Fyrirsögn á forsíðu Fréttablaðsins

frettabladid"Stefnuleysi hjá fjölda leikskóla" eða eitthvað svoleiðis. Ég hef lengi haldið því fram, að stefnuleysi hrjái Samfylkinguna. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu, síðustu daga, að ýmsir kratar séu á leikskólastiginu, jafnvel sumir úr innsta hring. Og formaður Samfó hefur síðustu daga komið fram eins og leikskólakennari.

Þetta er mjög skemmtilega hugsað hjá Fréttablaðinu. Það er mikið stefnuleysi hjá fjölda leikskóla, m.a. þeim sem á sæti á Alþingi.Wink


Að sleppa undan sjálfsmorðsárás

Ég greindi frá því, hér fyrr í morgun, þegar ég komst í kynni við sjálfsmorðsárás. Ég vil nú aðeins bæta við:

Hamas segir, að sjálfsmorðsárás sé löggilt tæki í baráttunni. En Shimon Peres heldur því aftur á móti fram, að Eilat skuli vera borg friðar og túrisma. Sú yfirlýsing kemur í kjölfarið á því, að Eilat-borg taldi von á 50% aukningu í túrisma En síðan heldur palestínska heimastjórnin því fram, að Íran og Sýrlandi séu að koma af stað borgarastríði í Palestínu, vísast til að komast þar sjálf til áhrifa.

Ýmislegt að gerast þarna fyrir sunnan.


mbl.is Þrír féllu í sjálfsvígsárás í Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsmorðsárás og þegar ég missti af sprengjustrætó

islamicjihad2Jæja, þá er þetta byrjað aftur. Islamic Jihad enn og aftur á ferðinni. Fyrir okkur, sem hafa komið að slíkum vettvangi eða jafnvel sloppið "naumlega" úr slíkri árás, er þetta ekki fagnaðarefni. Og þetta verður auðvitað ekki til að auka líkur á friði í þessum heimshluta. 

En það var fyrir ellefu árum síðan, að ég var ásamt öðrum að skipuleggja ráðstefnu þarna suðrí Jerúsalem. Ég kláraði minn hluta á miðnætti, aðfaranótt sunnudags, þegar ráðstefnan átti að hefjast. Komst ég síðan heim einhvern veginn, nánast skreið upp þessar 120 tröppur að blokkinni, komst í rúmið og steinlá. Vekjaraklukkan byrjaði síðan að glamra kl. 6 að morgni. Ég skreið framúr, en nennti hreinlega ekki að fara á fætur strax og ná strætó í bæinn. Hafði hreinlega ekki orku í meira. Fór síðan beint upp í. Liðið varð að meika morguninn án mín, enda engin sérfræðistörf óunnin, bara að hengja upp, raða stólum og svo framvegis.

Ég man ekki hvað klukkan var, þegar síminn hringdi heima og samstarfskona mín andvarpaði af feginleik þegar ég svaraði að lokum. Málið var, að strætóinn sem ég tók yfirleitt, en ekki alltaf, á morgnana, hafði sprungið í loft upp í miðbænum og fjöldi manna látist. Þar var sprengjumaður á ferð. Mér brá óneitanlega, enda hefði ég vísast tekið þennan vagn í bæinn, hefði ég nennt á lappir, eða strætó nr. 20, sem fylgdi sömu leið í bæinn en lagði af stað 5 mín seinna. En síðan kom í ljós, að sprengjan sprakk einni stoppustöð eftir að ég hefði ÖRUGGLEGA farið út.ourfath

Það var þó lítil huggun. Ég hefði því setið í sprengjuhlöðnum vagni marga kílómetra. En hefði vísast sloppið, því eins og DV lagði mér í munn: "Ekki verður feigum forðað né ófeigum í hel komið." Þetta sagði ég aldrei, þegar DV hringdi í mig, heldur Sigurdór blaðamaður. En þetta urðu ummæli vikunnar og voru tileinkuð mér, merkilega nokk.

Mér var síðar sagt, að þetta eintak DV hefði samasem selst upp, en það hefur varla verið vegna fréttarinnar, heldur hins, að mínir fögru fótleggir voru opinberaðir á forsíðunni. En svona gengur lífið

En nú var sprengt í Eilat, einum albesta sumarleyfisstað í Miðausturlöndum. Þessi staðsetning hlýtur að vera til þess ætluð að benda á, að í Ísrael er enginn óhultur frá sprengjum þessara hryðjuverkahópa.

(Myndin til hægri er tekin fyrir framan Faðir vorið á íslensku, þar sem það hangir í "Faðirvorkirkjunni", sem á að hafa verið reist á þeim stað, þar sem Jesús kenndi drengjunum tólf "Faðirvorið".)


mbl.is Sjálfsmorðsárás í Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð og Samfylkingin

worthlessMerkilegt er þetta allt saman. Samfylkingin var stofnuð sérstaklega til höfuðs Davíð Oddssyni, en síðan, þegar Davíð er farinn, kemst flokkurinn í tilvistarkreppu og fylgið hrynur. Og nú, þegar allt er í kalda koli hjá Samfó, ISG rúin trausti (amk trausti þingflokksins) og flokkurinn með, og jafnvel Jón Baldvin heggur í knérun, koma þjóhnappakratarnir fram og reyna að mynda skjaldborg um foringja sinn.

Ég skil þetta ekki alveg, en þegar maður reynir að ræða þetta við þjóhnappakratana, byrja þeir bara að tala um Davíð Oddsson, hátt matvælaverð eða Byrgismálið. Mikið óskaplega hljóta kratarnir að hafa borið óttablandna virðingu fyrir Davíð, úr því í fyrsta lagi að flokkurinn var stofnaður honum til höfuðs og leiðtogi hans sér Davíð í hverju horni, og þjóhnappakratarnir líka.

Og nú vita kratarnir ekkert hvað gera skuli, þegar Davíð er hættur í stjórnmálum. Þá er tilvist þessa stefnulausa afturhaldskommatittaflokks orðin tilgangslaus. Ekki nema þjóhnappakrötunum takist að finna sér nýjan óvin til að sameinast um. En hefði ekki verið sniðugra að sameinast um einhver stefnumál. Þjóðin hafnar Samfó ekki vegna þess, að flokkurinn sé of pólítískur, heldur hins, að hann sé ekki nógu pólítískur. Það er ekki nóg að grundvalla flokk á andúð við annan flokk; það þarf að hafa pólítískar lausnir fram að færa. Og ESB er engin lausn.


Nú lágu Danir í því

Vona ég. Þetta var óskamótherji minn í 8-liða úrslitum. Ekki af því að Danir væru lélegri en hin liðin, heldur held ég að þeir henti okkur betur en t.d. Spánverjar. Og hvorki áttum við raunhæfan möguleika á að mæta Rússum/Ungverjum eða Króötum, sem eru greinilega með besta liðið á mótinu, þótt óvíst sé, hvort það dugi þeim til sigurs.

En leikurinn við Dani er annað og meira en bara leikur tveggja frændþjóða, þetta er slagur upp á líf og dauða, og þar að auki barátta litla og stóra bróður, frjálsa þjónsins og herragarðseigandans. Og eftir sóðaskap danskra í garð íslenskra útrásarfyrirtækja og banka, trúi ég ekki öðru en að landsliðið muni verja heiður landans. Önnur slík orrusta mun eiga sér stað milli Pólverja og Rússa, en Rússar kúguðu meiri hluta Pólverja um aldir, ja amk tvær aldir.

En nú er bara að taka Dani og hefna síðan gegn Pólverjum (eða svæfa rússneska björninn). En þessar þjóðir eru sýnd veiði en ekki gefin.


mbl.is Danir verða mótherjar Íslands í 8-liða úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæru kjósendur

cheatEf ég hef frétt réttilega, var Kolbrún þessi ekki einu sinni í flokknum fyrir rúmri viku síðar. Nú er hún orðin ritari. Hvaða hringavitleysa er þetta?

Ég held, að þjóðin verði að refsa þessum stjórnmálasiðblindu stjórnmálamönnum, og kjósa þá út í næstu þingkosningum. Svona lið á ekki skilið að saurga Alþingi með nærveru sinni.

Þetta er a.m.k. mín skoðun.


mbl.is Kolbrún Stefánsdóttir kjörin ritari Frjálslynda flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mánudagsfundur Margrétar: tvö skúbb hafa borist

Það var fjör í kaffi í morgun. Tveir spekingar yfir miðjum aldri töldu sig hafa fréttir af því hvað verði til umræðu.

Annar sagði: Margrét mun ræða við stuðningsmenn sína um, að kæra niðurstöður kosninganna, vegna galla á framkvæmd þeirra. Ergo: kosningarnar væru ólöglegar.

Hinn sagði: Margrét mun ræða við sömu, hvort yfirgefa beri Frjálslynda flokkinn, og þá einnig, til hvaða grænu haga skuli halda.

Ég veit auðvitað ekkert um þetta sjálfur, ég þekki enga innanbúðarmenn í Frjálslynda flokknum. En fyrra atriði þykir mér merkilegt. Þetta hafði mér eiginlega ekki dottið í hug, þó ég hafi grunsemdir um, að ekki hafi verið löglega staðið að kosningunni, sbr. fréttir Stöðvar 2, þar sem Guðjón Arnar formaður sást "hjálpa" mönnum að kjósa, eftir að hafa ítrekað stuðning sinn við Magnús Þór.

En þetta verður spennandi. En mig grunar, að þessi tískubylgja, að varaformannskosningar séu ekki alveg samkvæmt ströngustu reglum, taki að hjaðna. Það eru bara óábyrgu og aulalegu flokkarnir sem láta menn komast upp með svona lagað.


HM: spennan magnast

brand_heiner_2_AufmacherJæja, nú fara málin að skýrast. Góður pistill þetta. Höfundurinn útskýrir fyrir okkur "óbreyttum" áhugamönnum, hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Íslendingar geta semsagt aldrei lent neðar en í þriðja sæti, þ.e. strákarnir okkar verða alltaf fyrir ofan Frakka.

Leikurinn í dag verður vísast nokkuð furðulegur. Líklegast er, að Guðjón Valur og Logi skipti með sér vinstra horninu, og Markús Máni og Arnór taki skyttustöðuna við hliðina. Á miðjunni er víst ekki um marga aðra að ræða en Snorra Stein, nema Óli leysi hann af. Róbert og Vignir fá vísast fleiri tækifæri á línunni. Ég tel líklegt að Ásgeir Örn spili töluvert mikið í hægri skyttustöðu og/eða horni, og Óli og Alex skipti leifunum á milli sín. Og Roland verður vísast í markinu, og Hreiðar e.t.v. til vara.

Ástæða þessa er vísast sú, að þessi leikur skiptir í raun voðalega litlu máli. Þau 4 lið, sem komast áfram úr hinum riðlinum, eru öll firnasterk. Best verður þó vísast, að mæta Dönum, en annars er það óvíst svosem. En lykilmenn okkar þarf að hvíla, ekki síst þar sem Óli, Logi og Guðjón Valur ganga ekki heilir til skógar, og Alex var orðinn slæmur í fæti undir lok síðasta leiks og þarf hvíld. Spurning hvort Einar litli verði ekki kallaður inn í liðið, t.d. fyrir Ólaf eða Alexander (sé það heimilt, ég er ekki alveg viss um hvernig reglurnar eru; þá kæmi hann e.t.v. formlega séð inn fyrir Ragnar, sem er í barnseignarfríí í París).

Þjóðverjar munu væntanlega hvíla sína lykilmenn einnig, en þar eð þeir hafa breiðan hóp, eða breiðari en við amk, hafa þeir efni á betri smá afslöppun. Þeir eru jafnframt með góða stöðu og hafa engu að kvíða, end studdir af þúsundum áhorfenda.

En í öllu falli er líklegast, að Þjóðverjar vinni þennan leik, ekki síst vegna þreytu og meiðsla lykilmanna okkar. En þó er aldrei að vita. Þýskt gæðastál getur brugðist...

Áfram Ísland!


mbl.is Ísland í fyrsta, öðru eða þriðja sæti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var nú allt annað

Jæja, hvílíkur munur á fyrsta kvöldinu og þessu í gær. Í því fyrsta var að mínum dómi ekkert frambærilegt lag og þessi þrjú, sem komust áfram, voru öll langt fyrir neðan meðallag. En í kvöld voru fjögur eða fimm frambærileg lög.
mbl.is Tveir Eurovisionfarar í úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavíkurræðan: piss í skóinn

264-220Jæja, umræðan um Reykjavíkurræðu Ingibjargar heldur áfram, og er m.a. að finna á Málefnin.com, en þann vef opnaði ég í fyrsta skipti í gær. Hér talar Uglan, þó ekki sú sama og er Uglan hér á blogginu, um þetta málefni:

Hreint ekki óþægilegar spurningar, aðrar en þær af hverju forkona Samfylkingarinnar vill ekki tala um stjórnmál, heldur halda áfram að leggja Davíð í einelti. Gömul tugga, DVismi á hæsta stigi, og ekkert nema ódýrar dylgjur einmana Kvennalistakellingar sem búin að brenna allar brýr að baki sér í stjórnmálum.


 

En auðvitað eru þarna margir á öndverðri skoðun, eða næsta hlutlausir. Sumir sammála. En það á víst að vera sönnun fyrir því, að Davíð og hans "klíka" standi að baki Baugsmálinu, að málið hafi tapast fyrir dómstólum. Ég fatta ekki alveg röksemdafærsluna. Og menn koma svo fram og segja, að nú sé þetta allt sannað, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið þar að baki. Sönnunin er sú, að Ingibjörg segi það. Ég hef engar sannanir séð, aðeins getgátur og samsæriskenningar. Og síðan átta ég mig ekki á, af hverju t.d. Byrgismálið er sök Sjálfstæðisflokksins, hvað þá önnur mál, sem Imba nefnir. Og enn síður átta ég mig á, í hverju þagnarbindindi þjóðarinnar um ESB og evruna er fólgið. Hjörtur Guðmundsson stakk upp í "einmana kvennalistakellinguna" hvað það snertir, enda er  að hennar mati "þögn" um málið hjá öllum þeim, sem ekki eru sammála henni. Allt sem þeir segja er einskis virði. Og hvað eru kratar að státa sig af lýðræði, þegar formaður Samfó gefur skít í allt og alla sem ekki eru á sömu línu.
Engin furða er, þó Imba sé ekki lengur trúverðugur stjórnmálaforingi. Hún virðist þrífast á málefnafölsunum og skítkasti. Og hélt því svo fram nýlega, að Samfó væri að tapa því flokkurinn væri of pólítískur. Nær væri að segja, að flokkurinn tapi fylgi því hann er ekki nægjanlega pólítískur. Það er ekki pólítík að vera í sandkassaleik og skítkasti. Það er bara þroskaleysi.
Og engin furða er, þó VG lyfti sér upp. Taka má til samanburðar málefnalítinn sandkassaleik framkvæmdastjóra Samfó annars vegar og mjög málefnalega pistla Árna Þórs Sigurðssonar. Þótt ég sé nú ekki alltaf sammála Árna, eru pistlar hans vandaðir.  Þarna fer annars vegar krakki í pólítíkusaleik og hins vegar alvöru pólítíkus. Þótt ég sé jafnan ekki sammála VG um margt annað en Evrópumál, þá virði ég menn eins og Árna, og marga félaga hans, fyrir að vera málefnalegir og bjóða fram skýra stefnu og að jafnaði nokkuð hæfa einstaklinga. Hið sama er ekki hægt að segja um Samfó, sem hefur gjörsamlega glatað allri virðingu minni og er í mínum huga komin í sömu öskutunnuna og Frjálslyndi Framfaraflokkurinn.
1918 voru jafnaðarmenn á móti fullveldinu. Það stóð í stefnuskrá gamla Alþýðuflokksins fram til 1922, að halda skuli áfram sambandinu við Dani, og það á einhvers konar ný-valtýskum forsendum. 1944 voru kratar í fararbroddi þeirra fáu, sem fresta vildu lýðveldisstofnun. Og nú vilja þeir framselja fullveldið endanlega í hendur fjölþjóðlegu þjóðabandalagi. Af hverju eru kratar svona á móti sjálfstæði? Það útskýrir e.t.v. andúð þeirra á Sjálfstæðisflokknum. En gott er, að fimmta herdeild kratanna fái lítið fylgi meðal landsmanna. Lið þetta á ekki annað skilið.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband