Barujarnshus vid Bergthorugotuna

Ja, gaeti truad thessu. Vid hefdum att ad halda ibudinni vid Bergthorugotuna og selja hana nuna.

Roar, morkid lyklabord.

Kvedjur heim hedan ur snjonum og frostinu.
mbl.is Verð hússins fimmfaldaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalveiðar Japana og...

Hvalir éta meiri og fleiri sjávardýr en við mennirnir. Þeir hakka þó ekki aðeins í sig þorsk, síld og aðrar þær tegundir, sem maðurinn veiðir sjálfur, heldur éta þeir í miklum mæli fæðu þorsks og annarra nytjastofna. 


Það er svolítið kaldhæðnislegt, að á meðan kvótinn minnkar hér á Íslandi, er hvalveiðum hætt. Ef við gefum okkur að t.d. þorskstofninn við Ísland sé X stærð, "þorskkakan" við Ísland, þá tökum við sífellt minna og minna af kökunni, sneiðarnar eru bæði smærri og færri.


En á sama tíma fjölgar hvölum gríðarlega, bæði vegna veiðibanns á hvalina sjálfa og vísast vegna minnkandi veiði mannsins, sem skilur þá meiri fæðu eftir fyrir hvali og einnig seli, sem eru engu skárri en hvalirnir.


Í mínum huga meikar það einfaldlega ekki sens, að reyna að byggja upp þorskstofninn og aðra nytjastofna við Ísland, meðan hvalnum er ekki haldið í skefjum. Svo einfalt er það. ENda held ég að við eigum eftir að klúðra þessu rækilega. Með minnkandi kvóta erum við ekki að byggja upp stofninn, heldur að gera hvölunum lífið bærilegra.


Og til hvers?


mbl.is Segja óþarft að veiða hvali til að rannsaka þá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Detroit og Reykjanesbær

ættu að fara að stofna vinabæjartengsl.
mbl.is Detroit lýst hættulegasta borg Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir fyrir fótboltaáhugamenn

Menn hljóta að hafa eitthvað betra við bæði tíma og peninga að gera en að horfa á AC Milan spila. Þeir eru næstum því eins leiðinlega spilandi og Liverpool og Blackburn.
mbl.is Áhorfendur fá ekki að mæta á leik Atalanta og AC Milan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómsdagssöfnuður í Helli?

Jæja, þarna er þá loksins fundin hin eiginlega Hellismafía.


En spurning hvort ekki ætti að rukka þetta lið um félagsgjöld áður en það sveltur?
mbl.is Dómsdagssöfnuður bíður eftir heimsendi ofan í helli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning með málamiðlun?

Að strákarnir á torrent.is myndu einfaldlega banna íslenskt efni?
mbl.is Lögbannskrafa tekin til greina og Torrent vefnum lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjörnumerkistvíburar athugið!

Stjörnuspá

HrúturHrútur: Þú ert sjálfsöruggur og til í hvaða áskorun sem er - sérstaklega ef ástin kemur til sögu. Steingeit vill vinna hjarta þitt með tímanum, en tvíburi núna.



Ég verð því miður að hryggja kvenkynstvíbura með því, að ég verð vant við látinn næstu vikurnar. Áhugasamar tvíbura-stúlkur á aldrinum 25-40 geta þó sent CV, mynd og helstu upplýsingar á meilið snorri@centrum.is

Og kvenkyns Steingeitur geta gert hið sama...upp á framtíðina að gera!


Roar, annars trúi ég ekkert á þetta, en þetta var bara of fyndið til að sleppa.

Húrra fyrir Melua

Alveg sammála Melua. Þar fer greinilega stúlka með fullu viti. Óþolandi að sjá þetta pakk koma óorði á tónlist og fegra ímynd þessara drápsvéla.
mbl.is Katie Melua skammast út í Winehouse, Doherty og Moss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sæla - unaður - fullnægja

Úff, ég fékk Hinrik á Brautarstöðinni til að elda sitt ubersolid Mexican Lasagna í hádeginu í dag. Og hvílík sæla - unaður - fullnægja.


Ég er núna korteri seinna enn að stynja af sælu og bragðið er enn í munninum.


Þetta lasagnasystem hans Hinriks er einfaldlega óborganlegt. SS myndi stórgræða á því að kaupa uppskriftina og skipta þessu inn fyrir þetta ubermorkna lasagna sem þeir selja undir 1944.


Mæli með þessu...

Sorglegt

FJórir unglingar, 16 ára og ekki á sakaskrá, stóðu að þessu ráni í Hlíðunum. Sorglegt.


Mjög sorglegt.
mbl.is Unglingar játuðu að hafa framið vopnað rán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband