Fimmtudagur, 6. mars 2008
Hálf frétt
"Svandís Svavarsdóttir telur allar athugasemdir Júlíusar Vífils Ingvarssonar eiga jafnframt við um fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í stýrihópnum og auk þess veki undrun hvað þær komi seint fram.
Svandís segir að Júlíus Vífill hafi ekki fyrr gert athugasemdir við mönnun stýrihópsins, sem hafi verið skipaður þverpólitískt 18. október. Enginn hafi reyndar gert athugasemdir við setu sína og Sigrúnar Elsu Smáradóttur í stýrihópnum. Hefðu komið fram athugasemdir hefði hún skoðað þær. Júlíus Vífill hafi gert ýmsar góðar athugasemdir við innihald skýrslunnar, en þessar athugasemdir komi seint fram og hann hljóti að hafa getað komið þeim fyrr á framfæri við fulltrúa sína í stýrihópnum. 6. febrúar hafi til dæmis allir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins setið yfir skýrslunni og samþykkt hana fyrir sitt leyti og þar á meðal Júlíus.
Í seinni ræðu sinni á borgarstjórnarfundinum í fyrrinótt segist Svandís hafa tekið undir ýmsar athugasemdir Júlíusar á skýrslunni, eins og til dæmis að ástæða hefði verið að greina sérstaklega frá efni einstakra funda."
Smá spurningar:
a) hvaða stýrihópur var þetta
b) hvaða skýrsla var þetta
c) um hvað snýst málið.
Þessi frétt er handónýt; grunninn vantar undir "húsið". Það hefði alveg mátt koma hér fram, að um REI málið sé að ræða (en ég geri ráð fyrir að svo sé!)
Gagnrýni seint á ferðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.