Verulega ógeðfellt

Ok, ég þekki ekki aðstæður þessara stúlkna, en það er alveg sama. Þetta er ógeðslegt. Gátu stúlkurnar ekki fundið kjörforeldra, t.d. voru bæði Madonna og Angelina Jolie vafalaust á lausu, og margir aðrir, sem ekki geta eignast börn en vilja koma á fót fjölskyldu. Börn er dýrmæt og er það með því allra, allra ógeðslegasta sem maður veit um, að fórna börnum á altari einhvers málstaðar eða persónulegra hagsmunamála. Og jafnvel þótt þau hafi fæðst andvana, áttu þau amk skilið að fá sómasamlega greftrun.

En ég vona að yfirvöld rannsaki þetta mál ofan í þaula, og sé stúlkan sek um barnamorð skal hún taka út refsingu sína. En hafa ber í huga, að það þarf mikið að koma til, svo kona drepi barnið sitt, í þessu tilviki annað hvort samviskuleysi og siðferðisskortur, eða geðveila.

 


mbl.is Kona grunuð um að hafa myrt þrjú börn sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband