Úreld frétt hjá Mogganum

TRingar eru að sjálfsögðu langefstir eftir 7,5-0,5 sigur á Eyjamönnum og hefði sigurinn átt að vera stærri. Ég tefldi á autopilot, en mótherji minn gerði sömu stöðulegu feilana og Kazimierz Olszynski fyrr á árinu og gjörtapaði. Og ég þurfti bara að leika sömu leikina og gegn Kaz. Sjaldan unnið skák jafn auðveldlega.

En nánar um 3.umferð Íslandsmóts skákfélaga má finna á www.skak.is
mbl.is Haukar halda forustunni á Íslandsmóti skákfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmenn sektaðir

fyrir að pissa á Valhöll.
mbl.is Ellefu ákærðir vegna óviðeigandi hegðunar í borginni í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Ísland

Koma svo strákar! Hefna fyrir skandalinn í Ríga.

Ég kemst því miður ekki á völlinn, en hugsa hlýtt til strákanna ofan úr Grafarvogi. Áfram Ísland.
mbl.is Ósigur gegn Lettum, 2:4, en Eiður sló markametið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gervigreind

Greinilega hef ég misskilið þetta orð.

Ég hélt að þetta væri notað yfir stjornmálamenn, sem þykjast gáfaðir en eru það ekki.
mbl.is Skundar á gervigreindarhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haukar fljúgja hæst

Jæja, 1. umferðin búin. Haukar unnu Eyjamenn, sem senda vængbrotið lið til leiks og munu vísast falla beint niður í 2. deild. Og það, að hafa Helga Ólafsson á 1. borði virðist ekki geta lyft liðinu á hærra plan, því meðreiðarsveinar hans munu jafnan verða nokkrum stöðlum fyrir neðan amk flesta mótherja sína.

EN góður sigur hjá Haukunum engu að síður.


Akureyri a vann aðeins 5-3, og Hellismenn a sigruðu b-lið sitt 6-2, þar sem formaðurinn vann fyrrv. formann, en sá fyrrnefndi er í b-liðinu. Þeir tveir voru, m.a. ásamt mér, stofnendur Hellis og hafa haldið dampi með félaginu frá upphafi og stjórna hinnu svokölluðu Hellismafíu af miklum þrótti.

Við T.R. eigum að geta gert betur, en þetta hafðist þó í gær þó naumt væri.

 

En gaman að sjá þarna í gær Friðrik Ólafsson, Karl Þorsteins og Hrafn Loftsson sem hafa ekki teflt nokkuð lengi á Íslandsmóti skákfélaga.


mbl.is Haukar efstir eftir 1. umferð Íslandsmóts skákfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hart barist í kvöld: Friðrik teflir aftur!

Mörg skemmtileg úrslit áttu sér stað. Meðal annars vann formaður Hellis, og félagi í 100 kílóa liðinu (b-liði Hellis), Gunnar Björnsson, fyrrv. formann Hellis, Davíð Ólafsson úr a-liðinu!

Við TRingar fórum illa að ráði okkar. Þrölli missti niður unnið tafl og Hannes tapaði steindauðu endatafli af einhverjum ástæðum. Mörg jafntefli áttu sér stað í þessari hörkuviðureign gegn Fjölni, sem styrkt hefur lið sitt með erlendum og innlendum meisturum. Nefna má, að Friðrik Ólafsson tefldi á 4. borði fyrir T.R. og gerði jafntefli.

Við Jón Viktor unnum hina traustu skákmenn Tómas Björnsson og Jón Árna Halldórsson á neðri borðunum. Það er svoldið shaky hjá mér að fara að rifja upp svona lagað, en þeir eru stundum kallaðir jafnteflisbræðurnir.

Af þeim er Jón Árni, hinn indæli drengur, stundum kallaður Hr. Jafntefli. Hann er einnig málsvari Norður-Kóreu hér á landi, þar sem sósíalisminn ríkir.

Og því, eins og ónefndur skákari og fyrrv. bloggari sagði, boðar hann "frelsi, jafnrétti og bræðralag", ja, eða "frelsi, jafntefli og bræðralag". Þessi var svoldið góður.

En TR vann þó Fjölnismenn í kvöld, en að vísu bara með minnsta mun. Ég er alls ekki ánægður, en svona gerist stundum. Ég get þó huggað mig við, að ég vann góðan sigur með því að svíða Jón Árna með svörtu. Það er alls ekki svo auðvelt.

En áfram heldur þetta á morgun. Áfram TR.
mbl.is Fjölmennasta skákmót ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Henry á Egilsstöðum?

Og með honum fjórir eða fimm núverandi Arsenal leikmenn. Þetta er eina skiptið sem ég hefði óskað þess að búa á Egilsstöðum.
mbl.is Franska landsliðið veðurteppt á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölþreifni

Var Binga kunnugt um fjölþreifni sjálfstæðismanna? Heyrði hann það frá Gróu á Leiti? Eða las hann það í Tímanum 1971?


En amk; hér er semsagt orð Binga á móti orðum sjálfstæðismanna, sem harðneita framhjáhaldi.


Hvor ætli sé að plata?


Eða kannski var einhver að plata Binga?


mbl.is Björn Ingi: Þreifingar fóru fram af hálfu sjálfstæðismanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Britney Cole?

Alltaf sama ruglið með þennan vandræðaungling Ashley Cole, eða Cashley, eins og hann er kallaður.


En að þessi söngkona sé rugluð líka, það vissi ég ekki fyrr en núna.
mbl.is Erfitt að finna rétta daginn fyrir getnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Don Alfredo hefnir sín

Jæja, eftir að hafa verið snubbaður af heilbrigðisráðherra, sem er nánasti bandamaður gamla góða Villa borgarstjóra, rís Don Alfredo upp á afturfæturnar og safnar vopnum sínum.


Æjá, hann kallar bara saman "gamla gengið" og "ræður nýliða". Og gamla mafían er komin saman aftur undir hugmyndafræðilegri ásjónu guðföðurins, Don Alfredo.


Og þetta er maðurinn sem skrifaði um skák í Tímann á sínum tíma.
mbl.is Alfreð Þorsteinsson hafði samband við Dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband