veit ég hvort það tengist heimilislausum eða terroristum; en a.m.k. er "tískan" í dag að vera vel rakaður. Jafnvel þriggja daga Clooney skeggið er á undanhaldi, þó Clooney sé enn talinn kynþokkafyllsti karlmaðurinn úr hópi leikara.


En skegg fer þó karlmönnum amk betur en konum, sem sumar hverjar hafa trassað að raka sig fyrir ofan efri vörina.


mbl.is Skeggið veldur vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostaði John Terry Mourinho starfið hjá Chelsea?

Það er athyglivert grein í The Guardian um Chelsea-málið, þar sem haldið er fram, að ósætti Mourinhos og Terrys hafi fyrst og fremst verið "kornið sem fyllti mælinn", og hafi kostað Móra starfið. Og síðan hafi verið deilur leikmanna, og eiginlega allt í frati í Chelsea liðinu.


Því er ekkert skrítið, þótt Man Utd hafi eiginlega fengið leikinn í gær upp í hendurnar, þó að nokkru leyti með hjálp frá arfaslökum dómara (sem báðir stjórnarnir kvarta reyndar yfir!).


EN a.m.k.: Chelsea er í vandræðum, en maður er eiginlega bara mjög ánægður með það! Ágætt að höggva aðeins í mafíuliðið.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband