Stöð 2 týndi rétti sínum

Æ, greyin, þau týndu rétti sínum og eru nú að leita hans.


En miðað við okrið á Stöð2 og Sýn (svo ekki sé talað um Enska boltann á Sýn), hef ég enga samúð með þessu fyrirtæki.
mbl.is Stöð 2 leitar réttar síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bannaður í Kína?

Luxemborg City o.fl 025Jæja, nú þekki ég tvo kappa í Kína. Annar að koma, hinn að fara. En báðir eru þarna.

Annar þeirra hefur löngum haft mikla ánægju af því að tala illa um mig, en sér til mikillar "ánægju" komst hann ekki inn á http://hvala.blog.is í Kína og hefur því haft lítið úr að moða til árása á mig síðustu dagana. Þ.e. Kínverjar hafi áttað sig á spillandi áhrifum mínum og bannað síðuna! Og RUV líka bannað í Kina, eða er hann bara að bulla eins og venjulega?

Mig grunar þó, að tæknin sé að stríða, því ég átta mig ekki á, af hverju Kínverjar ættu að setja mig á bannlista. Og Spongebob hafi bara tekið sér "skáldaleyfi" í þessu.

En gaman að þessu samt!

Fyrsta stórmót vetrarins

skak-logo1Haustmót Taflélags Reykjavíkur 2007 - MP mótið 2007


Sunnudaginn 21. október kl. 14:00 hefst Haustmót Taflfélags Reykjavíkur - MP mótið 2007. Mótið er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót TR. Það er áratuga gömul hefð fyrir hinu vinsæla Haustmóti TR og er það flokkaskipt. Það er öllum opið og eru skákmenn hvattir til þátttöku í þessu fyrsta stórmóti vetrarins. Mótið er styrkt af MP fjárfestingabanka.

Teflt verður í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, í skákhöllinni Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum og eru góð verðlaun í boði í öllum flokkum. Alls verða tefldar 9 skákir í hverjum flokki. Í efstu flokkunum verður teflt í lokuðum 10 manna flokkum, en í neðsta flokki verður teflt eftir svissnesku kerfi.

Hægt er að tilkynna þátttöku í netfangið taflfelag@taflfelag.is eða í síma 895-5860 (Ólafur Ásgrímsson).

Skákstjóri er hinn gamalreyndi og síungi Ólafur S. Ásgrímsson. Hin eina og sanna Birna sér um veitingar.

Lokaskráning í A og B flokk lýkur laugardaginn 20. október kl. 20.00.

Valið verður í A-flokk eftir alþjóðlegum FIDE stigum, en í aðra flokka eftir íslenskum stigum.

Dagskrá Haustmótsins er þessi:

1. umferð: Sunnudag 21. október kl.14.00
2. umferð: Miðvikudag 24. október kl.19.30
3. umferð: Föstudag 26. október kl.19.30
4. umferð: Sunnudag 28. október kl.14.00
5. umferð: Miðvikudag 31. október kl.19.30
6. umferð: Föstudag 2. nóvember kl.19.30
7. umferð: Sunnudag 4. nóvember kl.14.00
8. umferð: Miðvikudag 7. nóvember kl.19.30
9. umferð: Föstudag 9. nóvember. kl.19.30

Verðlaun í A-flokki:
1. verðlaun kr. 100.000
2. verðlaun kr. 60.000
3. verðlaun kr. 40.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2008

Verðlaun í B-flokki: 1. verðlaun kr. 20.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2008

Verðlaun í C-flokki: 1. verðlaun kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2008

Fyrirkomulag: A- og B- flokkur eru lokaðir 10 manna flokkar þar sem allir tefla við alla. C-flokkur er opinn flokkur þar sem tefldar eru 9 umferðir eftir Svissnesku kerfi. Ef þátttaka fer yfir 50 verður C-flokkur gerður að lokuðum flokki og opnum D-flokki bætt við. Í því tilfelli verða verðlaun í C-flokki þau sömu og í B-flokki.

Tímamörk: 1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik.

Þátttökugjöld:
3.000 kr. fyrir félagsmenn T.R. 16 ára og eldri (4.000 kr. fyrir aðra)
1.500 kr. fyrir félagsmenn TR 15 ára og yngri (2.000 kr. fyrir aðra).

Stjórn T.R.


Gott hjá Guðfinnu

Alltaf þegar fólk kýs eftir sannfæringu sinni, burtséð frá því hvað er vinsælt eða talið líklegast til árangurs.

Frábært Guðfinna.
mbl.is Harma afstöðu Guðfinnu Bjarnadóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsið og ég

Jæja finnst okkur rigningin góð?

 

En á hinn bóginn er þessi "rigningartíð" aðeins smámunir í samanburði við sumarið 1983!


Já, við gömlu kallarnir munum tíðina tvenna! :)


mbl.is Mesta vætutíð í Reykjavík frá 1993
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heita vatnið

Eins og Páll Vilhjálmsson sagði gjarnan:

"Af hverju heitir heita vatnið heita vatnið"?

"Nú, eitthvað verður það að heita, vatnið".


mbl.is Heitavatnsstuldur rannsakaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf sama sagan með kommana

Þeir ná jafnan ekki að verða við kröfum fólksins. Það er bundið í eðli slíkra flokka.


Sá kínverski er þó einna skástur þeirra, þ.e. á síðustu misserum, en hann hefur opnað landið nokkuð, en vissulega ekki nóg. Enn eru höft á frelsi fólks og Kína styður jafnframt nokkur vafasöm stjórnvöld, formlega eða óformlega. En það gera flest ríki, jafnvel Íslendingar.


En jæja. En mig langar að spyrja, hvaða fatahönnuður hannað einkennisbúning kínverskra kommúnista á flokksþinginu?


Mig langar í svona jakkaföt!


mbl.is Forseti Kína segir Kommúnistaflokkinn hafa ekki orðið við kröfum fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að skjóta Pútin?

Ja, ef svo er, tel ég að Íranir verði meðal þeirra síðustu til að hafa áhuga á því. Pútin hefur reynst þeim haukur í horni og því er liklegra, að múllarnir í Tehran reyni frekar að vernda kappann en skjótann.


Fyrir utan sjálfsagða gestgjafaskyldu.


mbl.is Íranar vísa á bug fréttum um áform um tilræði við Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl og vitleysa

Hjá þeim báðum, Lehmann og Almunia.

 

Fabianski er betri en þeir báðir og hana nú.


En ég skil ekki hvað Lehmann er að væla. Hann er bara þriðji besti markvörðurinn hjá Arsenal.


mbl.is Lehmann býst ekki við öðru en að spila gegn Bolton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slydda

Æ, stundum er gott að búa á Suðvesturhorninu. Ja, eiginlega er það yfirleitt ágætt.


Hér er þó engin slydda, en leiðinlegt veður fyrir því.


Rok og rigning er ekki tebollinn minn, jafnvel þegar rigningin er lítil og nanast hverfandi.


Meira rokrassgatið er eiginlega hér á Íslandi. Og það jafnvel á svæðum utan stór-Keflavíkursvæðisins.
mbl.is Slydda norðantil á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband