Njörður

Jæja, í kvöld  munu skáknirðir Taflfélags Reykjavíkur reyna að verja hraðskákmeistaratitil sinn gegn áskorendunum, skáknörðasilfurliði Hellis frá því í fyrra.

Aðgangur er ókeypis og geta því kvenkyns félagar í saumaklúbbum komið á staðinn, skoðað gripina og e.t.v. athugað hvort einhver þeirra verði tilbúinn að kenna þeim að tefla?


En a.m.k. þá vantar konur í skákina.


Bæði liðin fara síðan á þriðjudaginn kemur til Tyrklands á Evrópumót taflfélaga. Þeir sem vilja mega gjarnan finna sér einhvern þarna til að styrkja til ferðarinnar.


"Kauptu skáknjörð" -- ég meina, það er heil gata nefnd eftir okkur njörðunum.


mbl.is „Kauptu þér nörð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband