Miðvikudagur, 20. febrúar 2008
Pólítísk sjálfsmorðstilraun Össurar
Þetta er eitt það sorglegasta sem maður hefur lesið lengi...ætlar Össur virkilega að verða jafn verðlaus í pólítíkinni og gamli góði Villi? Svona gera menn ekki.
Mætti segja mér að Össur sé búinn að missa vitið, eða kannski er hann fullur, eins og einn gat sér til um í athugasemdum. En amk er þetta sorglegt, mjög sorglegt. Svona skrifa stjórnmálamenn ekki um aðra í sama geira.
Sjálfseyðing ungstirnis
Byltingin étur börnin sín. Það sannast á Gísla Marteini. Hann var í lykilstöðu þegar hann hóf byltinguna gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
Gísli var nýbúinn að fá fleiri þúsund aktvæði í slag um efsta sætið við Villa og var sannarlega hinn smurði kandídat heimastjórnarvængsins til íhaldsþinga. Topparnir elskuðu hann, og litu á frægt sjónvarpsandlit sem tryggingu um atkvæði og vissa greind götustráksins.
Strax þegar í fyrsta meirihlutann kom fóru að vakna efasemdir um Gísla. Hann átti erfitt með að tjá sig æsingalaust, var linur í þáttum, og í starfinu sjálfu fékk hann undarlega djúpan áhuga á að drepa máva á tjörninni.
Hvað lá eftir Gísla Martein þegar kom að atburðarrásinni kringum REI? Ekkert, nema hræin af mávunum sem hann lét embættismenn skjóta og stillti sér svo upp hjá einsog Rambó sjálfur. Þetta verkaði hálfhjákátlegt og á þessu stigi var stjarna hans þegar tekin að hníga.
Æstur gjallandi í stað glaðrar raddar sjónvarpsbarnsins, tindrandi augu spámannsins sem var eins og að koma úr langri föstu utan af eyðimörkinni þetta varð að myndinni af hinum unga stjórnmálamanni, sem minnir í dag óþægilega á framkomu nýja borgarstjórans. Það rímaði alls ekki við myndina af hinum sterka unga leiðtoga sem maskinan reyndi að breiða út. Ég sá þetta sjálfur í þáttum, þar sem við sátum og Gísli var einsog festur upp á þráð.
REI málið hamfletti hann svo einsog lundann, sem sjávarúvegsráðherrann veiðir árvisst án leyfis. Allir vissu, að hann var operatörinn í árásunum á Vilhjálm, beinlínis til að klekkja á manni sem sat í stöðu, sem hann girntist. Gísli lék rulluna svo illa, að engum duldist að hann var maðurinn sem stýrði aðförinni að borgarstjóranum, missti atburðarrásina úr höndum sér af pólitískum barnaskap, og var því gerður ábyrgur fyrir missi meirihlutans og mestu niðurlægingu Sjálfstæðisflokksins í áratugi..
Í flokknum er honum kennt um ófarir flokksins, auk Villa sjálfs. Það kom augljóslega fram í könnun Capacents í kvöld, sem var í senn krýning Hönnu Birnu og pólitísk fall Gísla Marteins.
Mér er til efs að hann fari aftur í prófkjör. Asnaðist hann til þess er líklegt að hann fái mjög veika kosninga, og endi sem liðið lík í pólitísku tilliti. Ég dreg því þá ályktun af þróun mála í borginni, að Gísli sé eitt þeirra tveggja fórnarlamba sem liggja í slóð REI. Hitt er Vilhjálmur sjálfur - amk. einsog sakir standa.
Tragikómedían í atburðarrásinni er sú, að hinn örvumprúði bardagamaður sem ætlaði reka Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson ofan ætternisstapa, og taka þá orkubræður Hjörleif Kvaran og Guðmund Þóróddsson í bókstaflegt slátur er sjálfur fyrsta vegna fórnarlamb REI málsins.
Eftir könnunina í kvöld er ferill Gísla Marteins í raun búinn. Hann á engan séns í leiðtogasætið, og fær að híma í nefndum fram að prófkjöri, sem hann verður varla svo vitlaus að fara í til þess eins að hrynja niður listans í stöðu hins dauða hross sem allir munu beita svipu sinni og pískum á.
Gísli Marteinn er búinn sem stjórnmálamaður af stærð, meðan Hanna Birna er að vaxa upp í verulega öflugan stjórnmálamann, og mun auðvitað taka sviðið.
Og meðan Villi þraukar sem borgarfulltrúi sem ég vona hann geri er útilokað að setja byssuna á Hjörleif og Guðmund, hversu hrokafullir þeir kunna að hafa verið gagnvart særðu stolti Júróvisjónstjörnurnar. Það er einfaldlega ekki hægt að reka þá ef enginn borgarfulltrúi axlar ábyrgð með svipuðum hætti og Björn Ingi, sem endurheimti æru sína.
Hinn grátlegi gamanleikur atburðarrásarinnar er sá, að maðurinn sem startaði henni og ætlaði að láta hana lyft sér til æðstu metorða í borginni þvi auðvitað var plott Gísla Marteins að veikja Villa nóg til að hann sjálfur fengi oddvitastöðuna liggur í pólitísku blóði sínu fyrir eigin tilverknað og á sér varla afturkvæmt hema kraftaverk gerist. Hann klúðraði fyrsta sandkassaleiknum sínum.
Biblían segir að vísu að kraftaverkin gerist á morgnana, en þá er Gísli yfirleitt sofandi meðan götustrákar einsog ég blogga á örmiðli mínum og Þorsteinn dómari Oddsson á Vef-Þjóðviljanum sínum.
mið., 20 feb. 2008 02:12
Tekið af http://ossur.hexia.net/faces/blog/ossur.do?face=ossur&lang=is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.