Við erum rauðir, við erum hvítir...

...sungu Danir forðum. En þeir munu leika um sjöunda sætið. Góður árangur hjá Dönum. Þeir komust lengra en þeir áttu skilið.

En Íslendingar eru enn í myndinni að spila til úrslita. Nú þarf "bara" að taka Spánverjana.

En hvernig sem fer, ekki stendur á mér, skiptir engu með....

Taka Krókinn á þetta bara.

Áfram Ísland.

OK, ég er að missa mig ... er tilbúinn með róandi (músík) til notkunar meðan á leiknum stendur


mbl.is Ísland leikur í rauðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meir Geir

Af hverju er ekki Geir Sveinz í flokki "sérfræðinga" sem tjá sig um leikina á RUV?

Þetta er mikill snillingur sem þekkir handbolta betur en flestir aðrir hér á landi. Geir í RUV þegar við spilum úrslitaleikinn.

'Afram Ísland


mbl.is Viðurkenni að ég öfunda þá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennan magnast

Jæja, styttist í leikinn.

Íslenskt samfélag mun stöðvast að mestu leyti á hádegi og ekki taka aftur til starfa fyrr en um tvöleytið.

Íslenska þjóðin er tilbúin í leikinn. Væntingar miklar, að venju, en engu að síður held ég að flestir séu bara ánægðir með að eiga séns á verðlaunum. Allt annað er bónus.

Spánverjarnir eru góðir, engin spurning. En liðið okkar er gott líka. Þetta er 50/50 leikur. Spurning um stemningu, hugarfar og dagsform.

Spái því að Alexander Petterson muni verða maður leiksins, af okkar hálfu amk.

Ég á því miður í vændum langan og strangan bissnessfund um 10-leytið. En ég trúi ekki að menn vilji sitja áfram þegar leikurinn er byrjaður. Við verðum að standa með strákunum.

Áfram Ísland.


mbl.is Óhræddir og fullir tilhlökkunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Big deal

Ég held að flestir séu búnir að fá nóg af 9/11 málinu, sér í lagi samsæriskenningunum.

Leyfum þeim látnu bara að hvíla í friði og málinu að hafa sinn eðlilega farveg.

 


mbl.is Ráðgátan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphitun fyrir spænska leikinn

Jæja, Snorri Steinn markahæstur.

Það eitt og sér skiptir hann vísast litlu máli. Mestu mál skiptir gengi liðsins. Ég er ekki í vafa um að það er aðalatriðið í huga Snorra Gaupasonar.

En nú líður að leik.

Íslendingar eru komnir á skrið. Leikurinn verður sýndur víða, alls staðar þar sem sjónvarp er, jafnframt í bíóhúsum, í Vetrargarði Smáralindar og víðar.

Nú er bara að koma upp smá stemningu.

Áfram Ísland.


mbl.is Snorri Steinn markahæstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heildarvísitalan svipuð og í fyrra!

En kauphöllinni er vísast sama.

Annars get ég glatt landsmenn með því að stofnvisitala mín hefur hækkað frá sama tíma í fyrra.


mbl.is Stofnvísitala rækju svipuð og í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nöldrarar

Leiðinda nöldur þetta í Björku og taglhnýtingum hennar. Maðurinn skilar sínu verki, og er jafnframt í eigin tíma að læra borgarfræði.

Ekki veitir af til að redda borginni eftir áratugar óstjórn R-listans og síðan vitleysisganginn á Vinstri-sundrungsstjórninni og Villta Tryllta.

Ágætt að einhver þarna í Ráðhúsinu skuli hafa þekkingu á borgarmálum í fræðilegum skilningi, ekki síst til að vega upp á móti vitleysunni sem vellur upp úr erindrekum sósíalistaflokkanna.


mbl.is Gísli Marteinn fær launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænir og vænir - ekki fyrir blinda?

Nú, mega blindir ekki kjósa Framsóknarflokkinn?
mbl.is Grænir og vænir - ekki fyrir blinda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drukkið í laumi

"Þyrla sem forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur samið um afnot af næstu þrjú árin, er meðal annars útbúin með barskáp, en hún var áður í eigu krónprinsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum."

Nú, var krónprinsinn að detta í það í laumi? Er ekki bannað að drekka áfengi í SAF?


mbl.is Þyrla Stoltenbergs vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð skipti

Góð skipti já. Hanna Birna er skörungur, Ólafur F. virðist vera illa marktækur og þar að auki haldinn einhverjum Napóleonscomplexum.

Ólafur réðst með offorsi á Sjálfstæðisflokkinn og borgarstjornarflokkinn, sem átti víst að hafa verið að plata.

Jón Magnússon alþm. hefur nú afhjúpað að nefið á Ólafi hefur lengst undanfarið. Hann er amk ekki í alveg eins góðu sambandi við sannleikann og hann vildi sjálfur vera láta.

Maðurinn er greinilega veruleikafirrtur og því fyrr sem hann hverfur af vettvangi, því betra (að vísu ágætt að hafann í minnihlutanum,...ef minnihlutinn kærir sig um hann!) 


mbl.is Lyklaskipti í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband