Þriðjudagur, 22. júlí 2008
Góð kaup
Þetta verða góð kaup, sér í lagi ef strákurinn kippir í kynið.
Jafnframt er ljóst, að hann er margra manna maki, eins og segir í frétt mbl.is
"Almarr, sem er miðju- og sóknarmaður maður, hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Safamýrarliðið."
Greinilega tveggja manna maki og veitir ekki af slíkum á miðjunni!!
![]() |
Almarr til Framara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 22. júlí 2008
Hvað segja þeir nú?
Gaukarnir sem fóru hamförum þegar Palestínumaður var skotinn í tánna í gær eða fyrradag. Þeir hljóta nú að fara offari með svívirðingum í garð Palestínumanna og arabíska kynstofnsins. Það segir sig sjálft.
Og nú býð ég spenntur.
![]() |
Árásarmaður skotinn í Jerúsalem |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Þriðjudagur, 22. júlí 2008
Er ekki svona þorp á Íslandi?
Hafa menn aldrei heyrt talað um: "Þú hýri Hafnarfjörður"?
![]() |
Þorp fyrir hýra öldunga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 22. júlí 2008
Karadzic handtekinn
Jæja, þá er þessum kafla lokið. Nú þarf að rétta hressilega yfir kallinum og vega og meta sönnunargögnin.
En það er reyndar ákveðinn galli á þessu. Ég og fleiri höfum verið að fara á skákmót í Serbíu á síðustu árum, enda einn af fáum stöðum þar sem venjulegt fólk getur teflt núorðið vegna aukins kostnaðar, t.d. hafa nýju evrulöndin snarhækkað og það hressilega.Jafnvel ESB landið Tékkó er orðið okurbæli, amk miðað við það sem áður var. Með handtöku Karadzic og co gæti farið svo, að ESB verðlauni Serba með tafarlausum aðildarviðræðum.
En nú gæti þetta glæsilega ástand farið að breytast og síðasta vígi blankra skákmanna er að falla, ekki nema Makedónía fari að halda skákmót af miklum móð!
![]() |
Karadzic handtekinn í Serbíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. júlí 2008
Innbrotsþjófar teknir
Yndislegt. Vonandi hafa þeir ekki náð að senda allt góssið úr landið. Vonum að þetta séu mennirnir sem hafa verið að ræna og rupla hér undanfarið.
Vísast eru fleiri hópar á ferð, en þeir eru þó amk einum færri, a.m.k. í bili. Nú þarf bara að stinga þeim hastarlega í djeilið í nokkur ár og ganga á milli bols og höfuðs á þessum innbrotsgengjum.
![]() |
Þrjú innbrot á höfuðborgarsvæðinu í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. júlí 2008
Yndislegt
Æ, ég varð bara að commenta á þetta. Grindavík vann KR.
Góður endir á að flestu leyti ágætis degi.
![]() |
Ramsay tryggði Grindavík sigur gegn KR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 21. júlí 2008
FRAMsigur
Glæsilegt. Loksins gerist eitthvað eftir þrjú töp í röð. 6-0 gegn Fylki.
Þungu fargi af manni létt.
Áfram FRAM
![]() |
Framarar fundu taktinn og skelltu Fylkismönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 21. júlí 2008
Spurning að selja aðgang
að Britney, eins og að fótboltaleikjunum. Ja, næg virðist vera eftirspurnin.
![]() |
Lutfi vill aðgang að Spears á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 21. júlí 2008
It's the Weather Channel: Nobody cares!
Kvót dagsins:
- "It's nearly as if we live in a world where if Christians kill Muslims, it's a crusade. If Jews kill Muslims, it's a massacre. And when Muslims kill Muslims, it's the Weather Channel. Nobody cares."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. júlí 2008
Þjófar
Það var brotist inn heima hjá mér um daginn og öllu verðmætu stolið. Í gær eða fyrradag var byrjað að losa skrúfur á lás sem lokar veröndinni þegar hún er ekki í notkun, vísast til að verða sneggri að dýrka upp lásinn þegar ráðist verður til atlögu.
En þjófurinn veit kannski ekki:
1. Hann er búinn að hirða allt verðmætt hvort sem er
2. Það er komið solid öryggiskerfi í húsið (en hann fattar það vísast ekki, enda eru merki því lútandi á íslensku)
3. Fleiri öryggisráðstafanir hafa verið gerðar.
En hrikalegt er þetta. Maður heyrir sögur af húsum hér og þar sem hafa verið tæmd. Í götu einni í Breiðholtinu var næstum heil raðhúsalengja tæmd, eitt húsið meðan íbúarnir voru upp á efri hæðinni að horfa á EM í fótbolta með stillt á fullt!
Löggan segir að þetta séu erlendir atvinnu-innbrotsmenn. En af hverju er ekki hægt að finna þessa kauða?
Og til öryggis sit ég nú bara heima í sumarfríinu og nenni engu öðru en að blogga einhverja vitleysu!
![]() |
Þjófar á ferð í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)