Ráðist gegn mafíunni

Jæja, ætli Íslendingar taki sig nú til og ráðist gegn austur-evrópskum mafíuhópum hér á landi. Síðan er auðvitað spurning hvort eitthvað verði gert við Hellismafíuna?
mbl.is Atlaga að mafíunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kuldapollur

Úff, er ekki hægt að senda þennan kuldapoll eitthvert annað? Mæli t.d. með að senda hann til Svíþjóðar.
mbl.is Lægðir og úrkoma út mars?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn Laugavegar

Spurning að fjarlægja kofana við Laugaveg og endurreisa þá í Lundúnum?
mbl.is Safn í Lundúnum vill varðveita Sirkus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hámark á miðnætti

Veðrið nær semsagt hámarki um miðnættið, segir Mogginn. Ég sem hélt að það væri veðurofsinn (eða vindurinn eða óveðrið) sem næði hámarki á eða um miðnætti.

Hvernig getur veðrið náð hámarki á miðnætti?

Hvernig væri það, ef það væri sól og blíða, logn og frábært veður? Hvenær myndi veðrið ná hámarki við slíkar aðstæður?

Bara að spá.


mbl.is Veðrið nær hámarki um miðnættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég veiktist í gær

um 0,57%. Ég er alveg miður mín og veit ekki hvað ég skuli gera í málinu.
mbl.is Krónan veiktist um 0,85% í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugsmálið: næsta umferð

Voðalega er maður orðinn þreyttur á þessu máli. Strákar, fer þessu ekki að ljúka?
mbl.is Fallist á húsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barkanum frestað

Já, ég held ég fylgi þessu fordæmi og þegi í nokkrar klukkustundir og spari barkann fyrir seinnipartinn, þegar ég mun virkilega þurfa á honum að halda.
mbl.is Barkanum frestað vegna veðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormur

Og vonandi blæs hann þessum snjó á haf út og hana nú.
mbl.is Stormi og mikilli rigningu spáð seint í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílastæðavandinn

Venjulega er um bílastæðavanda að ræða á mörgum stöðum. Það eru hreinlega of margir bílar á miðað við stæði.

Nú er vandinn stærri, því víða eru snjóskaflar þar sem áður voru stæði.

Og bíleigendur nenna ekki að labba og leggja bílunum amk hálfum úti á akstursleiðir og skapa með því hættu.

Svona gaura á að sekja og löggan að fjarlægja bíla þeirra á þeirra kostnað.
mbl.is Ágætis færð á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Galdrakarlinn í Oz

Spurning hvort hún leiki ekki frekar fuglahræðuna í Galdrakarlinum í Oz. Í fyrsta lagi er hún vaxin eins og fuglahræða og í öðru lagi sýnist mér á öllu, að þau eigi við svipað vandamál að stríða!
mbl.is Lohan langar að leika Lísu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband