Fortíðarlandið

Rakst á eftirfarandi pistil  á netinu -- verð að afrita hann hingað!

 

"Þjóðarsáttmáli Fortíðarlandsins:

-Við heitum því að nýta okkur aldrei nokkurn snefil af tækninýjungum eða hátækni
-Við heitum því að leggja niður allar virkjanir og hætta umsvifalaust allri orkunotkun á Íslandi
-Við heitum því að stunda einvörðungu sjálfsþurftarbúskap og snerta ekki auðlindir landsins
-Við heitum því að gera Ísland aftur að fátækustu og vanþróuðustu þjóð Evrópu líkt og við vorum fyrir 100 árum!

Látum nú hendur standa fram úr ermum góðir íslendingar og skrifum undir þjóðarsáttmála Fortíðarlandsins. Við megum ekki láta glepjast af gylliboðum hátæknialdarinnar og þeytast áfram upp lista Sameinuðu þjóðanna yfir lífskjör og gæði, látum staðar numið og snúum aftur á slóðir forfeðranna, aftur til fornalda!

Sjálfsþurftarbúskapur eða dauði!
-Fortíðarlandið"

 

Og í ritskýringu var spurt, hvort þetta minni ekki svolítið á ónefndan stjórnmálaflokk?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ragnar Björnsson

Þetta á betur við suma flokka en aðra amk.

Guðmundur Ragnar Björnsson, 28.3.2007 kl. 17:08

2 Smámynd: Snorri Bergz

Já, sá sem setti þetta inn, þar sem ég fann það, er harður krati. Hann hefur því varla verið að meina eigin flokk!

Snorri Bergz, 28.3.2007 kl. 17:12

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Snilld, snilld, snilld. Þetta þarf að láta ganga. Ég ætla að afrita/líma á síðuna mína og senda svo milljón eintök í spampósti til þingmanna og hvers einasta einfeldnings sem skrifað hefur undir áskorun Framtíðarlandsins svokallaða (sem sér þó ekki lengra nefi sér).

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 28.3.2007 kl. 22:49

4 Smámynd: Einar Ben

Gargandi snilld, ég er þegar búin að skrifa undir, í huganum.....

kv. af skaga

Einar Ben, 29.3.2007 kl. 14:21

5 Smámynd: Snorri Bergz

Kemur frá Jax: http://www.jax.blog.is/blog/jax/entry/159891/ En ég veit ekki hver skrifaði þetta, eða samdi.

Snorri Bergz, 29.3.2007 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband