Byssumenn og séra byssumenn

d_bloggi_heil_hamasSkemmtilegt þetta hjá Mogganum, hvað snertir fyrirsagnirnar. Í gær eða fyrradag drápu Ísraelar palestínskan "uppreisnarmann", eftir að hafa svarað skothríð. Í dag láta lífið 23 uppreisnarmenn, eftir að "uppreisnarmenn" ráðast á bandarískt herlið. En þeir drepast síðan inni í fréttinni sjálfri.

Hundruðir eða öllu heldur þúsundir manna láta lífið á Íslandi á hverju ári, en aðeir örfáir og stundum engir eru beinlínis drepnir. Á þessu er stór munur. En á hinn bóginn átta ég mig ekki á, hvers vegna Bandamenn "drápu" byssumenn þessa, þeir virðast hafa fallið í bardaga.

En Mogginn má auðvitað taka afstöðu í deilumálum þjóða, en það væri samt ágætt að fá opinberaða hina uppgefnu stefnu blaðsins, svo maður geti lesið fréttirnar með hana í huga.

En amk er misræmið furðulegt hjá Mogganum og  ákveðinn ruglingur með hugtök í gangi.


mbl.is 23 uppreisnarmenn létu lífið í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband