Börnin góð og þæg á leikvellinum

arsenalJá, þetta var barnalið Arsenal. Fabianski, öldungurinn, var í markinu, Hoyte í hægri bakverði, Gibbs í þeim vinstri. Svissnesku drengirnir í hafsentingum. Randall og Ramsey á miðjunni, Wilshire og Thomas á köntunum, Bendtner og Vela frammi.

Framan við vörnina var Bendtner elsti leikmaðurinn, 20 ára. Hinir 16-19.

Sevilla stillti líka upp b-liði, en þó voru þarna þrír eða fjórir sem eiga sæti í a-liðinu, Luis Fabiano, Renato, Keita og Maresca, og kannski einhverjir aðrir fastir sem ég þekki ekki.

En börnin stóðu sig vel og voru amk ekki síðri, e.t.v. eitthvað betri. En ekki nógu mikið betri.

Ásættanlegt. Greinilegt að börnin munu koma amk áhugasöm til leiks í vetur, fái þau að spila.


mbl.is Jafnt hjá Arsenal og Sevilla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi á floti

Jæja, gott að kallinn sé ekki á hausnum. Áður var hann efnaður, nú er hann "á floti".

En hann á samt auðveldara með en margir aðrir að verða "efnaður" aftur, gæti haldið nokkra tónleika og selt inn, fyllt húsið. Og hann hlýtur nú að fá STEF gjöld og annað svoleiðis. Þetta hlýtur að hafast hjá honum, þó vísast verði hann aldrei jafn fjáður og áður.

Ég man þegar ég seldi honum flísar á forstofuna í gamla daga. Þá tók hann upp búnt með 5000 köllum úr frakkavasanum og borgaði þannig, og neitaði að þiggja afslátt sem ég hafði boðið honum. En miðað við þetta eru nýir tímar núna.

Nú þarf Bubbi að spara, eins og mörg okkar hin.


mbl.is Allur sparnaðurinn fór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar ráðast inn í erlent ríki

Burtséð frá því hvort S-Ossetía eða önnur héruð þarna á svæðinu eiga eða eiga ekki að vera undir stjórn Georgíu, eru Rússar með þessu að ráðast á yfirráðasvæði erlends ríkis, nágrannaríkis síns.

En hvernig var með Tétsníu? Hvernig geta Rússar réttlætt afskipti sín af þessari deilu í ljós Tétsníu?


mbl.is Georgía kallar eftir vopnahléi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eggert?

Er þetta sami Eggert og vildi ekki leyfa Arnóri og Eiði Smára að spila saman með landsliðinu?

En takk kærlega. Þú gerðir þarna Arsenal mikinn greiða. Vertu ævinlega blessaður kappi!


mbl.is Eggert sá um samningana við Ljungberg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einum kennt og öðrum bent

Það hefur greinilega farið framhjá mér þegar Mugabe-stjórninni í Simbabve var vísað úr Afríkusambandinu?

 


mbl.is Máritaníu vikið úr Afríkusambandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herpes!

Tounge Ok, þetta er nú svoldið fyndið (fyrir aðra en ostruframleiðendur).

Samt get ég ekki annað en hlegið aðeins. Hvernig smitast herpes í ostrum?


mbl.is Franskar ostrur deyja úr herpes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiskifýlan norðan heiða

Þetta er auðvitað algjör snilld hjá Dalvíkingum. Gaman að sjá hversu "skemmtihelgar" ákveðinna sveitarfélaganna fái mikla aðsókn, þó vísast renni fleiri á fiskifýluna en flestar aðrar.

En þetta er mjög skemmtilegt og krydd í ferðatilveru Íslendinga. Nú þarf bara að lækka bensínið svo fleiri hafi hreinlega efni á því að fara svona.


mbl.is Um 20 þúsund manns á fiskisúpukvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iceland Express að gefast upp?

Þetta fyrirtæki getur ekki haldið úti þjónustu lengur. Hvað eftir annað verða seinkanir og bilanir umfram það sem menn geta átt von á að gerist fyrir slysni.

Og það er svo ekki eins og menn fái neitt lægra verð fyrir þjónustuskerðingu og áhættuþættina sem fylgja lággjaldaflugfélögum.

Og þar fyrir utan eru þeir nú ekki sérlega viðskiptahvetjandi. Ég hef einu sinni farið niðrí Grímsbæ á söluskrifstofu félagsins. Það var eins og að ganga á vegg. Enginn hafði áhuga á að liðsinna mér og framkoma starfsmanna jaðraði við dónóskap. Ég hætti við ferðina og nú þarf mikið að koma til, skipti ég við þetta fyrirtæki aftur.


mbl.is Fjöldi farþega Iceland Express bíður í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband