Þriðjudagur, 31. júlí 2007
Prentarar hættulegir heilsu manna?
Þetta er auðvitað tóm steypa. Ég þekki marga prentara og engin þeirra hefur gert mér neitt og enn síður skemmti í mér lungun.
Prentarar eru upp til hópa ágætis fólk og hef ég enga ástæðu til að ætla, að mér standi nein hætta af þeim.
![]() |
Prentarar geta verið skaðlegir heilsu fólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 31. júlí 2007
Hilton
Ég skil nú ekki hvers vegna afi gamli er fúll út af kynlífsdæminu í Paris og enn síður hvað hann hefur á móti kynlífsmyndböndum.
Í þau skipti sem ég hef gist á Hilton var auglýst með áberandi hætti á herbergi mínu (ekki sama hótelið hvort skipti) að ég gæti fengið keypt mér áhorf á klámmyndir.
Kannski er afinn svona fúll yfir, að hann hefur ekki fengið að sýna myndbandið með Paris á Hilton hótelunum?
![]() |
París Hilton gerð arflaus? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 31. júlí 2007
Tómas Björnsson er á lífi
Í gær og í dag hafa kjaftasögurnar farið á kreik um Tómas nokkurn Björnsson, sem var víst skv. DV aðalleikarinn í þessu hörmulega máli um helgina.
Síminn hefur varla stoppað hjá mér, enda er vinur minn, Tómas Björnsson, á þessum sama aldri og nefndur er. Og nú er þessi kjaftasaga farin af stað víða hér í bæ og margir skákmenn orðið fyrir töluverðu ónæði vegna þessa, og vísast hefur fjölskylda Tomma orðið þar verst úti.
En Tómas Björnsson skákmaður, Brekkugerði 9, Rvk, var a.m.k. á lífi og við hestaheilsu í gær, þegar einn af okkur skákstrákunum hafði samband við hann. Hann þekkti reyndar alnafna sinn, en sagði sjálfur, að fréttir að andláti sínu væru stórlega ýktar. Og hann var þar af leiðandi ekki maðurinn niðrá Sæbraut.
Vinsamlegast hættið þessum kjaftagangi og leyfið látnu fólki að vera í friði, amk uns búið er að jarða og helst lengur. Og hættið þessum hringingum og emailum í mig um þetta mál, takk. Ég er ekki 118.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 31. júlí 2007
Eiður til West Ham?
Jæja, allt í áttina. Það væri gaman að sjá Smárann í West Ham, sem er svona vara-uppáhaldslið mitt í Englandi, og hefur verið frá því ég var patti (síðar bættist við Leicester, þar sem ég var í námi).
En með þessum kaupum myndi Hammers styrkjast enn, en liðið er nú orðið vel skipað, á pappírnum amk. Spurning hvort Hammers fari nú ekki að hrinda Spurs af stalli sem þriðja besta lið Lundúna?
Þar fyrir utan finnst mér Eiður passa betur við enska boltann en þann spænska...eða a.m.k. passa betur í Hammers en í Barcelona og ekki hefur tilkoma Henrys hjálpað til við að festa okkar mann í sessi þarna suðurfrá.
![]() |
Viðræður West Ham og Barcelona um kaup á Eiði sagðar hafnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 31. júlí 2007
KR Nörd?
Jæja, oftlega er leiðin löng, sem liggur milli vina. Hið sama gæti gilt um félög. En stundum er leiðin löng á milli tveggja botnliða, annars vegar KR og hins vegar KF Nörd.
EN ætli þessi tvö félög verði ekki bara sameinuð undir einu nafni, KR Nörd?
![]() |
Oft staðið til að ég tæki við KR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 30. júlí 2007
Danir halda heim frá Írak
Jæja, danskurinn að flýja Írak.
Einhvern veginn skil ég ekki hvað Danir voru að gera þarna. Þeir eru nú ekki þekktir fyrir neina sérstaka hermennsku. Lúffuðu jafnan fyrir Svíum í den, og síðar Þjóðverjum. Þeir einu, sem þeir réðu við, voru Íslendingar og óvopnaðar nýlenduþjóðir.
En Danir ágætir að öðru leyti svosem, en litlir bógar í hermennsku.
Og síðan held ég, að Kanarnir eigi bara að sjá um þetta Íraksmál sjálfir, já, ásamt Bretum auðvitað. Hinir þarna ættu bara að drífa sig heim.
![]() |
Heraðgerðum Dana í Írak lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 30. júlí 2007
Úr eldinum í öskuna
EN KRingar verða þó amk í góðu skapi --enda Logi bestur í að segja brandara. Ágætur þjálfari svosem, en það þarf að gera meira en að skipta um þjálfara til að ná árangri.
En vonandi falla KRingar bara. Það yrði góður endir á góðu sumri. Ég óttast þó, að mínir menn í bláu muni fá það hlutskipti.
![]() |
Teitur rekinn - Logi stjórnar KR út leiktíðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 30. júlí 2007
Nýjasta útrásartækifærið!
" Bilun í götuljósastreng olli rafmagnseldi"
Jæja, þetta hefur ekki gengið nógu vel hjá okkur með fiskeldi og refaeldi. En nóg eigum við af ódýru rafmagni, eða svo virðist vera. Hugmyndir hafa komið upp um, að flytja það til útlanda með sæstreng, en mér finnst þessi hugmynd betri!!
Rafmagnseldi!!
Auðvitað tær snilld. Ég pant vera með í slíku fyrirtæki.
![]() |
Bilun í götuljósastreng olli rafmagnseldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 30. júlí 2007
Simpsons myndin: of mikil vitleysa?
Jæja, ég horfði nú á Simpsons myndina í gær. Jújú, það mátti svosem hafa gaman af þessu, en handritið var eiginlega of mikil vitleysa fyrir minn smekk...og aðeins of mikill pólítískur áróður.
Sá líka 400. þátt Simpsons með íslensku tali. Úff, steypa. Hvaða Baugsmiðlabull var þetta? Hver þýddi þetta eiginlega? Hafa ber í huga, að Baugur á meira eða minna þá fjölmiðlasteypu, sem sýnir þáttinn, svo það var eiginlega óeðlilegt að fjallað væri um fyrirtækið í hinni íslensku Simpsons. Þar að auki var þessi þáttur með versta móti.
![]() |
Simpsons fjölskyldan vinsæl hjá kvikmyndahúsagestum vestanhafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 29. júlí 2007
Norðurlandameistaratitill
Til hamingju Lenka! Vel að verki staðið vina.
Hlýtur að vera afrek að vinna svona mót og það komin þetta langt í meðgöngu.
Hún er svo til vinstri á myndinni hjá Mogganum, ekki til hægri, eins og þar segir, eða sagði amk þegar ég gáði síðast.
Meðfylgjandi mynd er tekin í gömlu Leifsstöð 2005, þegar við vorum á leiðinni á mót í Serbíu.
![]() |
Lenka Ptácníková Norðurlandameistari í skák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)