Mánudagur, 28. janúar 2008
Lægðatregða framundan?
"Spáð er mikilli kuldatíð næstu daga en um miðja vikuna snýst vindurinn í norðanátt. Að sögn Veðurstofu Íslands er komið hlé á þeim lægðagangi sem verið hefur að undanförnu og mega landsmenn nú búast við að sjá tveggja stafa frosttölur víða."
Jahérnahér og Mr. Jeremías minn and Mrs. Dúddamía. Kuldaskeið framundan. Og ég var að vona að þetta væri nú allt að lagast.
En jæja, það verður semsagt lægðatregða á næstum dögum og/eða viku. En hvernig er það, þegar eintómar lægðir ganga yfir og engin tregða er á rigningu og roki.
Er það þá ekki kallað hægðatregða?
En vonandi gengur mönnum vel að ferðast, því ég vil ógjarnan sjá menn ganga um götur bæjarins í hægðum sínum.
![]() |
Kuldatíð framundan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Hvað með karlaathvarfið?
Spurning hvort ekki veiti af slíku?
Ég þekki nú nokkra ofur-kúgaða eiginmenn, sem hefðu gott af því að komast á svoleiðis; já, sumar konur berja kallana sína...og þeir vilja ekki slá á móti, því þeir berja ekki konur!
Jafnrétti -- fer til beggja átta.
![]() |
Á sjúkrahús eftir heimiliserjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Ódýr nýmjólk?
Nú þekki eg ekki niðurgreiðslukerfi Norðmanna og Dana (ef einhver eru), en mig grunar samt að mjólkurlítrinn hér sé, þegar á heildina er litið, dýrari hér en amk í Danmörku.
En Noregur er fantadýr í flestu, svo maður veit aldrei með þá frændur vora.
![]() |
Ódýr nýmjólk á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Kemur vel á vonda
Sjaldan hefur eplið fallið jafn langt frá eikinni.
![]() |
Náttúruverndarsinnar orðnir olíulausir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Skiptir aldurinn öllu máli?

Persónulega skil ég ekki hvað McCain er að þvælast þetta. Hann er kominn á áttræðisaldur, á fullt af peningum og gæti sest í helgan stein á solid eftirlaunum og haft það náðugt það sem eftir er.
Ég er ekki að gera lítið úr hlutverki aldraðra (þó 71 ár sé nú varla "aldrað" í dag!) en það að vera forseti Bandaríkjanna er erfiðara hlutverk en flest önnur. Og þó McCain sé e.t.v. í fínu formi núna og verði eitthvað áfram, kemur að því að elli kelling bankar upp á og vill fara út á deit.
Ég sé ekki pointið í að kjósa yfir sig forseta (eða forsetaframbjóðanda) á áttræðisaldri. Og ég er enn meira hissa á McCain að hafa asnast út í þessa eldraun, kominn á þennan aldur.
En hann telur e.t.v. að hlutur sinn í sögubókum framtíðarinnar sé ekki nægur og vill skapa sér nafn, hvort sem hann verður forseti eða ekki. Og það mun honum vísast takast.
![]() |
Mikið spurt um aldur John McCain |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Rambó
Ég hef eðlilega ekki séð þessa mynd, en mig grunar að hún sé ýkt útgáfa af Rambo II og Rambo III, þ.e. að menn falli á báðar hendur umhverfis Rambó, sem sjálfur sleppi með smá sár eða skrámur.
Þannig eiga hasarhetjur að vera, amk skv. formúlunni. Hver man ekki eftir Commando með Arnaldi ríkisstjóra. Þar ræðst hann einn á herbúðir vondu kallanna á eyju og drepur hundruðir manna á nokkrum mínútum til að bjarga dóttur sinni.
Arnaldur var vissulega "flottur" í hlutverki sínu. En gerir það mynd eitthvað betri að blóðið streymi nánast látlaust? Verður mynd betri við að eins margir látist og mögulegt er?
Mig minnir að Hotshot 2 hafi gert grín að þessu og verið með talningu yfir látna. En sú mynd var nú með því aumara sem menn hafa séð og því vart marktæk "heimild".
En mér leikur forvitni á, hverjir eru núna vondu kallarnir hjá Rambó úr því Sovét er hrunið? Varla íslamskir terroristar úr því hann er á svipuðum slóðum og áður, þe. í SA-Asíu?
En a.m.k.: Rambó er varla nein úrvalsmynd sem verður tilnefnd til margra verðlauna. En hún gæti vel verið ágætis afþreying fyrir þá sem hafa gaman að drápsmyndum.
![]() |
Blóðug gagnrýni á Rambo |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Vandamál demókrata
Helsta vandamál Demókrataflokksins er, að amk þrír mjög frambærilegir kostir eru í boði: Obama, Clinton og Edwards.
Sjálfur hugnast mér Clinton best...þó ég hafi svo sem ekki gert það að neinum trúarbrögðum að styðja hana frekar en hina og gæti vel skipt um skoðun. En stuðningur minn (sem skiptir engu máli í sjálfu sér) kemur ekki til vegna þess að hún er kona. Það er heldur ekki þrátt fyrir hún sé kona. Ég tel hana einfaldlega hæfasta frambjóðandann, þó vissulega sé hún ekki gallalaus. Og hún mun njóta góðs af Billy, ef hún sigrar. Síðan er flott að hafa sömu ættirnar í þessu: Bush-Clinton-Bush-Clinton Og af þeim er Clinton x2 skárra en Bush x2. En af þeim síðarnefndu er sá yngri skárri en sá eldri. "Read my Lips".
Obama er svona meira óskrifað blað, og þó ekki. Hann virðist mjög frambærilegur kostur líka og virðist njóta þess, og kannski ekki, að vera örlítið hörundsdökkur, og hið sama má segja um ætterni hans, en það vekur deilur meðal meirra. Og millinafn hans, Hussein, gæti fælt suma frá, ekki síst þar sem Kanar láta oft furðulegustu atriði ráða því, hverja þeir kjósa. En hann virðist frambærilegur og myndi ég svosem ekki súta það neitt, þó hann myndi vinna, en ekki Hillary, en þó með því skilyrði að hann komi hingað sem fyrst og fái sér pulsu í Bæjarins beztu.
Ég hef lítið velt Edwards fyrir mér, en mig rámar í að á sínum tíma hafi mér þótt nokkuð í hann spunnið. EN ég man ekki af hverju mér hætti að lítast á gripinn...en af einhv. ástæðu hefur hann dottið niður um sæti. Ég vildi að ég myndi af hverju. Kannski er ég bara þreyttur á því að fá "White, male American" í Hvíta húsið.
En hver svosem þessara muni vinna, er ég handviss um, að Demókratar munu taka yfir Hvíta húsið í næstu forsetakosningum. Þá breytir engu hver vinnur hjá Repúblikönum, flokkseigendamaðurinn Rom...(Romney?), McCain eða Huckabee.
En ég spái því semsagt að Clinton og Obama muni fara saman í Hvíta húsið. Spurningin er, hvort þeirra verður forseti og hvort varaforseti.
![]() |
Obama fær stuðning Kennedys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Var hún Marg-grét að ljúgja?
Vissi hún þá kannski alltaf að Ólafur Friðrik væri á spjalli við Sjálfstæðismenn? Og vísast hefur hún lekið því í Dag & Co, eða ...?
Í öllu falli heldur hún trúnað við Rugl-listafólkið og því kæmi mér ekki á óvart þó hún hafi sagt þeim frá þessum "samtölum". Og ef svo var, hvers vegna voru Rugl-listamenn þá svo "hissa" þegar í ljós kom að samkomulag hafði náðst?
En ef hún þagði, til að halda trúnað við F-listann, hvers vegna heldur hún þá ekki trúnað við hann núna?
Ég er alveg hættur að botna í þessu.
![]() |
Ólafur sagði F-lista frá samtölum við sjálfstæðismenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Fokið í flest skjól?
Ja, Suðurnesjamenn lenda í því núna.
En sagt hefur það verið með Suðurnesjamenn, að fast þeir sæki skjólin og sæki þau enn.
Þeim hefur þó vonandi verið óhætt.
![]() |
Fjölmörg útköll vegna foks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 27. janúar 2008
Gasleki
![]() |
Gasleki í Stokkhólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |