Glæsilegt hjá Uglunni

RIMG_0048Jæja, Jón Viktor kominn í gang. Loksins.

Þetta var annars slæm umferð hjá Íslendingum.

Og sjálfur er ég kominn í þunglyndi yfir þessum klaufaskap, eftir að hafa kluðrað rosalega. En, eins og StoneStone markaðsstjóri hjá RUV segir gjarnan: Það er ekki nóg að vera með unnið. Og í lokin fann ég ekkert framhald og fórnaði hrók fyrir þvingað jafntefli. Það er á svona stundum sem maður þarf að viðurkenna, að maður getur í raun og veru samasem ekkert í skák.

Uglan, aka Jón Viktor, er til hægri, þessi með kvenkynsloðhúfuna. Til vinstri er Knútur litli, heimskautahúnninn frá Löngumýri, sem fær þá ánægju að ráðast á mig með hvítu á morgun.

Ohh, hvað ég vildi að þetta mót væri búið.


mbl.is Jón Viktor blandar sér í toppbaráttuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband