Mánudagur til mæðu?

nullÓjá, ætli það ekki bara.

Maður vaknaði morkinn eins og venjulega á mánudögum. Þetta var ömurleg helgi, engir leikir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, en maður lifði þó vel á Barcelona-Real Madrid. Ótrúlegur leikur.

Ég gerði svo sem ekki mikið af viti þessa helgina. Nennti eiginlega engu persónulegu, svo ég fór bara að vinna í ákveðnu verkefni, sem ég hafði fengið úthlutað. Það er nú komið vel áleiðis, enda aðeins nokkrir dagar til stefnu. 14. mars er í raun skiladagur - opnun 15. mars.

Svefnleysi var ákveðin yfirskrift helgarinnar. Ég vaknaði kl. 5 að morgni, bæði aðfaranótt laugardags og sunnudags, en tókst að sofa til að verða sex í morgun. Þetta er orðið frekar þreytt. Því var ég hálf morkinn alla helgina, þrátt fyrir kaffiþamb og hressingargöngutúra um Múlahverfið.

Fór í afmæli til barnanna hans litla bróður á laugardaginn. Ísabella Rós var að halda upp á níu ára afmælið og Ívar sjö ára afmælið. Það er alltaf gaman þegar þau koma suður á pabbahelgum, þó ég geti því miður ekki alltaf sinnt þeim mikið og ég vildi. Litli snússinn, Arnar Máni, var þarna með stóru hálfsystkinum sínum, en Elvar, stjúpsonur Munda bróður, var ekki heima.

Annars fer nú að líða að því, að tvö alþjóðleg skákmót hefjist. Hinn 4. apríl, daginn að ég verð þrjátíu og eitthvað, hefst Kaupþings mótið í skák og stendur til 9. apríl. Síðan er frídagur og hefst þá Reykjavík International. Þetta verða skemmtileg mót. Ég kem ekki sérlega vel undirbúinn, enda hef ég í mörgu að snúast, en skilvirkar æfingar sl. 2 árin munu vísast skila þér þarna, enda eru byrjanirnar t.d. ekkert vandamál hjá mér, heldur úthaldið. Síþreytan, sem ég virðist aldrei ætla að losna algjörlega við, er erfið í skákinni, því hún blossar skyndilega upp, þegar maður er í miðri skák, og maður verður batteríslaus á versta tíma og teflir eins og rítard eftir það.  Þetta ætla ég að laga, með því að taka massívar æfingar í Hreyfingu fram að móti og síðan léttar æfingar meðan á því, eða öllu heldur þeim, stendur. ( Um mótin; sjá; www.skak.is, og  www.hellir.com, www.skaksamband.is, þegar nær dregur).

Ég horfði á fyrsta hluta Silfurs Egils í gær. Þar hafði Ögmundur Jónasson hreina yfirburði hvað snerti framkomu og framsetningu. Húsvíkingurinn knái náði þó að herja á hann, en Ömmi svaraði fagmannlega. Hann er greinilega vanur svona löguðu. Sá húsvíski var hvatvís í framkomu sinni og lá greinilega mikið á hjarta. En ágætis frumraun. Illugi kom að mínum dómi næstur Ögmundi. Hann talaði fimlega og fór ekki í neina æsingaleiki, þó sumir þarna væri að bulla. Hann stóð sig ágætlega að vanda, því með Illuga skal illt út reka.

Árni Páll, fyrrv. lögfræðikennari minn í MH, var svona týpískur samfylkingarmaður í svona þáttum. Lét gamminn geisa af nánast offorsi, hélt þrumuræður og greip fram í fyrir hinum, eins og hann ætti svæðið. Hann var upphaf og endir óróans í þættinum, svo Egill sjálfur komst stundum ekki að. Það fyndnasta var, að hann ásakaði þarna VG um það, sem Samfó hefur sjálf verið fundin sek um, þ.e. stefnuleysi eða losarabrag á stefnu. Þetta var auðvitað fáránlegur málflutningur. En kratar hafa nú verið að ýta D og VG saman upp á síðkastið, jafnvel vinur minn Gunzó. Greinilega kominn titringur í krata og reyna þeir nú að búa til grýlu úr VG og D, einkum vegna samstöðu þeirra við að bjarga þjóðinni undan hörmungum ESB. Hér forðum ásökuðu sósíalistarnir Sjálfstæðisflokkinn um að vera þjóðsvikaraflokkur vegna tengsla við USA, og sjálfstæðismenn ásökuðu sósíalista um hið sama vegna tengsla þeirra við Sovét. En nú þurfa þessir andstæðu pólar í íslenskum stjórnmálum að standa saman til að verja sjálfstæði og hagsæld þjóðarinnar gegn þjóðsöluflokki kratanna.

Jæja, margt er skrítið í kratahausnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

Hehe, kratinn stóð sig verst "atvinnumannanna". Það sást úr flugvél.

Snorri Bergz, 12.3.2007 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband