Húsið í Japan

Hvernig væri að þýða "Mér finnst rigningin góð" yfir á japönsku. Gæti orðið hit-lag í Japan?
mbl.is Úrhelli í Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mafíuleiðtogi handtekinn í fatakaupum

Ef þessi árátta lögregluyfirvalda, að handtaka mafíósa, fer að breiðast út má telja líklegt að einstaka foringjar íslenskra mafíudeilda fari að loka sig inni.LoL

Væri líka sniðugt að gera "fríríki" mafíunnar, t.d. einhvers staðar í Vogunum?


mbl.is Mafíuleiðtogi handtekinn í fatakaupaleiðangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvandaður sparnaður

Mér var sagt frá nýlega, að sums staðar væri sú venja að hin pólítísku yfirvöld velji sér starfsfólk í ákveðin störf, en auglýsi þau engu að síður til að framfylgja formsatriðum. Síðan fari verkferli í gang, en við "lok dagsins" séu þeir aðilar ráðnir, sem hafðir voru í huga upphaflega.

Það er engu betra, því þá er verið að vekja vonir fjölda fólks um starf, fólks sem á enga möguleika á að hljóta það starf sem sótt er um.

Þá er leið Kópavogsbæjar betri...


mbl.is Telur óvandað að auglýsa ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Garðar Örn og Skaginn: replay

Jæja, Stefán Þórðar fékk "bara" gult hjá Garðari Erni, sem rak reyndar leikmann ÍA út af í fyrri hálfleik, en jafnaði metin í þeim seinni, þegar litlaus FHingur fauk út af.

En sennilega var ekki hægt að kenna Garðari um núna (án þess að ég viti neitt sérstaklega um málið og sá ekki leikinn), heldur má búast við því að FHingar hafi einfaldlega verið betra liðið...eða er það ekki?

En samt, skrítið hjá KSÍ að setja Garðar Örn á þennan leik.


mbl.is FH sigraði ÍA í sjö marka leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heavy Methal

Æ, sorry, ég varð bara að segja þetta. Spurning hvort Magga nái sér ekki í Punkara næst?


mbl.is Methal hjá Margréti EA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjustu fréttir af manninum sem keyrði á staurinn

Hann hefur þegar líst yfir áhuga á að fara í bæjarmálapólítíkina á Húsavík.
mbl.is Keyrði á staur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimssögulegur viðburður. Stórfrétt.

Reiðhjól bresks stjórnmálamanns er fundið. Þetta hlýtur að koma á forsíðu Times á morgun.

Veslings maðurinn getur nú tekið gleði sína að nýju!


mbl.is Hjól Camerons fundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundakofapólítíkin

Ég er hlynntur því að varðveita byggingar sem hafa raunverulegt menningarsögulegt gildi. Til að mynda hefði ég vilja varðveita "Tobbuhús" við Skólavörðustíg, þar sem nú stendur hús SPRON. Það hefði átt að varðveita, ekki síst vegna Þorbjargar og Ólafíu Jóhannsdóttur. Þar hefði mátt vera solid safn um sögu Reykjavíkur um aldamótin, muni úr eigu þeirra tveggja eða eitthvað tengt IOGT, Hvítabandinu og kvenréttindum, svo ekki sé minnst á ljósmæðratengda hluti.

En nú er það of seint.

En að varðveita hálf hrunda kofa við Laugaveginn til að "varðveita 19. aldar götumynd" er tóm steypa. Slíkt er engum hvorki til prýði né gagns.

Auðvitað má borgarstjóri hafa þetta áhugamál, ef hann telur það við hæfi, en ég samþykki ekki að utsvarspeningar borgarbúa séu settir milljónum saman til að púkka upp á einhver gæluverkefni og sértæk áhugamál borgarstjóra, sem kemur sínu fram þar eð annars myndi borgarstjórnin falla.

Þegar menn eru oddaatkvæði geta menn komist upp með ýmislegt. Það má einna skýrast sjá í sögu Framsóknarflokksins, sem löngum hefur hagnast á því að vera "oddaflokkur" á milli nær jafn stórra fylkinga til hægri og vinstri.

En Ólafur F. Magnússon verður að hafa í huga, að peningagrís borgarinnar er ekki ótæmandi og fara verður vel með þá fjármuni sem yfirvöldum er trúað fyrir.

 


mbl.is Greiddu 15,5 milljónir fyrir tillögur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnudagsmorgunn

Úff, aldurinn færist yfir. Það er greinilegt. Af einhverjum ástæðum sofnaði ég aftur og vaknaði ekki fyrr en síminn hringdi kl. 8.30. Annars vakna ég yfirleitt á milli 5.30 og 6.30 alla daga vikunnar; sunnudagar eru engin undantekining. Og þá breytir litlu hvenær ég sofna. Um tíma vaknaði ég af einhverjum ástæðum á slaginu 6 að morgni, þá hefði verið hægt að stilla klukkuna eftir þessari venju. En núna rokkar þetta dálítið.

Tíminn er of dýrmætur; of margt að gera. Óþarfi að eyða honum í að sofa endalaust. Maður getur sofið þegar maður er genginn fyrir ætternisstapann. Og jafnvel þótt ekkert liggi beinlínis fyrir er alltaf eitthvað sem þarf að -- eða má alveg -- gera, t.d. þrífa, henda gömlu blaðadrasli, eða eitthvað.

Annars er nóg að gera í dag. Uppvask, þrif, raða nótum og kvittunum í möppu; jafnvel taka aðeins til í tölvunni líka. Ég tók mig nú til í gær og deletaði tugum gígabæta af skákstuffi í gær. Ég sé ekki fram á að þurfa að nota þetta í framtíðinni, enda bendir allt til að skákferill minn, óglæstur að vísu, sé á enda. Skák er skemmtileg, eins og sagt var í TR í gamla daga og Hrókurinn tók síðan upp, en því miður er skákpólítíkin þreytt.is eins og margar aðrar pólítíkur. Maður deilir ekki við mafíuna sko!

Síðan þarf ég að djobba dálítið, þó helgin sé með friðsælasta móti. Bara smá aukadjobb sem þarf að skila á morgun og annað síðar í vikunni. Allt undir control. Síðan er aldrei að vita nema maður fari að prófa nýju forritin sín. En á morgun kemur ný vika með vinnu og aðal-aukavinnunni. Kannski ágætt að sofa út núna og safna orku.

En jæja, ömurlegt að vera bíllaus. Eðalvagninn vildi ekki í gang fyrir helgi og maður er eins og hauslaus her.  En solid Dauðahafs-fótakremið úr Tiger kemur að góðum notum núna!

Kveð að sinni...


Skapahár og hárvöxtur

"Við upptökur á nýjustu kvikmyndinni sem hin 26 ára gamla leikkona Sienna Miller leikur í, Hippie Hippie Shake, kom í ljós að hún var ekki með nægilega gróskumikinn vöxt í skapahárunum og þurfti að auka við þau með tölvutækni."

Merkilegt að tölvuforrit geti aukið hárvöxt. Spurning ég verði mér ekki úti um svona forrit, læri á það og beini síðan einhverju tölvustykki að hausnum á mér til að auka hárvöxt?

En sennilega eiga Moggamenn við, að með tölvutækni hafi verið hægt að láta það líta þannig út í mynd, að hún hefði meiri gróður á merkilegum svæðum.

 


mbl.is Hárvöxtur Miller aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband