Pása

BeeJæja, sá tími kemur fyrir alla að menn þurfa á pásu að halda.

Svo er komið hjá mér akkúrat núna.

Ég kveð í bili, en kíki aftur þegar betur stendur á.


Slátrun

Mínir menn í Arsenal gerðu góða ferð til Blackburn og unnu þar auðveldan sigur, 4-0. Ágætt að ná svona úrslitum á útivelli og gegn jafn sterku liði og Blackburn er.

Greinilegt að Denilson er að standa sig vel í DMC. Þegar stóru fallbyssurnar fara, kemur bara einhver kjúklingur í staðinn og ný stjarna er fædd. Þannig virðist þetta vera hjá Arsenal.

Og verður vonandi áfram.

En Man Utd vélin hikstar. En fjögur eyðslufélög eigast við í dag, eða áttust. Milljarðasveit Liverpool lagði milljarðasveit Man Utd. Síðar í dag eigast við ofurmilljarðamæringalið Man City og Chelski.

En kannski er bara betra að ala upp eigin leikmenn en eyða 20 milljón pundum eða meira í leikmenn hvað eftir annað. Það er líka skemmtilegra. 


mbl.is Adebayor með þrennu í 4:0 sigri Arsenal á Blackburn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegið að stöðu kvenna í Íran

Þetta er nú varla frétt. Það hefur verið jafnt og þétt vegið að stöðu kvenna í Íran í margar aldir. En nú virðist eiga að vega ENN FREKAR að stöðu íranskra kvenna.

Þeir, sem að þessu standa eru sömu aðilarnir og halda úti nokkrum samtökum, sem virðast njóta ótrúlegrar hylli meðal ákveðinna Íslendinga, þeirra sömu og kenna sig við femínisma og kvenréttindi. Wink


mbl.is Vegið að stöðu kvenna í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingar á Íslandi

Ég sat einn í heita pottinum í Hreyfingu í gærkvöldi þegar maður um fimmtugt bættist í hópinn. Við sátum þegjandi smá stund uns maðurinn ávarpaði mig á ensku og fór að spyrja hvernig mér þætti veðrið. Ég svaraði því til, að það væri svosem ágætt. Veðrið væri verra víða annars staðar.

Talið barst svo að ýmsum þáttum, alltaf á ensku.

Maðurinn kvaddi síðan, en kynnti sig um leið og sagðist heita Friðrik. Ég svaraði um hæl.

Hann horfði undarlega á mig og sagði:


"Fyrirgefðu. Ég hélt þú værir útlendingur".

Ég hlýt að vera svona útlendingalegur.

Eru virkilega það margir útlendingar við störf hér, að menn gera því skóna að menn séu frekar útlendingar en Íslendingar. Eða eru þeir, sem eru með kolsvarta og djúpa skeggrót og hæfilegan bringuháraskóg umsvifalaust taldir útlendingar?


mbl.is Útlendingum fækkar á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögmál lífsins

Það er eins líklegt að VG-liðar tali mest og að sólin komi upp á hverjum morgni. Gallinn er, að innihald ræðuhalda flestra þeirra a.m.k. er því miður ekki í réttu hlutfalli við magnið!
mbl.is Steingrímur talaði lengst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En mikið er ég feginn því

að Moggamenn urðu ekki stafsetningarvillupúkanum að bráð í þessari fyrirsögn, eins og sumum öðrum.

Hefðu þeir t.d. týnt einu s-i hefði þessi fréttaflutningur endað fyrir dómstólum.


mbl.is Skynvillt sælgæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband