Gleðilegt nýtt ár

flugeldar

Er Bush fyrst að fatta þetta núna?

Æ, common. Það má bara ekki hreyfa við þessum ofbeldissharíuliði þarna í Súdan til að styggja ekki Sauda eða eikkerja aðra.

Sveiattan.

Þessar hörmungar dynja yfir í Darfur og hafa lengi staðið yfir, í einni eða annarri mynd. Það er svoldið seint í rassinn gripið núna, eins og t.d. átti sér stað með Rúanda á sínum tíma.
mbl.is Áhyggjur af ástandinu í Darfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er svona merkilegt við Tarantino?

Jú, hann framleiðir útúrsteiktar ofbeldis- og drápsmyndir -- en það passar vel fyrir "friðsama" og herlausa Íslendinga.

Og hér er hann til að fá sér á broddinn, detta í það, horfa á rakettur og fara í "sund". Ég fatta ekki af hverju hann má þetta ekki eins og aðrir ferðamenn.

En persónulega sé ég ekkert sérlega merkilegt við þennan mann. En vísast fíla hann sömu aðilar og fíla Bush. Wink
mbl.is Fer á Rex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilega valið!

Fullur stuðningur af minni hálfu. Fíknó hefur staðið sig vel á árinu og undanfarin ár.
mbl.is Maður ársins valinn á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flest er nú hægt

"Lögreglumenn hafa nú fyrir og eftir jól farið með fíkniefnahundinn Bea til Þorlákshafnar til eftirlits með farþegum Herjólfs.  Í einu slíku eftirliti höfðu lögreglumenn afskipti af manni sem var að hagræða bifreið sinni í stæði um borð í skipinu.  Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn var sviptur ökurétti.  Þetta mun vera í fyrsta skipti lögregla á Selfossi kærir ökumann fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum um borð í skipi."


Voru KRingar að spila í Eyjum um helgina?
mbl.is Kærður fyrir akstur um borð í skipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki of snemmt fyrir Össur?

Sem hefur vísast verið að blogga annál ársins langt fram á nótt.
mbl.is Ríkisráðsfundur á Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp á næsta jökul

Ok, allir saman nú. Færum áramótin og áramótasprengingarnar upp á næsta jökul og höfum björgunarsveitirnar með. Þær skaffa dótið og síðan verður sprengt, og brotist til byggða með morgni.
mbl.is Stormviðvörun í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það ætti að sekta svona rugludalla

Hverjum dettur í hug að fara upp á jökul, á hálendinu, þegar spáð er óveðri? Hvaða aular eru þetta?

Þessir aðilar ættu að borga fyrir sig og hana nú.


mbl.is Jeppaferðalangar komnir til byggða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um það snýst leikurinn kallinn

Skrítið, að maðurinn sé knattspyrnustjóri og viti ekki að leikurinn snýst um að skora mörk! Grin
mbl.is Benítez: Gerðum allt nema skora
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borið úr bakkafullum læknum

"Niðurföll hafa ekki undan og flæðir skítur og pappír upp úr og niður í
tjörnina þar sem venjulega eru börn að gefa öndunum."

 

Úff, það er slæmt að búa í Kópavogi núna.


mbl.is Kópavogslækur flæðir yfir bakka sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband