Óhugnanlegt

Það er nú varla að hægt sé að "commenta" á svona frétt, slíkur óhugur felst í fréttinni. Í fyrsta lagi virðist á öllu, að  þarna hafi 25-26 ára Dani náð sér í eina sautján ára, barnað hana og farið að búa með henni. Síðan kemur annað barn og veslings stúlkan eyðir þessu mikilvæga þroskaferli sínu í, að ala upp börn og reka heimili, og kannski vinna eða nema eitthvað meðfram. Síðan þegar hún fer að átta sig sér hún, að þau hafa "þroskast í sitt hvora áttina", eins og það er oft orðað, og skilur við kallinn. Sá verður nú brjálaður og, ef danska löggan hefur á réttu að standa, fer "all-in" á fjölskyldu sína og drepur hana með köldu blóði.

Hvað í ósköpunum fær menn til að gera svona lagað? Það er manni algjörlega fyrirmunað að skilja. Það eru einmitt svona hrottar sem geymdir eru á dauðadeildunum í USA.

 


mbl.is Grunaður um að hafa myrt konu sína og tvö börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband