Ég fer í fríið

Merkilegt hversu Man Utd leikmenn verða oft "smávægilega meiddir" rétt fyrir landsleiki en verða síðan stálhressir þegar kemur að deildarleikjum Man Utd skömmu síðar.

En hitt er svo annað mál að ég skil Fergie vel. Óþolandi að fá vináttuleiki framan í sig á viðkvæmasta punkti tímabilsins.
mbl.is Ronaldo og Nani ekki með Portúgölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrifleg tjáning = góð meðferð gegn sjúkdómum?

Já, gæti vel verið. En ætli þetta virki gegn nöldursömum geðsjúklingum?


Spurning


En það hefur a.m.k. ekki virkað á Kelly Klerkson.


mbl.is Skrifleg tjáning hjálpleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólympíuleikrit

Jæja, aftur og nýbúið.

En hvað eiga menn að gera annað en að setja upp leikrit, þegar svona stendur á. Ekki verra að hafa það Ólympiuleikrit.


En merkilegt að sósíalistar eru manna duglegastir að gagnrýna og nöldra þegar þeir stjórna ekki, en taka fyrir gagnrýni annarra, jafnvel með vopnavaldi, þegar þeir sjálfir eru við stjórnvölinn.


Sýnir bara að hvorki sósíalismi né sósíalistar þola gagnrýni. Málið dautt.


mbl.is Útsending rofin frá Ólympíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr því hægt er að kenna hundi að biðjast fyrir...

...mætti reyna að kenna lúterskum Íslendingum þessa merkilegu hegðun. Aldrei að vita nema að lútersku guðshúsin verði að bænahúsum, eins og þau ættu að vera skv. teoríunni, í stað þess að vera lítið meira en puntkubbur í landslaginu.
mbl.is Hundur á bæn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PR fulltrúi Saddams hafði þá rétt fyrir sér

Írak hefur orðið fjöldagrafreitur bandarískra hermanna. Margir hlógu þegar PR fulltrúi Saddams hélt þessu fram í sjónvarpi, um það bil er veldi Saddams var að hrynja og foringinn mikli á leið í felur.

En nú hefur komið í ljós, að gaurinn vissi "sínu" viti, eða þá að hann hafði hlustað þegar Saddam og gengi hans var að leggja drög að skæruhernaði gegn Könum og kumpánum þeirra á komandi árum.


mbl.is 4000 Bandaríkjamenn hafa fallið í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bannað að fitna?

Mætti banna að fitna á Íslandi líka. Sum okkar gætum þá átt hamingjusamari lífdaga.
mbl.is Sýningum „Fitna” frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlandvatn á myllu frjálslyndra

Já, súrt og mengað er vatnið sem rennur nú myllu frjálslyndra. Það er ömurlegt að svona lagað skuli gerast hér landi.

Hvað segja sumir kratar og kommar nú, þeir sem hæst létu í garð frjálslyndra sem sáu þetta fyrir og reyndu að vera samborgara sína við, eða er það ekki?
mbl.is Pólsk glæpagengi herja á aðra Pólverja hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyllerísfaraldur gengur yfir

Jafnvel fangageymslurnar eru blindfullar.
mbl.is Fangageymslur fullar í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paufinn

sagði Inspector Klúsó, reyndar í íslenskri þýðingu. Það er visast mannbætandi fyrir okkur í dag að líta á boðskap páfa, sem er eflaust ágætis náungi og óþarft að dæma hann fyrir syndir páfadómsins á öldum áður. En hitt er svo annað mál, að embættum, sem hefði svona mikið á samviskunni, ætti að öllu jöfnu að vera lokað með valdi, enda hafa fáir skapað eins miklar hörmungar og páfarnir í Róm.


Ég var einmitt að lesa um nokkra slíka áðan, og komu mér í hug lýsingar Erasmusar á páfunum; þær voru ekki fagrar síður en svo, en náðu þó ekki að lýsa með fullu réttlæti þeim viðurstyggðum, sem þar hafa fengið að grasséra.

En þrátt fyrir söguna megum við ekki að fordæma Benna kallinn, sem greinilega vill gera sitt besta og standa sig í stykkinu. En því miður held ég að fáir hlusti á hann eða taki alvarlega, nema e.t.v. í rammkaþólskum löndum. A.m.k. .þegar menn eru nýbúnir, eins og ég, að horfa á myndina "Frelsa oss frá illu" um spillinguna í KK hvað snertir kynferðislega misnotkun og fleira í þeim dúr.


En jæja, nenni þessu ekki lengur, farinn aftur að vinna. Tjaó.


mbl.is Páfi hvetur til friðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur vorið á vængjum yfir flóann?

Því miður virðist vorið ekki vera á leiðinni á vængjum sínum yfir flóann, nema vera skyldi á vængjum ónefndra dömubinda.

Ég auglýsi enn og aftur eftir Hnattrænni hlýnun. Hvenær ætli hún komi til okkar?
mbl.is Slydda eða rigning sunnan- og vestanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband