Óskabarn þjóðarinnar?

Eða óskabarn samkeppniseftirlitsins?

Nú er af sem áður var, þegar ekki mátti tala illa um Eimskip, nema af Hafskipsmönnum.
mbl.is Eimskip fær 310 milljóna sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýmislegt að gerast þarna suðurfrá

Jæja, nú líður að jólum í Landinu helga. En jólafriður er ekki mikill, þó ástandið sé vissulega skárra núna en oft áður.


story_veil_afpFrá mínum bæjardyrum séð er ýmislegt að frétta. Meðal annars eru ákveðin vandræði í samskiptum Ísraels og Egyptalands, eftir að Ísraelsmenn sendu vídeóupptökur af egypskum hermönnum hjálpa Hamas við að smygla vopnum inn á Gasa. Og jafnframt hverfi hópar Hamas manna frá Gasa, undir því yfirskyni að fara í pílagrímsferð, en séu í raun á leið til Írans í þjálfunarbúðir. Þetta, og skýrslur amerískrar sendinefndar, sem m.a. rannsakaði landamæri Egyptalands og Gasa og athugaði smyglgöng Hamas manna, gæti þýtt að fjárhags- og e.t.v. hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Egypta verði seinkað, uns úrbætur hafi verið gerðar og vopnasmyglið til Gasa hefur verið stöðvað. Það gæti gengið illa, því Mubarak, forseti Egyptalands, vill frekar að vopn fari til Gasa en til Kairó. En Kanarnir hafa lofað að hjálpa Egyptum að stöðva vopnasmyglið.


d_bloggi_heil_hamasOg Hamas heldur rallí og kennir Ísraelum og Vesturlöndum um slæmt ástand mála á Gasa (og jafnvel nokkrir hér á landi taka undir!). Condí Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitar því alfarið og segir, að Hamas sé um að kenna með framferði sínu, stefnumálum og kúgun þegna sinna. Já, Hamas er öflugt, á stuðningsmenn víða, hér á Íslandi og í Arabaheiminum, en t.d. er óvíst hvort arabaríkin greiði umsamda styrki til Palestínsku heimastjórnarinnar til að styggja ekki Hamas.


06_09_24_Fleecers-XEn er ekki allt í góðu milli Abbasar og hans manna og Ísraela? Ja, ekki alveg, en nýlegt morð á Ísraela á Vesturbakkanum var framið af öryggissveitum Abbasar og með vopnum, sem Ísrael heimilaði innflutning á, til að styrkja öryggissveitirnar. Svona "smámál" eru kannski ekki ágreiningsefni ein og sér, en þegar mörg slík mál safnast saman, gætu þau haft áhrif á samskiptin, ekki síst þegar tvítungan fræga er aftur komin á kreik, en eins og á dögum Arafats er leiðtogi Palestínumanna jafnan með tvær tungur í gangi, þá friðsamari gagnvart Ísraelum og Vesturlöndum og aðra herskárri, sem notuð er í tilkynningum til eigin manna.


Árás Ísraela á eldflaugaskotmenn Islamic Jihad hefur heldur varla orðið til að auka friðinn, en atlagan var gerð á hendur mönnum, sem hafa staðið fyrir eldflaugaárásum á Ísrael meira og minna daglega í 18 mánuði.

Og "góðar" fréttir frá Íran. Lögreglan var að enda við að loka 24 internet-kaffihúsum vegna siðspillingar internetsins, að því að segir í frétt Reuters og New York Times.

Æjá, ýmislegt að gerast, en ekki allt jákvætt.


Emil ætti ekki að leiðast núna

Hann getur jafnvel tekið nokkra með sér í smiðjukofann. Wink
mbl.is Tugir katta í Kattholti um jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur sigur

Kjúklingarnir í Arsenal (meðalaldur 20 ár) sigruðu fullskipað lið Blackburn 2:3 eftir framlengingu.

Og það þrátt fyrir að spila einum færri í framlengingunni, en þegar hún hófst var staðan 2-2.


Arsenal komst í 2-0, en síðan skoraði Blackburn mark, sem ég held að hafi verið rangstæða. Verulega sárt, en ég sá ekki betur í endursýningu á Sky, en að Derbyshire (eða hver það var sem sendi fyrir) hafi verið rangstæður þegar boltanum var sparkað á hann.

En Arsenal hafði þá átt að vera búið að klára,með skot í slá og svoleiðis. En það kostar! eins og Steini segir gjarnan.


Arsenal hafði verið miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik, en verr gekk i síðari hálfleik og máttu börnin þakka fyrir að sleppa með 2-2 úr því sem komið var.


Og sætt að sigra, skora sigurmarkið manni færra. Og með kjúklingaliðið inná.

Glæsilegt drengir. Til hamingju.
mbl.is Tottenham og Arsenal komust áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning að fá hana á árshátíð Kaupþings?

Vísast yrðu menn mjög hrifnir af því að heyra hana lesa norskar ástarsögur.

En ég skil ekki hvers vegna prinsessa fær að gera svona í það í landi eins og Noregi? Ekki nema Noregur hafi breyst svona mikið undanfarið.
mbl.is Prinsessan las erótísk ævintýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkt prúðmenni á velli

Og því kemur þetta algjörlega í opna skjöldu Wink
mbl.is Jóhannes Karl í fjögurra leikja bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að fordæma "meinta innrás"?

Fyrst verður að tryggja, að innrásin hafi átt sér stað til að hægt sé að fordæma hana, hafi menn áhuga á því svosem.


mbl.is Fordæma ekki meinta innrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólalögin

Jæja, Vantrú og/eða Siðmennt hljóta nú að vilja banna jólalög í útvarpi líka?

Það er verið að þvinga ofaní fólk trúarboðskap. Ef menn vilji hlusta á jólalög, geti menn bara keypt sér diskana.

Það er nánast sama á hvaða stöð er, alls staðar eru jólalögin. Hvergi friður. Þetta hlýtur að vera mannréttindabrot?!
mbl.is BBC ritskoðar jólalag Pogues
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju reiddust goðin?

Jahérna, hvað voru þá eldflaugaárásir Islamic Jihad á Ísrael síðasta árið og rúmlega það? Smáeldflaugaárásir þessar hafa verið nær daglegt brauð í meira en ár, og nú, þegar Ísraelar svara fyrir sig og negla þá gaura sem hafa staðið fyrir þessu, verða vinir þeirra brjálaðir. Hverju reiddust goðin þegar þeir hófu að skjóta Katuysha á Ísrael? Hverju var verið að hefna þá?


Hvernig telja þessir menn sig eiga skilyrðislausan rétt til að lifa, ef þeir una ekki öðrum þess sama. Þeir beita sverði og falla fyrir sverði. Þeir gátu sjálfum sér um kennt.


mbl.is Ísraelum hótað hefndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bissness í janúar?

Það virðist vera alveg sama hve miklu Liverpool eyðir í leikmenn, ekkert gengur á heimavígstöðvunum. Liðið hefur stóran hóp sterkra leikmanna, en ekkert gengur. Að vísu vantar hafsenta í liðið, en ok. Það er vandamál Benna.


EN getur ekki verið að vandamálið sé, að Liverpool hefur ekki gefið sér tíma til að ala upp efnilega leikmenn, heldur kaupir "miðaldra" leikmenn, sem hafa sannað sig annars staðar, og ætlast til að þeir sjái um þetta?


Best væri fyrir Benna, að selja einhverja af muppetunum, kaupa sér hafsent sem meikar sens, en snúa sér síðan að því að ala upp efnilega unglinga.


Þangað til verður Liverpool alltaf skrefinu á eftir hinum stórveldunum í enska boltanum, amk hvað snertir deildakeppni, þó liðið sé svosem ágætt í bikarleikjum gegn fullorðnum leikmönnum.


mbl.is Fregnir um kaupbann hjá Liverpool bornar til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband