Flís við rass?

Ja, úr því nú hafa menn tekið sig til við að ritskoða Biblíuna er eiginlega bara við hæfi að setja heiðið tákn á hana. Eða er það ekki bara? Wink


mbl.is Heiðið tákn á nýrri Biblíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cristiano Ronaldo til Ítalíu?

Ronaldodive2Það væri nú öllu nær. Þar myndi hann passa vel inn í "detta við fyrsta tækifæri" kúltúrinn. Hann gæti jafnvel haldið nokkur námskeið í dýfingum.


Og ungabarnið, sem hafði horft á Man Utd spila frá því það var á brjósti, kunni aðeins þrjú orð: "Mamma, pabbi, detta", og sagði það síðastnefnda alltaf þegar það sá Ronaldo spila.


Það er jafnvel komin út C. Ronaldo dýfingadúkka:

Og ekki að furða:
mbl.is Ronaldo: Dreymir um að spila á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kunningjaafgreiðslur og búðahnupl

Ég auglýsi hérmeð eftir vinum og kunningjum, sem hafa tök á að selja mér góðar jólagjafir á góðu verði.


Ég skil ekkert í mér að hafa ekki fengið svona í gegnum tíðina; hvorki spurt um né verið boðið.


Nýir vinir og kunningjar boðnir velkomnir.
mbl.is Starfsfólk stelur helmingnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pamela á pari

pamelaJæja, þá eru 2 mánuðirnir liðnir og nýr skilnaður tekur við. Og þetta er ekki í fyrsta sinn, og varla í það síðasta, sem Pamela giftir sig einhverju muppeti eftir að hafa þekkt hann í smá tíma, og endist varla út fyrsta ársfjórðung áður en hún byrjar að jarma um skilnað.


Ósættanleg sjónarmið?



Kannski hefði hún átt að kynnast sjónarmiðum hans, og annarra á undan, áður en hún þandi út sílíkonið og elti þá upp að altarinu?


Til þess eru: "sambönd", "sambúðir", "saman á föstu", osfrv.


mbl.is Pamela sækir um skilnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað segir Inga Jóna?

Var að lesa Mannlíf tbl. með steinamynd af Davíð Oddssyni utaná. Þar segir hreinlega, að Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona Geirs Haarde, stjórni í raun Sjálfstæðisflokknum og sé að plotta til að koma "hirðsveinum" Davíðs úr húsi.


Ef satt er, langar mig til að spyrja, hvort Inga Jóna hafi samþykkt þetta? Wink


Annars kemur mér voðalega lítið við hver stjórnar bakvið tjöldin. Mín vegna má Inga Jóna stjórna í laumi, ef vel er stjórnað.


Annars held ég að í Mannlífi sé verið að gera lítið úr Geir. Ég held nefnilega að hann sé ekki jafn vitlaus og þar er haldið fram, og hafi í raun sjálfstæðan vilja.


En hvað veit ég? Ég hef aldrei tekið þátt í pólítík.


mbl.is Ekkert athugavert við félag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitler talar um fótboltann í Englandi!


Jólagjöfin í ár!

veidikortid

Næst er það KR hverfið!

Kominn tími til að fjarlægja alla þessa KRinga úr KR hverfinu.
mbl.is Hreinsað til í Rauða hverfinu í Amsterdam
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff

Vona að svona kvikyndi fara ekki að breiða úr sér til annarra svæða. Mér finnst 1 stk. rotta nógu ógeðlsleg, þó 5x 1stk rotta fari ekki að blanda sér í málið.

Ojbarasta.
mbl.is Nýjar tegundir spendýra finnast í Indónesíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að refsa Cole?

Ja, það að þurfa að spila með Chelsea er næg refsing! Sammála Wenger, þó ég skilji stuðningsmennina vel, Cashley Cole hagaði sér eins og argasti hálfviti í félagaskiptamálinu.
mbl.is Cole á refsingu yfir höfði sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband