Afsökunarbeiðni til lesenda

Æ, meira bullið í manni.

En ég er bara svona. Ég er semsagt snorrískur, sem mér skilst að útleggist sem "léttgeggjaður með alvarlegu ívafi".

En ég ætla ekki að breyta mér í neinn annan (og sérstaklega ekki í nöldurgjarnan sósíalista eða bitlingafúsan framsóknarmann) og skríð með það í skjól stjörnuspárinnar í dag.

 

Stjörnuspá

HrúturHrútur: Þú ert einstakur. Heimurinn vill frá þér það sem aðeins þú getur gefið honum. Eða eins og Billie Holiday sagði: "Ef ég á að syngja eins og einhver annar, get ég alveg eins sleppt því".


So, take it or leave it....ok, please don't leave it! Mér finnst gaman að fá ykkur í heimsókn.

Klónun framundan?

Ok, afsakið, en ég gat ekki staðist það, að lauma eftirfarandi. Þetta er ekkert illa meint! Wink


Úr því að nú er hægt að fjölfalda apa er ljóst, að framsóknarmönnum muni fjölga verulega á næstu árum.


Úbbs, sorry.


mbl.is Vísindamenn segjast hafa einræktað fósturvísi úr apa í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elliheimilinu lokað

Jæja, Danir ætla ekki að mæta með elliheimilið á völlinn. Úff, hefði viljað sjá Helveg reyna að passa Emil Hallfreðsson.

En ætli við náum að forðast stórtap? Og ætli Óli Jó nái einhverju nýju úr liðinu?
mbl.is Helveg ekki með gegn Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers að giftast tík?

Já, margir karlmenn hafa spurt sig þessarar sömu spurningar. Sumir hafa þó látið verða af því, m.a. nokkrir frægir leikarar í Hollywood!


Að vera giftur bitch er kannski ekki það eftirsóknarverðasta, en þessi Indverji var greinilega mjög staðfastur í ákvörðun sinni.


mbl.is Giftist hundstík til að aflétta bölvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá big deal

Rosalegt! Vinsælasta fréttin á mbl.is er að Eiður skorar út vítaspyrnu (ég meina, ég hefði getað skorað úr vítinu) gegn smáliði í bikarkeppninni.


En gaman fyrir strákinn að komast á blað og spila allan leikinn. En voðalega erum við æst í stráksa, fyrirliða lélegasta landsliðs Íslands í mörg, mörg ár.
mbl.is Eiður Smári skoraði í sigurleik Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfði greinist með sykursýki

Mér líst vel á þetta framtak. Allskonar hópar eða hagsmunasamtök "eiga" ákveðinn dag ársins og af hverju ekki sykursjúkir?


Það er ekki eins og að þetta sé fágætur sjúkdómur, heldur plága, sem hefur riðið yfir heiminn á síðustu áratugum, sérstaklega, en hefur auðvitað lengi verið til og á það jafnvel til að vera ættgengur.


Með aukinni offitu, sérstaklega í Vestur-Evropu og í Bandaríkjunum, mun sykursýki breiðast hratt út á næstu misserum, það er ég alveg viss um. Það er um að gera fyrir þá, sem gruna að þeir hafi fengið þetta, að fara strax til læknis. Það sparar óþarfa leiðindi og er þess aðeins valdandi, að erfiðara verður að meðhöndla sykursýkina, þegar hún að lokum uppgötvast.


Gott "próf" er að kaupa sér bland í poka fyrir 200 kall, hlaup og svoleiðis drasl, og hakka þetta í sig. Ef menn fá svima eða líður skringilega er ljóst, að næsta skref er að leita læknis og fara fram á sykursýkisrannsókn.


Sykursýki á ekki að vera neitt feimnismál. Framsóknarstrákurinn frá Sigló kom fram hér í haust og sagði frá þessu opinberlega. Fleiri mætti koma fram og lýsa reynslu sinni af sykursýki, til dæmis hér á blogginu.


Ég get nú bara sagt það fyrir sjálfan mig, að þegar ég lét loksins verða af því að fara í skoðun hefur líf mitt breyst. Ég hef miklu meiri orku og úthald; ég er ekki þreyttur allan daginn eins og áður. Nokkrar pillur á dag koma heilsunni í lag!

Insúlin, já takk.


mbl.is Höfði blár í þágu sykursjúkra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útreið kratanna

Jæja, maður hefur nú séð það verra!


Þetta er auðvitað ekki búið, en mér líður núna eins og þegar Liverpool eða KR eru tveimur mörkum undir og aðeins nokkrar mínútur eftir.
mbl.is Danska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt kosningaspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta vantar sárlega á Íslandi

En þetta gæti verið komið eftir nokkur hundruð ár þegar einhver mannfræðingurinn kemst að því, með hjálp svona apparats, að allir "innfæddir" Íslendingar væru komnir undan t.d. Hermanni Jónassyni eða Ómari Ragnarssyni.
mbl.is Danskir feður kaupa erfðaefnisgreiningu til að staðfesta faðerni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spiderman

Þetta er auðvitað ótrúlegt afrek hjá barninu og hugsanlega hefur hann talið sér allt fært þegar hann var klæddur í búning Köngulóarmannsins.


En staðreyndin er, að búningur er að öllu jöfnu ekki nóg. Ég verð ekki endilega lögreglumaður, þó ég fari í löggubúning (nema ég sé útskrifaður úr lögguskólanum) og menn verða ekki endilega góðir fótboltamenn, þó þeir klæðist Spurs búningnum (og ef þeir voru góðir fyrir, hafa þeir þá tilhneigingu að versna við að ganga í raðir Spurs!).


Og menn verða ekki endilega góðir stjórnmálamenn, þó þeir eigi sæti á Alþingi.


Þetta snýst nefnilega um það sem er INNI í manneskjunni, ekki því sem er hið ytra. Fyrir mér breytir engu hvort fólk hefur t*** eða p***, ef það er hæft í sínu hlutverki, starfi, etc.


Það er hinn innri maður sem skiptir máli; hæfileikar, geta, menntun, skapgerð og þess háttar sem skiptir máli, en hvorki útlit, fatnaður né látalæti.


En í tilfelli 5 ára Köngulóarmannsins í Brasilíu skaðaði það ekki að fara í réttan búning, en þegar á hólminn var komið var það skapgerð (karakter) drengsins og það, sem innra bjó í honum, sem gerði það að verkum, að hann réðst á garðinn þar sem hann var hæstur og vann hetjudáð.


Litla hetjan á hrós skilið fyrir þetta, ekki spurning.
mbl.is Kóngulóardrengur bjargaði ungbarni úr brennandi húsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamas og Musharraf

Jæja, þetta lið vildu íslenskir sósíalistar helst ganga í eina sæng með, eða a.m.k. taka upp "eðlileg" samskipti við. Þá er ég að tala um Hamas.


Spurning hvort Ögmundur vilji nú ekki gera mann út af örkinni hans Steingríms og hefja "eðlileg" samskipti við Musharraf, já, eða Castró á Kúbunni, þar sem mannréttindi og frelsi eru einna mest fótum troðin í heiminum?


Alltaf gott að eiga góða bandamenn!
mbl.is Tugir félaga í Fatah handteknir á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband