Sarkozy brunar til Indlands

En myndi hann ekki bruna bæði hraðar og betur ef Bruni væri með honum?
mbl.is Bruni ekki með Sarkozy til Indlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alls staðar er Dagur til vandræða!!

Happy  Og nú er brotist inn meðan á honum stendur.Wink  Gasp  
mbl.is Brotist inn að degi til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta Fischer mál er spúkí

og verður að komast á hreint.


Ég veit hreinlega ekki hverju skal trúa og því er vísast best að skera úr um þetta mál með afgerandi hætti, s.s. þátt Garðars Sverrissonar, aðkomu/leysi lögerfingja Fischers, flýtirinn, útförin, osfrv.

Og síðan, hvað verður um eigur Fischers.


Þetta þarf allt að skýra með afgerandi hætti.
mbl.is Kannar lagalegan rétt ættingja Fischers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blindur leiðir blindan

Jæja, þetta er merkilegt.

Guðrún Ásmundsdóttir fylgir Margréti sinni hvert sem hún fer, og Margrét svarar kalli pabba gamla sem vill hefna sín á Sjálfstæðisflokknum, sem vildi ekki látann misnota Landsbankann í eitthvað einkapot....eða af hvaða ástæðum það var, sem hann var nú rekinn.

En kjarni þessa einstaka máls er, að Sverrir Hermannsson er í fýlu út í Sjallana, og það mikilli fýlu, og hún heldur áfram í Margréti og berst þaðan í Guðrúnu.


Jæja, Sverrir hefur þá áhrif í pólítíkinni eftir allt saman.
mbl.is Margrét og Guðrún með gamla meirihlutanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ, er það ekki bara ágætt?

Verður þá ekki einum farþeganum færra?
mbl.is Garcia ekki með gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn listinn

Ég nenni nú ekki að skoða þetta, en ég yrði ekki hissa þó þarna séu á ferðinni atvinnu-listamennirnir, sem nýlega stóðu að Steina-Davíðs listanum. Amk voru það ungir jafnaðarmenn, sem í bæði skiptin mótmæltu hæst (en sleppa því auðvitað þegar um vafasama eða umdeilda hluti er að ræða hjá krötum!!)

En ég spyr: ef vandamálið er að þetta stendur og fellur með einum manni, hvers vegna fór þessi listi ekki af stað í október, þegar fjórir flokkar, sjálfum sér sundurleitir, fóru af stað í vegferð með veikan minnihluta og hnífasett á lofti?

Ég ulla á svona rugl.
mbl.is Mótmæla nýjum meirihluta í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla verri en sá fyrri

Þar sem voru fjórir flokkar, með meðfylgjandi hrossakaupum, þar sem allir þurftu að fá eitthvað fyrir sinn snúð, bitlinga og gæluverkefni osfrv.

Þessi meiri hluti verður amk ekki veikari, ekki síst þar sem Bingó, hin tifandi tímasprengja, er ekki með, og Dagur sem betur fer ekki borgarstjóri með sérlundaðar skoðanir sínar, s.s. hvað snertir Sundabraut og mislæg gatnamót á Kringl/Mikl.

Þessi meiri hluti er greinilega betri en sá fyrri, en ég trúi því ekki fyrr en ég taki á, að Margrét Sverriz muni fellann, taki hún sæti, vitandi að allt færi í sama farið um leið og Ólafur kæmi aftur. Jafnvel Margrét getur ekki verið svo óábyrgur stjórnmálamaður, þó vísast sé það pabbi gamli sem öllu ráði, með bitur sverð á lofti og slatta af hnífasettum. 
mbl.is „Nýr meirihluti óstarfhæfur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er betra en Rugl-listinn

Nú eru ungir jafnaðarmenn ókátir. Rétt eftir að herferð þeirra í Stóra-SteinaDavíðs-málinu hlaut háðulegan endi.

Málefnaskrá hins nýja meiri hlut er góð, að mínu viti. Og það þarf vísast ekki að óttast að skrifað verði hjá borgarstjórn föt, hnífasett eða annar varningur.

EN hvað ég er feginn að losna við Dag, Bingó og co úr stjórnunarstöðum í Rvk.
mbl.is UJR harma ákvörðun Ólafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíunum ekki alls varnað

Mér líst vel á þetta. Vel gert hjá þeim Nordisku í Stokkhólmi.

En hitt er svo annað mál, hvort Þjóðminjasafnið geti tekið við svona mörgum gripum?

Ég þekki ekki vel til núverandi stöðu safnsins, en maður hefur á tilfinningunni að þessi gripir fari bara beint í geymslu og verði þar næstu 30 árin, uns einhver grefur þá upp við hreinsunarátak og sýning verður haldin í framhaldinu.

EN vonandi verður hægt að setja munina á sýningu hið fyrsta.


mbl.is Nordiska museet afhendir Þjóðminjasafninu 800 gripi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundraðdagakóngurinn

Já, það er kalt á toppnum. Og Dagurinn er stuttur nú í skammdeginu, eins og Friðjón appelsínublái sagði fyrr í dag.


Þessi "versti dagur ársins" er næstum liðinn. Og nóg að gerast.

1) Fisher grafinn í kyrrþey og með það mikilli leynd að lík hans hefur varla tekið eftir því. Og það var grafið við dyrnar á kirkjunni sem afi og systkini hans reistu og gáfu til minningar um bróður þeirra sem lést ungur, og ég heiti reyndar eftir.

2) Óli F sendir dag í læknisferð til að tékka á Svandísi og meðan þau eru bæði upptekin, og Bingi að skoða jakkaföt í Herragarðinum laumast Óli upp í Valhöll og kemur að þar sem Villi er að setja upp kolluna, og spyr: "Ok, hvaða díl varstu að bjóða mér í afmæli Davíðs? Stólinn og allan pakkann"?

3) Og Dagur fréttir af þessu, enda með njósnara dag og nótt bæði fyrir utan hjá gamla góða Villa og við útidyrnar á Valhöll. Hann hringir sex sinnum í Óla og spyr: "Ertu að henda hnífasettum í bakið á mér"? Ólafur kveður það ekki vera svo. Hann sé ekkert að svíkja neitt, enda hafi hann ekki verið memm þegar Magga lyfti upp pilsinu fyrir rúmlega 100 dögum síðan.

4) Og á meðan á þessu öllu stendur komast fjölmiðlar yfir 1260 þús. króna c.a. reikning Framsóknar hjá Hugo Boss og Herragarðinum. Já, Bingó lætur styrktaraðila flokksins borga fötin á sig. Svo ekki sé talað um allt make-uppið.

´5) Og ég er í fríi eftir að hafa unnið alla helgina og klárað verkefnin. Og ég nenni engu, og eyði deginum í hangs, tiltektir og blogg.


Versti dagur ársins? Nei, en þarna fer Versti Dagur ársins beint í minni hluta aftur.


mbl.is Dagur: Óvanur því að samstarfsmenn segi ekki satt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband