Bringusund

Svona bringusund gæti örugglega orðið vinsælt í Laugardalslauginni!
mbl.is Ber brjóst leyfð í Sundsvall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja körfuleigan opnar

Nýja körfuleigan (New Hampshire) opnaði hlið sín fyrir forkosningum kynningarkrata og lýðveldissinna í morgun.

Og Bakúk Öfug-er-a (Ob-am-a) og Jón McCain, sá sem ofsteiktu frönsku kartöflurnar voru nefndar eftir, eru taldir sigurstranglegastir, hvor í sínum flokki.

Úff...


mbl.is Kosning hafin í New Hampshire
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hóflegar gjafir löglegar

Til Kaupþings, Glitnis og Landsbanka Íslands:


Ég er móttækilegur fyrir hvers konar gjöfum sem þið viljið gefa mér

 

Hið sama gildir um Flugleiðir, Iceland Express og önnur merkileg fyrirtæki.


Takk.


mbl.is Hóflegar gjafir lögmætar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrðu, Össur, félagi

Ef ég geng í Samfó, reddarðu mér þá ekki einhverju djúsí starfi?
mbl.is Segir Guðna hafa sterka framtíðarsýn fyrir Orkustofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mafían í verkfalli!

Ja, svona gerist þegar frændur Sopranos fara í verkfall. Þá þrífur enginn upp ruslið sem Cosa Nostra vill fá meira fyrir að týna upp.


Spurning hvort ekki mætti senda borgarstjóra vorn þarna út til að útrýma "biðlistunum"?
mbl.is Átök við ruslahaug í Napólí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur Joð í vanda!

Já, nú þegar hann má ekki lengur beita málþófi á þingi vill hann ekki koma aftur, heldur vera áfram í jólafríi, enda þarf hann að vinna upp vanrækslu síðustu ára, sem fóru í að semja langar ræður. Meðal annars ætlar hann að horfa á Næturvaktina.


En ég vona að hann hafi ekki límt sig fastan við rúmið. Who knows?
mbl.is Límdi sig fastan við rúmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísundar efla alla dáð?

Eða voru það vísindin? Ég rugla þessum tveimur dýrum alltaf saman.
mbl.is Veiddu tvo risavísunda í Minnesota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra sýndur fingurinn!

En er það ekki dónaskapur fyrst og fremst, en ekki leyniþjónustumál?
mbl.is Fékk fingur í pósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífshættulegt gáleysi

Svona glannaakstur á að taka fyrir.


Ég varð einu sinni vitni á slíkum kappakstri sem endaði illa. Það var á Miklubrautinni. Annar unglingurinn missti stjórn á bílnum og endaði úti í garði hinumegin. Ég var einn þeirra fyrstu sem kom að ökumanninum, en sá sem tók stjórn á vettvangi taldi ráðlegast að bíða komu sjúkrabíls, enda kunni enginn okkar til verka í neyðarhjálp sem þeirri, er þarna var þörf.

Drengurinn lést síðan af sárum sínum.


Þessu gleymi ég aldrei og fæ því alltaf hroll þegar ég les um að fáráðlingar séu að haga sér með þessum hætti, vitandi hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér. En ekki nóg með að þeir leggi eigin líf í hættu. Þeir leggja einnig líf meðborgara sinna í hættu.


Og slíku þarf að taka á með festu.


mbl.is Á 115 km hraða á Laugavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja Hreyfing opnaði í dag

Loksins.


Ég skal viðurkenna, að ég var orðinn verulega þreyttur á gömlu Hreyfingu. Staðurinn er svosem ágætur eins og hann var, þannig séð, en hann var farinn að láta á sjá og mörg tækin sömuleiðis. Og maður var búnað fá leið á staðnum, skal ég viðurkenna.

Hilmar Björnsson skráði mig þarna upphaflega rétt eftir að staðurinn byrjaði, um 1990. Ég tók síðan væn hlé af og til, og var um tíma í Planet Pulse, sem var magnað á sínum tíma.

En nú er nýi staðurinn búnað opna í Glæsibæ. Hann er ekki alveg fyllilega tilbúinn, en t.d. opnar ekki útiaðstaðan fyrr en c.a. um næstu mánaðamót og Spa-ið ekki alveg tilbúið. En þetta er rosalega flott og ég er hæstánægður og spenntur. Og eitt er víst, að ég mun bæði mæta oftar og vera lengur en ég hef gert á síðustu misserum.

Það eina sem ég finn að, og margir aðrir hef ég heyrt, er að skáparnir eru frekar litlir og erfitt að troða þar inn töskunum sínum. Mæli ég með við Ágústu og liðið í Hreyfingu, að koma einhverjum töskuskáp fyrir í skiptiklefunum, ef laus staður er fyrirliggjandi eða hefja sölu og útdeilingu á minni íþróttatöskum!!

Takk fyrir mig. Þetta var magnað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband