Friður í borginni um helgina!

Yndislegt að losna við allt þetta fólk úr borginni...þetta verður eins og á góðri verslunarmannahelgi. Friður og ró í borginni!
mbl.is Mikil umferð frá höfuðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer ekki málið bara fyrir enska dómstóla??

Það væri miklu sniðugra! Hvað ætli sektin yrði margir milljarðar?
mbl.is Ákærður fyrir skattalagabrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósmyndari á felgunni

Skv. verðmati Páls Stefánssonar voru felgurnar hans dýrari en eðalvagninn minn kostar. Ég á bágt með að fatta svona lagað. Ég meina, hver setur felgur fyrir 600.000 kall undir svona smábíl?

Maður hefði getað skilið það ef hér ætti milljarðarmæringur í hlut og bíllinn héti Porsche eða eitthvað þaðan af betra.

En gaman þætti mér að sjá hvernig 600.000 kr. verðmatið er tilkomið.


mbl.is Stolnar felgur komnar í leitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um flóttamanninn

pilsfaldurinnHallur Magnússon benti á, hér að neðan, í athugasemd, link í mjög áhugavert blogg. Ég vil vísa í það líka og hvetja menn til að lesa.

Flóttamannastefna Íslendinga

Eftirfarandi pistill birtist í athugasemd hjá Halli Magnússyni.

 

 

Merkilegt að framsóknarmaður skuli þora í þessa umræðu. En málavextir voru þeir, að Stefán Jóhann og kratarnir náðu á sínum tíma að halda aftur af Hermanni dálítið, fá allskonar undanþágur (aðallega fyrir gyðingakrata, auðvitað) fyrir Gyðinga og siðan á tíma Þjóðstjórnarinnar tóku ráðherrarnir, jafnvel Eysteinn Jónsson, að beita Hermann ofurliði og veita GYðingum undanþágur. En á þeim tíma þegar Hermann réði óskoraður í minnihlutastjórn Framsóknarflokksins var rekin harðasta flóttamannastefna í Evrópu. Engar undanþágur veittar og mikil harka sýnd flóttafólki. Þetta er að mínum dómi lík í lest Framsóknar og Hermanni til ævarandi smánar. Staðreyndin var að Íslendingar tóku við langtum færri flóttamönnum en aðrar Evrópuþjóðir, bæði í tölum og hlutfallslega. það var einna helst Búlgaría sem var á svipuðum slóðum, en þeir vernduðu þó "innlenda" GYðinga gegn nasistum.

Þetta rugl hélt síðan áfram eftir stríð þegar við svikum allskonar samninga. Saga Íslendinga á þessu sviði er ljót, afar ljót, en m.a. græddu Íslendingar stórfé á flóttamannastofnunum, t.d. með því að selja þeim íslenskt sjávarfang og gærur yfir markaðsverði! Og ef þær neituðu að kaupa af Íslendingum, börðu Íslendingar í borðið og fóru að tala um herinn í Keflavík og viðskiptafundi með Rússum! Þá borguðu Kanarnir það sem uppsett var!

En "sniðugast" var, þegar hjálpa átti Kóreubúum og við vildum selja flóttamannastofnuninni síld. Þegar hún keypti af Norðmönnum (betri síld á lægra verði!) og Kanadamönnum (sama) risum við upp, Íslendingar, og skildum allt í einu ekkert í því hvers vegna væri verið að hjálpa þessa gula fólki meðan "rjómi hins norræna, hvíta kyns sveltur í Þýskalandi."

En til að lagfæra þetta mætti Framsókn byrja á því að gera hreint í sínum málum. Minnihlutastjórn flokksins undir lok fjórða áratugarins var andstyggilegasta stjórn sem nokkru sinni hefur setið á Íslandi. Þá var "mannúð bönnuð á Íslandi", ef áttu í hlut aðrir en Þjóðverjar og Norðmenn sem fluttir voru inn í allskonar Kleppsvinnu meðan hámenntuðum læknum af gyðingaættum var snúið frá, þrátt fyrir mjög alvarlegan læknaskort í landinu. Og Gyðingur á Íslandi, maður sem hafði búið hér frá því um 1925, þurfti að fara til Þýskalands til lækninga. Dóttir hans komst lífs af...frá Auschwitz, og sendi beiðni til íslenskra stjórnvalda um að fá að koma hingað í stríðslok. Hún var fædd á Íslandi, bar íslenskt nafn, talaði íslensku eins og innfædd. En hún var Gyðingur. Stjórnvöld sögðu henni því að éta skít. EN sömu stjórnvöld lögðu mikið á sig til að bjarga hingað aríum, jafnvel þeim sem starfað höfðu með Þjóðverjum á stríðsárunum. Ojbarasta.


mbl.is Fjölskyldu fleygt úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær Samfylkingin áminningu?

Með sömu röksemd. Það vantar upplýsingar um stefnu flokksins hverju sinni (hún breytist svo oft að menn vita ógjarnan hvaða stefna er í gangi). Síðan vantar upplýsingar til Samfylkingarinnar um, að flokkurinn sé í ríkisstjórn, ekki í stjórnarandstöðu. Ef marka má t.d. hegðun og framkomu Björgvins og einstaka annarra má ætla, að þeir haldi a.m.k. að þeir séu enn í stjórnarandstöðu. Þarna vantar greinilega upplýsingagjöf.

Áminningar er þörf.


mbl.is Flugfélögum veitt áminning vegna skorts á upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Metnaðarleysi

Hvað er það kallað þegar góðir leikmenn koma saman og mynda lélegt lið?

Lélegur þjálfari.


mbl.is Domenech áfram með Frakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón og mullah Jón

Ég hefði orðið hissa ef Serbar hefðu fengið slíka miskunn. Greinilegt að þetta er gert til að styggja ekki múslímaríkin og forðast hækkun olíuverðs!

En ok, mér er brugðið. Greinilegt að þjóðerni og trúarbrögð skipta miklu máli þegar refsingar eru ákveðnar fyrir stríðsglæpi.


mbl.is Dómur stríðsglæpadómstóls felldur úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverðið

Sagan endalausa.

Þetta virðist ætla að halda áfram. Hryggilegt.

Og þjóðir heims virðast vera varnarlausar gegn þessu. OPEC mun stjórna heiminum mjög fljótlega, ef samtök þessi gera það ekki nú þegar.

 


mbl.is Olían hækkar og hækkar í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitabylgja á leiðinni!

Jahérna. Glæsilegt.

Nú má búast við að jafnvel hörðustu femínistar sýni hold um helgina.


mbl.is Hitabylgja um helgina og víða 25 stiga hiti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband