Viðurstyggilegt athæfi

Þetta er ljótt, en kemur manni ekki á óvart. Maður hefur heyrt slíkar sögur áður. En að ættingjar neyði unga stúlku til að ekki aðeins fremja sjálfsmorð heldur myrða jafnframt aðra saklausa borgara.

Slíkt miskunnarleysi á í mínum huga ekki heima í hinum siðmenntaða heimi.

Þeir sem bera ábyrgð á slíku á að senda sömu leið og Saddam. Eiga ekkert betra skilið.


mbl.is Hætti við sjálfsmorðsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meikaða?

Ég fatta ekki af hverju Gunnar Heiðar var t.d. í byrjunarliði Íslands gegn Aserum nýlega. Hann gat nákvæmlega ekkert og hefur lítið sýnt í þeim leikjum sem ég hef séð með honum í landsliðinu.

Við hljótum að eiga betri framherja.

En hitt er svo annað mál, að hann á eftir að koma til og ábyggilega standa sig vel til lengri tíma í dönsku deildinni. En maður sem er ekki að sýna neitt, er ekki í sínu besta formi greinilega, á ekki að vera í byrjunarliði landsliðsins.

Ef við eigum enga sóknarmenn í útlöndum (eldri en 21 árs), hefði ekki verið betra að gefa einhverjum local náunga sénsinn?


mbl.is Gunnar Heiðar í hópi fimm mestu „floppa“ dönsku úrvalsdeildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskaplega góður kostur

Þetta er afskaplega vel til ráðið. Þarna fer ein magnaðasta kona sem ég hef kynnst, kjarnorkukona og afskaplega hæf til verka. Og ekki skemmir að hafa ritað ævisögu þjóðardýrlings Norðmanna.

Ég efa ekki að Sigríður Dúna á eftir að slá í gegn í Noregi.

 

En hvað ætli það séu margar konur sendiherrar í Íran?


mbl.is Sigríður Dúna afhendir trúnaðarbréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handboltalandsliðið fær fálkaorðuna

Glæsilegt.

Ég fór fram á þetta fyrir nokkrum dögum...eða amk að láta Óla fá orðu!

En þetta er betra svona. Strákarnir gerðu þetta saman og eiga saman að njóta ávaxtanna.

Áfram Ísland.


mbl.is Fálkaorðan bætist í orðusafnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að losna við hann

Arfaslakur á síðustu leiktíð.

En það mætti engu að síður fá einn varnarmann inn til viðbótar, ekki síst þar eð Nordtveit er líka kominn á lán.

Það verða að vera bakkup...þetta er stór klúbbur.

Stundum skilur maður ekkert hvað Wengererinn er að pæla.


mbl.is Senderos komin til AC Milan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkatrúboðar íslams

Ja, mennirnir eru bara kannski að fylgja því fordæmi sem fyrstu kalífarnir settu; þ.e. að boða trú með vopnavaldi?

En  frekar var nú kveðja þessi súr undir tungu. Skil ekki að menn með svona hatursboðskap hefðu áorkað miklu hér á landi.

Meira að segja Múllah Ögmundur ku víst ekki vera mikið fyrir svona trúarbragðanálgun.


http://muftism.blogspot.com
http://originsislam.blogspot.com

 


mbl.is Meintir hryðjuverkamenn komu til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grrrrrrrrr, namminamm, voffvoff

myndi vinur vor Bebbi segja í þessu tilviki.

En það ber að viðurkennast að þetta er lögulegt fljóð.

Hins vegar voru skákmenn búnir að uppgötva stúlkuna fyrir löngu, en umræður um hana brutust út fyrir nokkrum dögum á Skákhorninu.


mbl.is Fallegasti ólympíukeppandinn valinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundafárið

Ég var nú á ferð í Grímsnesi í gær, við Miðengi.

Sá enga hunda, en helling af berjum.

Hundurinn ku nú hafa komið í leitirnar (eða einhver týndur hundur í Grímsnesi), en mig grunar að hann hafi hreinlega farið í berjamó og gleymt að senda bóndanum sms.


mbl.is Hundar hverfa í Grímsnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðurkennum sjálfstæði Tétsníu og annarra sjálfstjórnarlýðvelda í Rússlandi

Þetta er hræsni í Rússum. Þeir neita Tétsníumönnum og öðrum um sjálfstæði en haga sér síðan svona gagnvart Georgíu.

 


mbl.is Viðurkenna sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkhaziu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elsti Íslendingurinn

er Kanadamaður.

Hvað er málið?


mbl.is Elsti Íslendingurinn 107 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 25. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband