Ný stjórn tekur við völdum í dag

hjoninJæja, stjórnin að taka sæti. Og Sturla er farinn úr ráðherrastóli.

Sturla kallinn er gott dæmi um þá, sem meina vel og vilja standa sig, en eru ekki hæfir til að gegna því embætti eða starfi, sem þeir hafa komist yfir.

Geir hefur staðið sig afburða vel sem formaður Sjálfstæðisflokksins og gert vel í eftirmálum kosninganna. Hið sama verður ekki sagt um formenn sumra flokka. Ingibjörg hefur komið mér á óvart. Ég hef bloggað um það stöku sinnum síðustu c.a. 2 vikurnar fyrir kosningar. Það merkilega var, að fylgi Samfó rauk upp þegar Ingibjörg tók sig saman í andlitu, hætti að gagnrýna aðra af hörku, heldur hóf að einbeita sér að jákvæðri kosningabaráttu. Hún hefur semsagt komið mér nokkuð á óvart og er maður kominn langt með að taka hana í sátt. En maður bíður aðeins lengur samt! :)

Þorgerður Katrín ku vera ljósmóðir ríkisstjórnarinnar, hugsanlega ásamt ljósföðurnum Steingrími Jóhanni, sem nánast upp á sitt einsdæmi forðaði þjóðinni frá vinstri stjórn. Hún kemur sterk inn í þessa stjórn og ber höfuðið hátt, þó ekki sé nema ein sjálfstæðiskona í stjórninni.

Björn Bjarnason átti stólinn nánast vísann, þökk sé Jóhannesi í Bónus. Eftir það, sem á undan var gengið, gat Geir ekki annað en látið hann starfa áfram í dómsmálaráðuneytinu. Ég fagna því. Ég hef mikið álit á Birni, bæði sem ráðherra og þingmanni.

Guðlaugur Þór kemur inn. Annað var nú varla hægt svosem. Vísast hefur valið staðið á milli hans og Bjarna Ben, en leiddi lista í Rvk og því í raun nær öruggur inn. Hef ég ekki trú á öðru en að hann muni standa sig vel.

Árni Matt situr áfram. Ég hef svosem ekkert út á störf hans að setja, en ekki er hann skemmtilegasti maðurinn á þingi. Hann kemur oft illa fyrir í sjónvarpi, en það er ekki öllum gefið að hafa sjónvarpsvæna framkomu.

Einar K. Guðf. er tekinn framyfir Sturlu. Það er í sjálfu sér eðlilegt. Vestfirðingar þurfa að hafa einhvern í stjórninni, ekki síst þar sem þar er allt í kaldakoli. Einhver þarf að útskýra fyrir Vestfirðingum að þetta standi allt til bóta.

 

Um ráðherra Samfó hef ég lítið að segja. Þetta var nokkuð eðlilegt val, nema hvað ég skil ekki af hverju ÞSv var valin, nema út af þessu kynjadæmi. Í mínum huga skal velja  hæfustu einstaklingana, burtséð frá kyni. Ég er ekki viss um að það hafi verið gert hér, en svona er pólítíkin.


mbl.is Sturla verður þingforseti í tvö ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband