Smyglskipið

Jæja, dóp í Norrænu. Líka laumufarþegi.

En sem betur fer hefur ekki verið greint frá því að Svíar væru um borð í skipinu.

Það hefði nú verið til að kóróna allt saman.


mbl.is Fíkniefni í bíl í Norrænu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfaldar skýringar

Liðið ekki nógu gott. Þjálfarinn ruddi með mikilmennskubrjálæði.

Ég er kominn á þá skoðun að maður þessi sé ekki með öllum mjalla.

 


mbl.is Wilbek hefur fundið skýringuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur Eimskip með börnin?

Jæja, Eimskip kom færandi hendi með þrjú börn á einu bretti.

En þetta er auðvitað mikið áfall fyrir mig. Ég hélt að storkurinn kæmi með börnin.Crying


mbl.is Fengu þrjú börn á einu bretti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eistnavísur KRinga

Ósóma má alltjént finna
oft er málum þarf að sinna.
Eistnaknúinn power
enn má finna í KR
enda er til mikils að vinna.

En eignir þessar þarf að verma
og illt er þá við högg að herma.
En boltarnir báðir
bólgnir og smáðir
börðust til síðustu sperma.

Birt á: http://hornid.com/cgi-bin/mwf/topic_show.pl?tid=8357


mbl.is Pétur Marteinsson: Fór þetta á öðru eistanu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurstaðan í málinu

Ólafur og Ástþór eru hetjur. Lýsing fær neikvæða viðskiptavild.

Ólafur og Mjólka fá aukna viðskiptavild og græða þegar upp er staðið. Ástþór græðir, það segir sig sjálft.

En menn munu nú vafalaust treysta Lýsingu síður en annars væri.


mbl.is Fékk styrk til að leysa út vélarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari

Michael jackson ap fl}jaÞau eru bæði að vekja athygli á sér; komast á síður slúðurblaðanna og svo framvegis.

Þetta PR múf mun þó varla skila miklu til langs tíma.

Michael Jackson er sækó og ýmislegt má segja um Pamelu og hinar sólríku suðursvalir hennar.


mbl.is Heitasta parið vestanhafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýi Google vafrinn (screenshot innifalið)

OK, Mogginn fylgist með. Þetta má m.a. lesa um á Search Engine Watch og víðar, m.a. smáumfjöllun á íslenskri síðu. Hér er svo ein góð.

Að neðan er svo screenshot af Google vafranum nýja. Ég er amk spenntur eins og amk flestir þeir sem starfa við Google-tengd málefni.


chrome2

 


mbl.is Google-vafri væntanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smákrakki

Ég veit ekki hvort ég eigi að glotta eða gráta yfir þessu rugli. Strákurinn ætti að fullorðnast og það hið snarasta.
mbl.is Grét er hann missti af fluginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Guð til?

Ja, Michael Moore hélt því fram að Guð væri til. Sönnunin væri, að hann hefði sent fellibyl til að eyðileggja flokksþing repúblikana og styrkja þannig demókrata í sessi, því athyglin yrði öll á Gústavi en ekki McCain og co.

En nú gerist það, að skv. skoðanakönnunum FYRIR flokksþing repúblikana, en EFTIR flokksþing demókrata, að McCain og Obama hafa sama fylgi, svo gott sem. Munar 1%.

Og Gústav ákvað að draga sig í hlé til að hjálpa repúblikönum, sem nú hefja sitt flokksþing þegar Gústi hefur ákveðið að slaka á. Eða var það skipun að OFAN, eins og Michael Moore hefði sagt?


mbl.is Flokksþing repúblikana hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frakkar vakna

Löngu tímabært. Frakkar verða að fara að átta sig á því, að heimurinn snýst ekki um Frakkland eins og hann gerði á tíð "Ancien Regime". Mjög fáir skilja neitt í frönsku og jafnvel þeir sem hafa lært eitthvað í skóla eiga erfitt með að tala málið nema með búsetu þar í amk nokkra mánuði. Ég veit um fólk sem heitir því að fara aldrei aftur til Frakklands, því þarlendir annað hvort kunni ekkert í ensku eða vilji ekki tala ensku: "Ef þú vilt koma til Frakklands, skaltu tala frönsku við okkur" var m.a. sagt einu sinni.

Frakkar verða bara að átta sig á breyttri stöðu. Í Austur-Evrópu þar sem franska var víða "þriðja erlenda mál", á eftir rússnesku og þýsku, hefur enskan nú tekið við sem a.m.k. annað mál, ef ekki fyrsta, og franskan dottið niður.

Og frönskukennsla hefur minnkað.

 Ég tók frönsku í síðasta bekk grunnskóla og tók síðan 7 áfanga í frönsku í MH. Var nú ekkert sérlega áhugasamu, en kláraði þó. Fór síðan nokkrum mánuðum síðar til Parísar á skákmót. Jújú, ég gat lesið frönsku blöðin, merkilegt nokk, en dáldið erfiðara reyndist að tala málið. Síðar bjó ég með franskri stelpu í nokkra mánuði á stúdentagörðunum...við töluðum alltaf saman á ensku.

Því gerðist það oft, þegar maður fór í búðir, að ég talaði á ensku, sem afgreiðslufólkið skildi (með herkjum amk) og svaraði mér á frönsku, sem ég skildi með herkjum. Sniðugt kerfi...en fáránlegt.

En vonandi stendur þetta allt til bóta.

 


mbl.is Aukin enskukennsla í frönskum skólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband