Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Flugslys
Nú eru flugslys orðin nær daglegur viðburður í fréttum. Stundum fer betur en á horfist, eins og í þessu tilviki, en stundum farast margir, eins og nýlega á Spáni og í Kirgístan.
Eg veit ekki hvað gerðist hjá Ed Robertson, en í hinum tilvikunum, sem ég nefni hér, voru gamlar og illa viðhaldnar flugvélar á lofti með fjölda farþega innanborðs.
En jafnvel flugvélar, sem ku vera viðhaldið mjög vel, s.s. hinar nýlegu flugvélar Icelandair, hafa verið að lenda í vandræðum.
Ef sama fer fram sem horfir er von á stóru og slæmu slysi.
Ég var ungur að árum þegar flugslysið mikla varð á Sri Lanka. Það snerti mig óbeint því einn þeirra sem létust bjó í næsta húsi (ef ég man rétt) á Bergþórugötunni. Síðan þá hefur maður hrokkið við þegar minnst er á flugslys og í hvert skipti reikar hugurinn aftur til þessa slyss, sem snerti mann þó aðeins mjög lítið á undómsárunum.
En vonandi fara öldur að lægja og flugslysunum að fækka enn á ný.
![]() |
Söngvari lifir af flugslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Mind games
Jæja, þá fara Íslendingar til Kína og keppa í hugaríþróttum (Mind games leikarnir). Og Kínverjarnir borga. Alls ekki galið.
Það versta við þetta er,t.d. hvað snertir skákina, að leikar þessir fara fram á sama tíma og Evrópumót félagsliða í skák og því missa sveitir amk einhverja af sínum bestu mönnum, þ.e. þær sveitir sem eiga á annað borð landsliðsmenn í röðum sínum.
![]() |
Íslendingar keppa í hugaríþróttum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008
Hillary vill samstöðu
Jú, auðvitað. Obama borgaði tug-hundruðamilljónaskuldir framboðs hennar gegn því að hún yrði þæg og góð stelpa.
Ef einhver gefur mér nokkur hundruð milljónir skal ég blogga voðalega jákvætt um hann og vera voða, voða stilltur.
![]() |
Clinton hvetur til samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)