Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Móðgum Afghani og það strax!
![]() |
Sviss fær ekki olíu frá Líbýu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Spurning dagsins
Hvað eru fjórir Frakkar kallaðir, þegar þeir standa úti í rigningu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Skráning klósettferða
Ég vil í þessu sambandi leggja eftirfarandi mynd til málanna. Æ, hún er eitthvað svo krúttaraleg í samhengi við klósettferðir úti í óbyggðum.
Oft fer allt á versta veg
er villidýrin kýta.
En þokan verður þokkaleg
þá Pandan fer að .... (sjá mynd)
![]() |
Skrásetja klósettferðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Skemmtilegar myndir


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Einkennileg mannanöfn og skondin mannanafnasaga
Þetta er auðvitað snilld. Gaman að sjá hversu menn eru frjóir...en gamanið er þó grátt þegar kemur að hagsmunum barnanna.
En hér á Íslandi skilst mér að sé bannað að heita Jón Borgar. Heyrði sögu þar sem þrír strákar voru í biðröð í sjoppu og sá fyrsti keypti sér eitthvað smávegis, kók og prins eða eikkað, og benti síðan afturfyrir sig og sagði: "Jón Borgar".
Hið sama gerði sá nr. 2
En þegar sá þriðji fékk "reikninginn" neitaði hann að borga. Hann hefði aldrei fallist á að borga þetta, en hann heiti hins vegar Jón Borgar.
Önnur svona "sniðug" nöfn mætti telja, t.d.
Sigurjón Þ Jónsson (pabbi hans er þjónn)
Vilhjálmur H Karlsson (pabbi hans er hákarl)
osfrv. Var einmitt að gantast með nokkur slík skemmtileg nöfn í gær, við Hinrik brautarstjóra. En gaman að þessu.
![]() |
Einkennileg mannanöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
Olíuverð o.fl.
Jæja, stundum tuða ég yfir illa unnum fréttum á mbl.is, þar sem málfræði, stafsetning og efnisvinnsla blm. er oft fyrir neðan allar hellur.
Slíkt er óþarft hér, enda á maður ekki von á öðru en að Guðmundur Sverrir standi sig.
En að efninu; af hverju er það að maður treystir yfirlýsingum talsmanna olíufélaganna vægast sagt mátulega? Af hverju hafa margir það á tilfinningunni að félögin séu fljót að hækka en sein að lækka þegar verð breytist; og jafnframt að verð hækki í botn, en lækki aðeins að hluta þegar breytingar verða á heimsmarkaðsverði.
En síðan er það allt annað mál, hvort olíufélögin hér séu eitthvað verri í þessu en þau í nágrannalöndunum?
![]() |
Bensínverð úr takti við heimsmarkaðsverð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 23. júlí 2008
Svikari í innsta hring?
Yrði "gaman" að hafa þá kumpána, Mladic og Karadzic, saman í búri í Haag?
Gæti orðið fjörugt.
![]() |
Mladic kom upp um Karadzic |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 23. júlí 2008
Iss, ekkert merkilegt
Annar hættur hvort sem er. Hinn pirraður, og segja sumir að það hafi verið af mjög eðlilegum ástæðum líka.
En gott að KSÍ skuli geta komið fram undir nafni og bannað viðkomandi með siðmenntuðum hætti, ólíkt sumum sem nota nafnlausa sendisveina til að vinna fyrir sig skítverkin.
![]() |
Tveir þjálfarar í bann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 23. júlí 2008
Olíufyrirtækin
Jæja, smá lækkun, en af einhverjum ástæðum er maður hættur að trúa þeim. Maður fær það alltaf á tilfinninguna að þau séu ekki alveg samkvæm í hækkunum og lækkunum.
En olíufélögin selja þó amk kúnnunum vöruna á sama verði í smásölu, annað en BP útibúið við Hverfisgötuna í Hafnarfirði
![]() |
Eldsneytisverð lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 23. júlí 2008
Kvittað fyrir sig
Afsakið, en ég er verulega pissed akkúrat núna, eins og vandræðamanna er siður. En í stað þess að byrgja reiði niðri eða gera eitthvað róttækt, læt ég mér nægja, að fá útrás með smá leirburði:
Vont er að eiga í vanda
og víðsjá til beggja handa.
En feginn er þó
að eiga fullnóg
Og vera ekki Boris Panda.
Já, Boris Panda er rauður í framan, eins og svo oft áður þegar hann a.m.k. ætti að skammast sín.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)