Nýr klámbæklingur Smáralindar

Jæja, enn og aftur sækja Smáralindarmenn á vit klámsins. Á forsíðu bæklings með hugmyndum um fermingargjafir er sama, saklausa stúlkan á forsíðu, að þessu sinni með tyggjókúlu út úr munninum.

Það liggur auðvitað ljóst fyrir, að þessi tyggjókúla á að tákna eistu og því sjá allir, hvað hún er með í munninum. Og síðan er þessi litla stúlka fullmeikuð, og gefur þá til kynna, hvaða atvinnu hún stundar með skólanum.

Sveitattan!

EN til að þetta fari ekki framhjá neinum, birti ég hér svarthvíta mynd af samskonar dónaskap.

gum

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband